Þjóðlíf - 01.06.1987, Síða 25
E R L E N T
Tilboð á tilboð ofan
Sögulegt afvopnunarsamkomulag þó ekki í augsýn
^ÍÐASTLIÐNA 15 mánuði hafa alls komið
/arn tæp 30 formleg afvopnunartilboð frá
st°rbatsjof Sovétleiðtoga. Vesturveldin
anda í ströngu, ruglingsleg viðbrögð og
samhljóða yfirlýsingar hafa komið fram
(.nnan NATO. Framtíð öryggismála í V-Evr-
VPU hefur verið í brennidepli undanfarnar
ur og náðu hámarki á fundi utanríkisráð-
Atlantshafsbandalagsins hér í Reykja-
' JyrÍr notckrurn dögum.
Menn hefur greint á um eiginlegan tilgang
m^batsjofs en hitt er fullljóst að hann hefur
ag siendurteknum hætti átt frumkvæðið
t nýjum tillögum og margsinnis slegið af
virt* ^rö^um °8 fallið frá skilyrðum sem
a/ Ust áöur standa í vegi fyrir hugsanlegu
npnunarsamkomulagi.
sö lkLUritið Time greindi nýlega frá sögu-
funH Pess e^nis ^orbatsjof hefði gengið á
.. æöstu hershöfðingja í sovéska valda-
lnu nokkrum vikum eftir að hann tók.
við völdum og spurt einfaldrar spurningar:
Af hverju eru SS-20 meðaldrægu eldflaug-
arnar nauðsynlegar í vopnabúri okkar í Evr-
ópu? Það var ákvörðun Stjórnarnefnd-
arinnar, svöruðu hershöfðingjarnir. Veit ég
það, sagði Gorbatsjof, en hver er herfræði-
leg nauðsyn á staðsetningu þeirra? Fátt varð
um svör. Samkvæmt þessu á Gorbatsjof
ekki aðeins að hafa komist að þeirri niður-
stöðu að tilgangur hinna umdeildu SS-20
flauga væri enginn heldur og að tilvist þeirra
væri beinlínis hættuleg vegna þess að
NATÓ-ríkin ákváðu 1979 að leyfa staðsetn-
ingu bandarískra Pershing II flauga og
Tomahawk stýriflauga í fimm Evrópuríkjum
til að mæta meintum yfirburðum Sovét-
manna vegna SS-20 flauganna.
Henry Kissinger hefur þó bent á að sú
ákvörðun hafi eingöngu verið póltitísk, þ.e.
beinst að því marki að tengja kjarnorkuvið-
búnað V-Evrópu kjarnorkuviðbúnaði
Bandaríkjanna, en frá herfræðilegu sjónar-
miði var engin sérstök þörf á staðsetningu
bandarísku landeldflauganna í Evrópuríkj-
unum.
En upp frá þessu hefur tillöguregnið geng-
ið yfir frá Sovétmönnum og nú þykjast hern-
aðarsérfræðingar og aðrir þeir sem með al-
þjóðamálunum fylgjast sjá sögulegt sam-
komulag um upprætingu Evrópuflauganna
innan seilingar. Hin svokallaða núll-núll
lausn þýðir að samið yrði um útrýmingu
meðaldrægra flauga og skammdrægra flauga
í Evrópu. Eftir stendur þó gífurlegur kjarn-
orkuvígbúnaður í Evrópu og í hafinu, V-
Evrópuríkin hyggjast jafnvel auka samstarf
sín í milli á sviði varnarmála sem gæti þýtt
fjölgun kjarnorkuvopna þessara ríkja. Á
fundi varnarmálaráðherra NATO í Noregi í
síðasta mánuði setti Caspar Weinberger
fram þá skoðun sína að samfara afvopnun-
arsamkomulagi ýrði kjarnaflaugum í kafbát-
um og flugvélum á N-Atlantshafi fjölgað.
Uppræting kjarnorkuflauga stórveldanna í
Asíu hefur blandast þessu og er ekki í aug-
sýn neitt samkomulag sem gæti tekið til
þeirra. Gorbatsjof er talinn vilja ná sam-
komulagi um tvöföldu núll-lausnina, Banda-
ríkjamenn hafa orðið æ óþolinmóðari á síð-
ustu vikum vegna þess hve treg V-Evrópu-
ríkin, og þá sér í lagi V-Þjóðverjar, eru á að
fallast á samkomulag stórveldanna. Reagan
25