Þjóðlíf - 01.01.1990, Side 21
Curt Hansen (t.h.) nr. 1 hjá Dönum verður einn af liðsmönnum Norðurlandaúrvalsins. Við hlið
hans Danmerkurmeistarinn Mortensen.
fræðingur fram yfir skákina og Englend-
ingurinn Miles sem býr í Þýskalandi hef-
ur aldrei teflt með Könum í sveitakeppni.
Þá hefur Kavalek að mestu lagt taflið á
hilluna. Utan þessa lista eru hinsvegar
ungir menn og framagjarnir, eins og John
Fedorowicz, Joel Benjamin og Max Dlu-
gy. Þeir hafa verið óþreytandi að tefla fyrir
heimaland sitt undanfarin ár og verða að
líkindum allir með í Reykjavík. Þeir eru
nú 10-20 stigum á eftir þeim Rohde og
Christiansen, ásamt fjölda annarra skák-
manna og gætu eins víxlað við þá sættum á
nýja stigalistanum. Þá má ekki gleyma
þeim gamla ref Lev Alburt. Hvort hann
verður í náðinni hjá skáksambandinu er
óvíst og enn síður hægt að spá um stöðu
fjárhættuspilarans með langa nafnið
Dzindzichashvili. Hann er með skuldugri
mönnum og var fyrir ári síðan þurrkaður
út af skákstigalistanum vegna skulda við
sambandið; í raun settur í algert beruf-
sverbot. Fleira mætti tína til en því verður
slegið föstu hér að bandaríska sveitin
muni koma á óvart í keppninni, á einn veg
eða annan.
Forvitnilegasta sveitin er vitaskuld sú
norræna. Um þrjú efstu borðin ræður
varla nokkur vafi, en mjög óvíst er um röð
næstu manna, sem öllum hefur gengið
fremur brösuglega á síðari hluta ársins,
nema helst Helga Ólafssyni. Líklega tefla
þeir Jóhann á 4. og 5. borði. Þátttaka
Larsens er óviss, enda búsettur í Argen-
tínu. Víst er að Curt Hansen mun hækka
á listanum og forvitnilegt verður að sjá
hvort Jón L. Árnason, sem nú er 11. á
listanum, muni fá sæti í sveitinni. Af öðr-
um sem helst koma til greina má nefna
Svíana Wedberg og Karlsson (sem þó sit-
ur líklega heima — þjáist af flughræðslu!)
og Finnann Yrjöla.
Englendingar tefla fram mjög sterkum
mönnum á efstu borðum en breiddina
skortir. í valinu um sæti á neðri borðum
eru margir kallaðir og gætu orðið nokkrar
breytingar á því sem hér er sýnt. Hinn 17
ára gamli Adams sem nú er yngsti stór-
meistari í heimi er á hraðri leið upp stiga-
listann og mun væntanlega sitja á 5. borði.
Líklegt er að Hogdson verði í liðinu, en
hann vakti mikla athygli á Fjarkamótinu í
fyrra fyrir afburða fjöruga taflmennsku.
Óvíst er um þátttöku Mestels og hið sama
má segja um hinn landflótta rúmenska
stórmeistara Suba, en hann er ekki bein-
línis í náðinni hjá íslenskum skákmönnum
eftir ljótan grikk sem hann gerði þeim á
ólympíumóti fyrir 11 árum. í stað þeirra
gætu komið inn í liðið menn eins og Willi-
am Watson og David Norwood, ungir
menn á framabraut. Það er raunar í sam-
ræmi við snaran framgang Englendinga á
skáksviðinu, að nánast allir liðsmenn
sveitarinnar eru undir þrítugu. Undan-
tekningarnar eru að þeir Speelman og
stærðfræðiprófessorinn Nunn sem þó er
hvorugur hálfnaður í fertugt.
Sjónir manna í skákheiminum munu
enn sem oftar beinast til Reykjavíkur
meðan á þessari nýstárlegu keppni stend-
ur. Margir keppenda munu dvelja hér
áfram og taka þátt í 15. Alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótinu sem hefst strax að fjór- veldakeppninni lokinni. Gæti það orðið öflugasta Reykjavíkurmót frá upphafi. Það er alltént ljóst að íslenskir skákunn- endur eiga skemmtilega útmánuði í vænd-
um.
Sovétríkin (2636)
1. Garrí Kasparov 2775
2. Vasilí ívantjúk 2660
3. Valerí Salov 2645
4. Mikaíl Gúrevits 2640
5. Alexander Beljavskí 2620
6. Jaan Ehlvest 2620
7. Artúr Júsúpov 2610
8. Sergei Dolmatov 2610
9. Andrei Sókolov 2595
10. Bóris Gelfand 2590
USA (2570)
1. Boris Gulko 2605
2. Yasser Seirawan 2585
3. Nick de Firmian 2585
4. Michael Wilder 2575
5. Anthony Miles 2570
6. Sergei Kudrin 2570
7. Lubosh Kavalek 2560
8. Walter Browns 2555
9. Larry Christiansen 2550
10. Michael Rohde 2550
Norðurlönd (2561)
1. Ulf Andersson (S) 2635
2. Simen Agdestein (N) 2605
3. Margeir Pétursson (í) 2590
4. Ferdinand Hellers (S) 2560
5. Jóhann Hjartarson (í) 2555
6. Helgi Ólafsson (í) 2545
7. Harry Schussler (S) 2540
8. Bent Larsen (D) 2530
9. Curt Hansen (D) 2525
10. Lars Bo Hansen (D) 2525
England (2551)
1. Nigel Short 2660
2. Jon Speelman 2615
3. Murray Chandler 2585
4. John Nunn 2575
5. Julian Hogdson 2535
6. Jonathan Mestel 2520
7. Mark Hebden 2520
8. Michael Adams 2505
9. Mihai Suba 2500
10. Daniel King 2495 0
ÞJÓÐLÍF 21