Þjóðlíf - 01.06.1987, Qupperneq 15
E R L E N T
um gangana milli fundarherbergja. Nái
obbyistarnir ekki tali af þingmönnunum
oenda þeir ýmist upp eða niður með þumal-
hngrinum til þess að gefa til kynna álit sitt á
ninum ýmsú frumvörpum og þingsályktun-
Um sem þingmenn vinna að hverju sinni.
Svo mikill er handagangurinn í öskjunni,
nð gárungarnir hafa gefið ganginum fyrir
ra,nan fundarherbergi fjárhagsnefndar full-
trúadeildarinnar nafnið Gucci-stræti, eftir
úmum dýra skófatnaði lobbyistanna sem
Pramma þar fram og aftur allan daginn.
En lobbyistarnir eru ekki aðeins á höttun-
nm eftir þingmönnum sem þeir geta í mesta
lagi fengið fimm mínútna viðtöl við. Þeir
eyða drjúgum tíma í að ræða málin við
aöstoðarmenn þingmannanna og koma á
ramfæri við þá upplýsingum um hin ólíkleg-
jrstu vandamál milli himins og jarðar, sem
ugsanlega yrðu sett lög eða reglugerðir
um.
Vinnudagur lobbyistanna er langur. Á
'völdin og um helgar þurfa þeir að sækja
allskyns kokteilpartý og kvöldverðarboð,
sem gjarnan eru haldin í fjáröflunarskyni
yrir hin eða þessi samtök, eða þá til að
safna fé í kosningasjóði einstakra þing-
manna. Lobbyistarnir mæta í þessi sam-
Værni, því greiðar og fjárgjafir af þessu tagi
§eta borgað sig síðar meir.
SKRÁNINGARSKYLDA. Samkvæmt
andarískum lögum eiga þeir sem vilja
s|arfa sem lobbyistar við þingið að láta skrá
Slg á sérstakri skrifstofu í þinginu. Jafnframt
Ur'a menn að skrifa undir yfirlýsingu þess
® r>is að þeir vilji hafa áhrif á hina þjóð-
jQ°rnu fnlltrúa sem fara með löggjafarvald-
• Til að tryggja að lobbyistarnir beiti ekki
ler°8®urri, liggur bókhald þeirra frammi ár-
ga til opinberrar rannsóknar.
^ Em 9000 lobbyistar voru á skrá hjá
andaríkjaþingi á síðasta ári. Þær tölur eru
P° engan veginn taldar gefa rétta mynd af
andinu. Segja sérfræðingar að nær lagi sé
a æ0a að um 20.000 manns starfi á einn eða
annan hátt við lobbyisma í borginni. Af
e'm eru um 300 fyrrverandi þingmenn og
^nættismenn í Hvíta húsinu, en um 1000
nu vera skráðir sem starfsmenn erlendra
r'kja.
Þrátt fyrir að sérhagsmunahópar hafi
^akað krókinn í Washington um áraraðir,
/, Þaö ekki fyrr en á síðustu árum sem
l nyismi hefur orðið sú gróðalind sem
hanu er í dag.
(1 Jlrna*aun‘n geta numið allt að 400 dölum
^ 000 kr.) þegar vel gengur og 7.000 dala
nus er algengur fyrir að fá frumvarp lagt
Sa3m’ °g 25.000 dala bónus, ef frumvarp er
ár | Pykkt í annarri hvorri deildinni. Meðal-
2^aun lobbyista eru að jafnaði ekki undir
^rón ^ ^ölum, e®a tlu rnilljónum íslenskra
ann^ mar^a ma bókhald lobbyfyrirtækj-
ón. 3’ ^a eyddu þau ekki meira en 50 millj-
mim ^a*a árið 1985 sem samsvarar um 200
naJ0num íslenskra króna til að ná fram
kmiðum sínum.
■ „Gucci-stræti" — gangurinn fyrir fram-
an fundarherbergi fjðrveitinganefndar
fulltrúadeildarinnar.
En það er með fjármagnið eins og fjölda
lobbyistanna. Menn telja að mun meira fé
sé í spilinu og segja sérfræðingar að nær lagi
sé að ætla að lobbyistar eyði 1,5-2
milljörðum dala í að hafa áhrif á bandaríska
þingmenn á ári hverju. Til samanburðar má
geta þess að fjárlög hérlendis fyrir þetta ár
eru yfir 40 milljarða króna, eða rúmur
milljarður bandaríkjadala.
