Þjóðlíf - 01.06.1987, Qupperneq 60
L I S T I R
Gorkúlur
og líkamsvessar
Gaman-sorgarleikur
FAY WELDON er einn af virtustu rithöf-
undum á Bretlandi og er fslendingum vel
kunn ekki síst eftir að Dagný Kristjánsdóttir
þýddi bókina Praxis og las í útvarpinu.
Weldon byrjaði feril sinn sem blaðamaður
og skrifaði síðar kvikmynda- og sjónvarps-
handrit. Hún skrifaði m.a. fyrri hlutann af
þáttaröðinni Upstairs, Downstairs, sem
margir muna eflaust eftir. Weldon hefur
skrifað smásögur og var ein þeirra þýdd og
lesin í útvarpi.
Bókin Puffball sem hér verður fjallað um
kom út árið 1980 og er metsölubók eins og
flestar bækur Weldon og ekki að ástæðu-
lausu. Sagan gerist í sveit og borg og fjallar á
listilegan hátt um samskipti manna.
Aðalpersónan, Liffey, tákn nútímakon-
unnar, sem vill lifa og leika sér, frjáls án þess
að taka ábyrgð og þroskast. Hún er borgar-
barn sem dreymir um rómantík sveitasæl-
unnar. í upphafi sögunnar rætist draumur-
inn og Liffey fær að takast á við þann raun-
veruleika sem sveitin býður upp á. Liffey á
sér annan draum, sem hún ákveður að láta
ekki rætast, en það er draumur um að verða
rithöfundur. Tilhugsunin um að sá draumur
yrði að veruleika hræðir hana og henni
finnst þægilegra að halda áfram að láta sig
dreyma. Sveitasælan, sem hana dreymdi um
reynist hins vegar gildra sem hún gengur í og
hún verður ósjálfstæðari og háðari öðrum
um hluti sem hún er vön að ráða sjálf. Það er
dæmigert fyrir Liffey að láta rithöfundaferil
lönd og leið. Hefði hún ekki gert það hefði
hún þurft að opinbera hugsanir sínar og bera
ábyrgð á þeim, en eitt helsta karakter-
einkenni hennar er að leyna hugsunum sín-
um og tilfinningum. Weldon gerir hana á
þann hátt samnefnara fyrir flest nútímafólk.
f upphafi sögunnar erum við kynnt fyrir
tvennum hjónum sem eru aðalburðarásar
sögunnar, þeim Liffey og Richard og sæmd-
arhjónunum Mabs og Tucker. Liffey og Ric-
hard, borgarbörnin, eiga sjö ára hjónaband
að baki og hafa lifað í sælu blekkingarinnar.
Flutningurinn í sveitina markar upphafið að
breytingum í lífi þeirra. Þau öðlast meiri
reynslu og fá tækifæri til sjálfsþekkingar,
sem þau nýta sér reyndar ekki. En með
aukinni þekkingu á lífinu eykst hræsnin og
lygin milli þeirra. Mabs og Tucker,
sveitafólkið, eru í augum borgarbarnanna
ímynd jarðbundins sveitafólks, saklaus og
elskuleg. En lesendur fá strax að kynnast
þeirra réttu hlið. Þau hafa áhuga á borgarbú-
unum eingöngu vegna þess að þau geta grætt
á veru þeirra í sveitinni. Markaðslögmálin
gilda ekki síður í sveitinni en í borginni. í
raun er Mabs nær lögmálum náttúrunnar en
Richard og Liffey grunar. Hún reynist vera
rammgöldrótt og þekkir náttúru grasa,
veðurs og vinda betur en títt er um sveita-
fólk almennt.
Liffey og Richard líta á sig sem heims-
borgara sem þekkja flest og láta sér fátt
koma á óvart. Pótt hún sé 28 og hann 34 eru
þau saklausir krakkakjánar sem þekkja ekki
eigin tilfinningar og afneita öllu sem illt er.
Samskipti þeirra við aðra einkennast af
þessu „sakleysi" og í því felst írónía sögunn-
ar. Aðrir vita meira um kenndir þeirra en
þau sjálf. I sveitinni verður Liffey leiksopp-
ur Mabs og Tucker. í borginni uppgötvar
Richard sér til sárrar hneykslunar, en mikill-
ar nautnar í fanginu á hinni lífsþreyttu Bellu,
að til eru fleiri stellingar í kynlífi en góða
gamla trúboðstellingin.
