Þjóðlíf - 01.06.1987, Blaðsíða 36

Þjóðlíf - 01.06.1987, Blaðsíða 36
Forystumenn flokksins eru ekkert heilagir Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins í KJÖLFAR KLOFNINGS og kosninga- ósigurs gengst Sjálfstæðisflokkurinn nú und- ir naflaskoðun. Miðstjórn flokksins skipaði nýverið fimm manna nefnd til að endurmeta stöðu, starf og skipulag flokksins. í nefnd- inni sitja Friðrik Sophusson varaformaður flokksins sem er formaður nefndarinnar, Jón Magnússon, Víglundur Þorsteinsson, Inga Jóna Þórðardóttir og Magnús Gunnars- son. Nefnd þessi fékk gagnrýni frá Morgun- blaðinu þar sem í henni sætu einungis hátt- settir flokksmenn og frambjóðendur en um miðjan maí sagði Friðrik Sophusson að nefndarmenn myndu leita út fyrir eigin raðir og auk þessa hefðu tveir menn vanir rekstr- arráðgjöf fyrirtækja verið fengnir til að gera einkaúttekt á stöðu flokksins. Leynd hefur hvílt yfir þessu endurmati öllu og fást for- svarsmenn flokksins ekki til að gefa upp hverjir þessir rekstrarráðgjafar eru. Um síð- ustu mánaðamót leituðum við til Friðriks Shopussonar um frekari fregnir af þessum málum. Þið hafið fengið menn vana rekstrarráð- gjöf til að gera úttekt á stöðu flokksins. Er 'gerlegt að taka heilan stjórnmálaflokk í gegn eins og hvert annað fyrirtœki? „Nei, það held ég ekki en það er þó hægt að spyrja sömu spurninga og þeir sem gera úttekt á fyrirtækjum verða að spyrja sig. Hugsa frá markaðnum og til stjórnendanna og því geta svona menn e.t.v. betur áttað sig á því en þeir seht starfa í innstu röðum flokksins hvað hafi skort á kjósendamark- aðnum til að eins margir og jafnan áður treystu sér til þess að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn. Við töldum æskilegt að menn gætu gengið að þessu verki óbundnir og skilað svo sínum tillögum og niðurstöðum.“ Hvaða menn eru þetta? „Annar þeirra er verkfræðingur og hinn hagfræðingur en við gefum ekki meira upp vegna þess að við viljum að þeir fái að vinna að þessu í friði, enda eru þetta ekki áber- andi flokksmenn í Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru þegar byrjaðir að gera sínar eigin athug- anir.“ Hvaða hlutverki gegnir þessi fimm manna nefnd sem þú stýrir? „Þetta er hópur manna sem miðstjórn hefur skipað og er ætlunin sú að hver nefnd- armaður afli upplýsinga sem víðast að frá flokksfólki um þau málefni sem hann hefur með að gera, en við skiptum þessu í fjóra þætti. Það á að kanna með hvaða hætti eigi að endurmeta stöðu flokksins að loknum kosningum með tilliti til margvíslegra mála s.s. útbreiðslumála og málefnalegra áherslna. Og jafnframt að kanna starfshætti flokksins, gera úttekt á kosningabaráttunni og meta úrslit kosninganna út frá því. Auk þessa kannar svo hver fyrir sig með sínum hópi allskonar önnur atriði og hafa þeir til þess mjög frjálsar hendur. Þessi nefnd mun einungis skila inn hug- myndum og tillögum sem miðstjórnin eða aðrir aðilar á hennar vegum verða síðan að vinna úr. Við erum því ekki að tala um starf sem tekur enda eftir nokkrar vikur heldur er hér verið að vinna að tillögugerð um það hvernig flokkurinn á að bregðast við á næstu mánuðum eða árum.