AÐ MAKA KRÓKINN. „Lobbyismi er
vaxandi atvinnuvegur. Það þarf ekki annað
en að líta á uppbygginguna á K stræti,“ segir
Ray Denison, helsti sporgöngumaður verka-
lýðshreyfingarinnar í Washington, og vísar
til þeirrar miklu uppbyggingar sem orðið
hefur í miðborginni þar sem flest lobbyfyrir-
tækin eru til húsa.
Lobbyistunum hefur fjölgað um meira en
helming á síðustu tíu árum, og sérstaklega
hefur aukningin orðið mikil á valdatíma
Reagans forseta. Reyndar verður það að
teljast viss kaldhæðni örlaganna, að Reagan
kom til Washington í upphafi til að ganga
milli bols og höfuðs á kerfinu en síðan hafa
samstarfsmenn hans umvörpum sagt skilið
við hann til að lifa á þessu sama kerfi.
Hátt á annar tugur aðstoðarmanna forset-
ans hefur hætt störfum frá upphafi forseta-
ferils hans 1980 og gerst lobbyistar.
„f fjölda ára gerði ég hlutina af ánægju
einni saman, nú ætla ég að gera þá fyrir
peningana," sagði Ed Rollins, starfs.naður
Hvíta hússins í viðtali við Washington Post,
eftir að hann hætti sem aðstoðarmaður for-
setans. Rollins þénaði um 75.000 dali á ári
sem embættismaður en sagðist tífalda þá
upphæð sem lobbyisti.
Peningarnir eru freistandi, og það er auð-
velt fyrir fyrrum embættismenn að ná
árangri, því þeir kunna á kerfið. Hafa
nokkrir þeirra siglt krappan beitivind upp á
fjármálahimininn á síðustu árum, reyndar
helst til krappan sumir hverjir.
VINUR FORSETANS. Af þeim starfs-
mönnum Reagans, sem fóru út í lobbyisma,
hefur enginn náð jafn skjótum frama og
Milljónir fyrir
erlendar
ríkisstjórnir
Hagsmunaaðilar
leita til þingmanna
ERLENDAR RÍKISSTJÓRNIR eyða
milljónum dala á hverju ári í greiðslur til
þekktra bandarískra lobbyista sem
hjálpa þeim að rata í gegnum myrkviði
bandarfska stjórnkerfisins.
Með aðstoð góðra ráðgjafa hefur er-
lendum ríkjum oft tekist að ná hagsmun-
um sínum fram og er oftast vænlegra til
árangurs að snúa sér beint til þingmanna
en að leita á náðir Utanríkisráðuneyt-
isins.
„Margir erlendir sendiherrar eru fyrst
og fremst lobbyistar,” segir Robert
Gray, sem rekur lobbyfyrirtæki í Wash-
ington og sérhæfir sig í þjónustu við er-
lend ríki, „en aðgangur þeirra er tak-
markaður og ekki hægt að búast við að
þeir líti á málið frá sjónarmiði heima-
manna.“ Telur Gray að þar komi þjón-
usta lobbyistanna sér í góðar þarfir, en
aukin starfsemi þeirra fyrir erlend ríki
hefur skapað glundroða meðal þing-
manna.
Þingmenn segjast ekki átta sig á fyrir
hvern lobbyistinn er að vinna hverju
sinni. Sjálfir telja þeir sig vera að hlusta á
rök manna sern enduróma rödd kjós-
enda, en eru í raun að hlusta á spor-
göngumenn erlendra ríkja sem vilja ná
sem hagstæðustum verslunar- og við-
skiptasamningum við Bandaríkin.
Yfirlit yfir eyðslu árið 1984, samkvæmt
opinberum skýrslum (í milljónum
dollara).
1. Japan .................... 14.294
2. Kanada..................... 7.531
3. Vestur-Þýskaland........... 6.362
4. Sovétríkin ................ 5.469
5. írland..................... 5.438
6. Indónesía.................. 5.290
7. Skotland................... 3.504
8. Suður-Kórea................ 3.221
9. Saudi Arabía............... 3.209
10. Frakkland ................ 3.204
Þess ber að geta að erlend ríki eyða
milljónum til viðbótar í kynningarstarf-
semi, sem ekki þarf að skrá í opinberar
skýrslur.
15