Þjóðlíf - 01.01.1990, Síða 25
Umhverfíseftírlit verður stórhert.
VÍKINGASVEIT
í UMHVERFISVERND
Fyrir flokk jafnaðarmanna skiptir höf-
uðmáli að hverjar kosningar snúist
um efnahags- og félagsmál eða þætti þeim
tengdum. Gildir þetta raunar um alla
flokka er við verkalýð vilja kenna sig. Þá
þarf lítt að óttast klofning í eigin röðum og
áróðurslega standa jafnaðarmenn þar
sterkt að vígi því trúlega eru þeir Svíar fáir
sem í alvöru álíta efnahagsmálum Svíþjóð-
ar illa stjórnað. I ljósi þessa, er hin algera
eining sem ríkir um grundvallaratriði
sænskrar utanríkismálastefnu mikilvæg.
Deilur þar um væru jafnaðarmönnum
varla til góðs. Mikilvægi þessa atriðis sást
vel þegar væringar voru hér með mönnum
sökum kjarnorkunnar.
Einu skiptin sem innri einingu flokks-
ins hefur verið alvarlega ógnað var þegar
deilt var um hvort Svíar ættu að fá sér
kjarnorkuvopn og síðan þegar deilt var
um friðsamlega notkun kjarnorkunnar.
Jafnaðarmenn töpuðu kosningunum 1976
og 1979 en í þeim báðum var tekist á um
framtíð kjarnorkunnar. Þetta mál veldur
enn vandræðum innan raða jafnaðar-
manna. Þó var helsti broddurinn dreginn
úr með þeim snjalla leik að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu og ekki hvað síst með
því að bjóða kjósendum þrjá möguleika í
stað tveggja. Er það bragð sem jafnaðar-
menn hafa áður beitt með góðum árangri.
Var það 1957 er deilt var um svokallaðan
viðbótarlífeyri (allman tillaggspension,
ATP). Raunar var öll stjórnlist jafnaðar-
manna þar með þvílíkri snilld að nota
mætti í skólabækur.
Hin langa valdaseta jafnaðarmanna í
Svíþjóð hefur ekki haft í för með sér nein-
ar slíkar kerfisbreytingar er menn vilja
tengja sósíalisma. Einkaeign er hér með
blóma, fyrirtæki stórgræða og njóta stuðn-
ings ríkisvaldsins þegar á þarf að halda.
Athuganir meðal forstjóra og fyrirtækis-
eigenda sýna einnig, að þeir telja eigin hag
og Svíþjóðar best borgið með valdasetu
jafnaðarmanna þó þeir kjósi oftast aðra
flokka. Ein ástæðan er vitanlega sú að
vinnufriður er mun líklegri ef jafnaðar-
menn stjórna en borgarar. En þó svo engar
grundvallarbreytingar hafi átt sér stað
mun óhætt að fullyrða að almenningur í
Svíþjóð býr við meira afkomuöryggi en
þekkist annars staðar á vesturlöndum.
Jafnframt búa menn við lýðræði sem trú-
lega er meira en gengur og gerist og eru
jafnframt stöðugt í gangi umræður um
hvernig megi auka það og breikka. Stóran
hluta af heiðrinum þar af geta sænskir
jafnaðarmenn eignað sér.
0
í Noregi eru uppi áform um stórhert
eftirlit með því að umhverfisverndar-
lögin séu virt. Umhverfisverndarráð-
uneytið hefur fengið verulega aukna
fjárveitingu á fjárlögum, og dómsmál-
aráðuneytið ætlar að stofna sérstaka
víkingasveit lögreglu sem hægt verður
að kalla út til aðgerða með stuttum
fyrirvara. Alls er fyrirhugað að eyða á
næsta ári um tveimur milljörðum
norskra króna til umhverfisverndar-
mála.
Bætt verður við 125 nýjum stöðum
innan lögreglunnar, og eru flestar stöð-
urnar ætlaðar til að framfylgja lögum um
umhverfisvernd. Umhverfislöggæslan
verður búin útbúnaði til mengunarmæl-
inga og hávaðamælinga. Sérstaklega er
fyrirhugað að fylgjast grannt með að
flutningabílar fylgi mengunarákvæðum
umhverfisverndarlaganna, en flutningar
eiturefna, eldsneytis og annarra hættu-
legra efna verður líka gaumgæfður.
Víkingasveitin verður væntanlega til-
búin til átaka næsta vor, og mun einbeita
sér að eftirliti á þéttbýlissvæðum, þar
sem þungaflutningar og iðnaður geta
valdið mengunarslysum. Mengunareft-
irlitið (STF) fær 10 nýjar stöður í sér-
stakri deild, MUP (miljöuppklarinsen-
heten), sem ætlað er að eltast við um-
hverfisverndarbófa með snöggum
aðgerðum, án íþyngjandi skriffmnsku.
Mikilvægustu verkefni deildarinnar
verða að ráðast til aðgerða gegn síbrota-
mönnum í iðnaði og að gera skyndikann-
anir hjá þeim sem grunaðir eru um
mengunarbrot. Þá mun MUP standa
fyrir viðbúnaði ef stórslys verða sem
skaðað geta umhverfið, svo sem olíulek-
ar og eldsvoðar. Deildin mun líka sjá um
símavörslu og taka við ábendingum frá
almenningi um brot á umhverfisvernd-
arlögunum.
Mengunareftirlitið er ekkert að leyna
því að vinnubrögð þess í framtíðinni
munu svipa til aðgerða Greenpeace og
Belladonna (herská norsk samtök um-
hverfisverndarmanna). Munurinn verð-
ur helst sá að MUP og SFT ætla að fylgja
málum betur eftir innan dómskerfisins
en Greenpeace hefur gert — og auðvitað
líka að MUP og víkingasveitin eru hluti
framkvæmdavaldsins og njóta trausts og
stuðnings á æðstu stöðum. Sama verður
ekki sagt um herská samtök umhverfis-
verndarmanna, en það á eftir að koma í
ljós hvort víkingasveitin leysi Green-
peace og Belladonna af hólmi í Noregi.
Byggt á Ny Teknik
ÞJÓÐLÍF 25