“ Eru flokksmenn yfirleitt sammála því að gera þessa naflaskoðun? „Miðstjórnin var sammála um að gera þetta svona en hins vegar hnýtti Morgun- blaðið svolítið í þetta og benti á að það sé mjög erfitt fyrir þá sem eru innstu koppar í búri að gera slíka úttekt á sjálfum sér. Á móti má þó segja að miðstjórnin og aðrir þeir sem bera ábyrgð á starfi flokksins hljóta jafnframt að bera ábyrgð á úttekt af þessu tagi. Við getum ekki ætlast til þess að þeir sem ekki eru framarlega í flokksstarfinu og bera þar af leiðandi ekki ábyrgðina leggi okkur lið nema miðstjórnin leiti eftir því. Þessi nefnd er því ekkert annað en milliliður sem er að sækja upplýsingar til almennra flokksmanna og leggur þær svo í tillögu- formi fyrir miðstjórnina til frekari úr- vinnslu." Er þá ekki jafnframt vœnlegast fyrir flokk- inn að hvtla sig á frekari stjórnarþátttöku á meðan þetta endurmat stendur yfir? „Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð talið að stærsti flokkur landsins geti ekki skotið sér undan því að taka þátt í stjórn landsins og við verðum því að axla þá ábyrgð ef á hana reynir. Hins vegar er ekkert slæmt mál fyrir Sjálfstæðisflokkinn að lenda í stjórnarand- stöðu því það hefur alltaf sýnt sig að flokk- urinn hefur dafnað best í stjórnarandstöðu og unnið sína stærstu sigra eftir að félags- hyggjuflokkarnir hafa setið við stjórnvölinn og lagt sig fram við að klúðra málum. Það er auðvitað ekki markmið okkar að vera í stjórnarandstöðu heldur að hafa áhrif á stjórn landsins og eftir kosningarnar blasir enn við sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkur- inn er verulega stærstur flokkanna. Við munum því taka þátt í stjórnarmyndunar- viðræðum eftir sem áður. Það merkilegasta sem gerst hefur í þeim viðræðum undanfarið er að Kvennalistinn stóð frammi fyrir því að velja um það hvort hann ætlaði sér að vera stjórnmálaflokkur sem tæki ábyrgð á stjórn landsins eða halda áfram að vera þrýstihópur með skoðana- mótandi hlutverk utan stjórnar. Hann valdi síðari kostinn og því verður ekki hægt að JIM SMART mynda stjórn með Kvennalistanum nema þær slái af þeim skilyrðum sem þær stóðu a þegar upp úr slitnaði í viðræðum okkar við þær og Alþýðuflokkinn. Mér er líka kunn- ugt um að Alþýðubandalagið er ekki reiðu- búið til að lögbinda lágmarkslaun með þeim hætti sem Kvennalistinn krefst og því sýnast mér þær vera búnar að dæma sig úr leik. J viðræðum okkar lögðu þær ofurkapp a launamálin en ég tel að ef ekki hefði strand- að á þessu hefði verið tiltölulega auðvelt að semja um önnur atriði. Líka utanríkismál því ég hygg eftir á að þær hefðu ekki ged það að skilyrði að við slitum þeim samning' um um verkefni á vegum varnarliðsins sem gerðir hafa verið. Það er mitt mat.“ Var lítill ágreiningur á milli ykkar og Al' þýðuflokksins? Hefðuð þið t.d. náð sattt' komulagi um kröfu kratanna um sameiningu lífeyrissjóðanna? „í þessum málum var lítill ágreininguf okkar í milli og hvað lífeyrissjóðina varðar var að vísu ekki komin nein niðurstaða en ég hygg að það sé ekki djúp gjá sem skilnf menn að sem annars vegar segja að setja eigi samræmdar reglur fyrir alla lífeyrissjóð- ina en leyfa þeim að starfa áfram og hins vegar að hafa eigi einn lífeyrissjóð sem se deildaskiptur. Þetta er spurning um sjálfr' forræði lífeyrissjóðanna og um það hvod menn vilja afnema það eða ekki en þarna hefði eflaust náðst samkomulag." En snúum okkur aftur að úttektinni a Sjálfstœðisflokknum. Hver verða ncesá1 skref nefndarinnar? „Við munum skila tillögum til miðstjórn' ar nú í júní um aðgerðir og verkefni sen1 miðstjórnin verður að taka afstöðu til sumt af því tekur áreiðanlega langan tíma- Úttekt sérfræðinga okkar mun líka fylglJ með þeim hugmyndum sem við leggjum ir miðstjórnina. Þeirra verkefni er eingöngu liður í að fá upplýsingar sem víðast að, Þ'1 sum þessara vandamála kunna að vera mjúS viðkvæm fyrir helstu forystumenn flokksins; Við erum ekkert heilagir fyrir gagnrýninnr ■ Ómar Friöriksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.