Ef til vill sjáum við í hjónabandi þriðju
hjónanna, þeirra Bellu og Ray, í hvaða far-
veg hjónaband þeirra Richards og Liffeyar
stefnir. Ray og Bella eru gift af gömlum
vana. Þau leita sér huggunar utan hjóna-
bandsins og afneita þeirri staðreynd að þau
eru að eldast og þarfnast hvors annars. Sam-
ræður þeirra fara fram í stöðnuðum leikjum
og dulbúnum árásum sem þau ein skilja.
Börnin tvö eru hunsuð og alin upp af austur-
ískri au-pair-stelpu.
Gorkúlurnar (puffballs) eru mikilvæg
tákn í sögunni. Liffey uppgötvar þær fyrst og
hana hryllir við þeim. Ein þeirra minnir
hana á magann á ófrískri konu og önnur á
mannsheila. „Ég og Richard1' hugsar hún.
Hann er heilinn og hún er maginn. Hún
verður ófrísk og hana hryllir jafnmikið við
óléttunni og gorkúlunum. Richard sem er
hrifinn af gorkúlunum verður heilinn í sam-
bandinu þegar hann einn þarf að sjá þeim
farborða. Gorkúlurnar skipta Tucker engu,
honum finnst þær ógeðslegar og sparkar í
METSÖLULIS
Bækur á íslensku
eina. Liffey er áhorfandi að því og hugsar
með sér: „Betra að láta bónda sparka í sig en
að láta Bellu og Ray rífa mann í sig.“ Þessi
setning rætist þegar Tucker forærir Liffey,
sem er undir áhrifum „ástardrykks" fra
Mabs. Einnig þegar Bella tælir Richard og
spottar hann og hæðir (hún rífur í sig heil-
ann). Mabs staðhæfir að gorkúlurnar séu
ónáttúrulegar og kallar þær augasteina and-
skotans. Eins og Liffey finnst henni þæf
minna sig á ófríska konu (móður sína) og
reynir að fremja á þeim galdra til þess að
drepa fóstur Liffeyjar.
Tákn bókarinnar eru fleiri, oft margræð,
en alltaf skýr. Weldon skrifar léttan stíl,
tónninn er kíminn og háðskur. Henni tekst
að draga fram mannlegt eðli á írónískan
hátt. Hún sýnir fram á að mannlegir veik-
leikar eru staðreynd sem lesandinn verður
að viðurkenna og vei þeim sem reynir að
afneita því. í rauninni er það ekki borgarlegt
umhverfi eða sæla sveitarinnar sem ráða ör-
lögum manneskjunnar heldur er það líkams-
starfsemi fólks sem ræður mest ferðinni-
Skynsemi, hugvit og galdrar hafa lítið með
örlögin að gera. Manneskjurnar sem l»a
mest eftir höfðinu ráða minnst ferðinni, þvl
það er líkaminn allur sem stjórnar lífinu-
Það er ekki náttúran í sveitinni sem breytir
mannfólkinu heldur náttúran í líkama okkar
sjálfra. Aðalatriðið er að viðurkenna þessa
staðreynd til þess að öðlast frelsi.
Fay Weldon er í senn einhver fyndnasti og
raunsæjasti rithöfundur okkar tíma og henn'
tekst að sanna það í ævintýralegum gaman-
sorgarleik gorkúlanna.
■ Ragnhei&ur Óladóttir
T 1 ÞJÓÐLÍFS
1. Stórbók Þórbergs Þórðarsonar. Mál og menning.
2. íslcnsk lýrik. Mál og menning.
3. Hávamál/Völuspá. Svart á hvítu.
4. Tómas Jónsson metölubók. Guðbergur Bergsson. Forlagið.
5. Kvaeði og greinar. Steinn Steinarr. Vaka/Helgafell.
6. Sagan af brauðinu dýra. Halldór Laxness. Vaka/Helgafell.
7. Myrkraverk. Margit Sandemo. Prenthúsið.
8. Times Atlas. Mál og menning.
9. Gikkur. Svart á hvítu.
10. 100 ára einsemd. Gabriel García Marquez. Mál og menning.
Bækur á erlendum málum
1. A Perfect Spy. John le Carré.
2. A Taste for Death. P.D. James. .
3. Clan of the Cave Bear. Jean M. Auel.
4. Mammouth Hunters. Jean M. Auel.
5. I Tina. Tina Turner.
6. ril take Manhattan. Judith Krantz.
7. The Old Devils. Kingsley Amis.
8. The Endless Crime. Brian Forbes.
9. The Mackson Spies. John Trenhaile.
10. Fatherhood. Bill Cosby.
60