Þjóðlíf - 01.06.1987, Page 57

Þjóðlíf - 01.06.1987, Page 57
* Héskólabíó mun sýna Platoon í júlí- 'xánuói. ^latoon ^aunsönn lýsing °9 þörf áminning 8SEM FYLGDUMST með stríðinu í ðaustur Asíu höfðunt megnustu óbeit á aðlrgangi risaveldisins og vildum ekki standa 'lrtver^a*aus moðan lífið var murkað úr lít- agnanum. Þess vegna voru menningar- mætin varin er íslenskir námsmenn ^muðu fulltrúa stríðsveldisins, William gers utanríkisráðherra aðgang að Árna- ggr '• Oft eiga síðari kynslóðir erfitt með að tak^ S^f ®re'n fyr'r raunveruleika stríðsá- " k1’-”1* ^Vl ac^ frasagn'r fegra þráfalt söguna í hPV! r'i sönnunar þarf ekki annað en glugga fp,.. Jufrásagnir í handritunum sem Rogers y ekki að sjá. Vj erðlaunamyndin Platoon vitnar um ör- Sa 1° öandarísku þjóðarinnar andspænis þ.. e>kanum á dögum Víetnamstríðsins. nijðVar stríðsatburðum lýst án tafar í fjöl- strf nm °g úr því að flestum var ljóst að gá st'lgmigurinn helgaði ekki meðulin, 1 s'r\ errnenn'mir ekki orðið hetjur eins og mön 3r' f'eimsstyrjöldinni. Víetnamher- Var pum var ekki tekið fagnandi og þeim visk , . . hjálpað að gleyma nagandi sam- um 70 mnU' Var siáandi staðreynd að • J00 fyrrverandi hermenn úr Víetnam- L I S T I R stríðinu styttu sér aldur eftir heimkomuna og geðdeildir hersjúkrahúsanna eru ennþá fullar af Víetnamhermönnum. Platoon lýsir hinum ómannlega hryllingi með því að beina athyglinni að einni lítilli liðssveit. Þar sjáum við samfélagið í hnotskurn, án þess að reynt sé að fegra ógnirnar eða finna farsæla lausn á ófremdarástandinu. Hvernig stendur þá á því að kvikmynd sem lýsir stríðsfólsku Bandaríkjamanna í Ví- etnam á slíkum vinsældum að fagna? Vissu- lega er Platoon tilbreyting frá Rambó-mynd- unum, eða þeim torræðu eins og Apocalypse Now — svo ekki sé minnst á andstyggð eins og Green Berets. En kannski Jean-Luc Goddard hafi rétt fyrir sér, þegar hann full- yrðir að njóti góð kvikmynd almennra vin- sælda, hljóti það að byggjast á misskilningi! Víst er að hér í Bandaríkjunum er Platoon ennþá fjölsótt í maílok, en hún var frum- sýnd í janúar síðastliðnum. Líklega höfðar Platoon til svo margra vegna þess að það má skilja myndina á ýmsa vegu. Til dæmis má fá Rambó-kikk út úr henni - margir drepnir og þeir gulu sallaðir niður. Þetta getur líka verið heimspekileg vangavelta um vinskap við erfiðar aðstæður og fláræði. Og myndina má skoða sent prédikun urn tilgang og afdrif góðs og ills í heiminum. Platoon er raun- sönn Iýsing á einni hlið Víetnamstríðsins, þeirri sem blasti við óhörðnuðum bandarísk- um hermanni á unga aldri, enda er þetta sjálfsævisaga höfundarins Olivers Stone. Innfæddum í Víetnam bregður fyrir sem skuggaverum og handan sögusviðsins í frumskóginum er ekkert. Þetta er lokaður heimur sem lýtur engum lögmálum utan einu — að þrauka. Hrun allrar siðmenningar í þessum heimi veldur því að menn geta ekki reitt sig á félagana. Ellas, fulltrúi hins góða og guðlega brosir við Barnes, persónugerv- ingi hins illa, sem myrðir samherjann köldu blóði. Það bjargar ekki mannlegri reisn, að söguhetjan ntyrðir til að hefna morðsins. Platoon afhjúpar þá skelfilegu hnignun mannlegs siðferðis sem fylgir stríðsátökum. Myndin snýst ekki um dauða einnar millj- ónar Víetnama eða 58.000 Bandaríkja- manna. En er brotthvarf siðmenningar í stríði eitthvað nýtt? Haldast stríð, vald- beiting og siðleysi ekki alltaf í hendur? Þessa dagana erum við stöðugt minnt á ntiskunnarleysi nasista í síðari heimsstyrj- öldinni. Og hverjir réttu gyðingum hjálpar- hönd? David Wyman sagnfræðingur segir í nýlegri bók að verstu afglöp Franklin Roos- evelts Bandaríkjaforseta hafi verið sinnu- leysi hans þegar útrýming á gyðingum var í algleymi í Evrópu. Það má lfta á Platoon, sem var framleidd með fjármagni frá Bretlandi og í óþökk glassúrgengisins f Hollywood, sem áskorun og eggjun að gleyma ekki sögunni og reynslunni. Okkur ber skylda til að hlúa stöðugt að því siðferði sem gerir okkur að mönnum og veitir samviskulausum engan frið. ■ Jón Ásgeir Sigurósson/New Haven s FIM-sýningar aftur í miðbæinn Opna nýjan sýningarsal FÉLAG ÍSLENSKRA myndlistarmanna telur 115 listamenn og er það stærsta og elsta félag myndlistarmanna innan SÍM, Sambands íslenskra myndlistarmanna. Fyrir skemmstu opnaði félagið nýjan sýningarsal við Garðastræti 6 með sýningu verka Krist- jáns Davíðssonar frá 8-16. maí. „Við rákum sýningarsal á Laugarnesvegi í þrjú ár frá 1979 til 82 en vildum alltaf komast nær miðbænum aftur því að fyrsti sýningarsalur félagsins var gamli Listamannaskálinn. Af tilviljun bauðst okkur að kaupa húsnæðið við Garðastræti í sama mund og við fengum tilboð í gamla húsnæðið okkar svo við slógum til og færðum okkur um set, nær miðbæjarmannlífinu,“ segir Eyjólfur Ein- arsson í samtali við ÞJÓÐLÍF en hann er einn stjórnarmanna FÍM. FÍM salurinn verður rekinn með nokkuð öðru formi en aðrir sýningarsalir. „Hver félagsmaður sem vill sýna fær bara lykil að salnum í ákveðinn tíma, sér um sína sýningu sjálfur og við tökum engar prósentur. Þetta er sama fyrirkomulag og var í Gallerí SÚM í gamla daga, nýr valkostur fyrir myndlistar- menn,“ segir Eyjólfur. „Að sjálfsögðu geta utanfélagsmenn líka sótt um sýningartíma. Við höfum sérstaka sýningarnefnd sem veg- ur og metur umsóknir og áformað er að sýningar fari af stað er nær dregur hausti en salurinn verður lokaður í júlí,“ segir hann. Að lokinni sýningu Kristjáns Davíðssonar opnaði Guðrún Svava Svavarsdóttir mál- verkasýningu sem stóð fram í byrjun júní og þann 12. þessa mánaðar tók svo Björgvin Pálsson ljósmyndari við með sýningu verka sem hann hefur unnið með sérkennilegri ljósmyndatækni. Björgvin fékk nýverið sér- stök listamannalaun frá Kópavogsbæ og hef- ur vakið athygli fyrir myndlist sína. ■ Úr FÍM-salnum er sýnlng Guórúnar Svðvu stóft sem hæst. 57

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.