Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 28

Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 28
ERLENT Eldri konur í tísku Víöa í erlendum fjölmiölum hefur verið fjallaö um þá tískubylgju aö ungar konur giftist körlum sem eru 10 til 20 árum eldri en þær. Þjóðverjar virðast vera aö snúa á þessa bylgju. Ný rannsókn leiöir í Ijós, aö samband eldri kvenna viö mun yngri karla sé mun betra en jafnaldrasam- bönd og hjónabönd af þeim toga fari mjög fjölgandi. Fyrir tíu árum voru 13% allra hjóna- banda í V-Þýskalandi þannig aö konan var eldri en karlinn. Nú hafa hlutfölin breyst þann- ig konum í hag, aö hjónabönd þar sem konan er eldri eru orðin 17% allra hjónabanda. Og þaö sem meira er, vís- bendingar gefa til kynna að þannig sambönd séu mun fleiri án þess aö hafi verið stofnað til formlegs hjúskap- ar. í fjölmiðlum eru oft tekin dæmi úr heimi fræga fólksins; bandaríski kvikmyndaleikar- inn Tom Cruise sem er átta árum yngri en eiginkona hans Mimi Rogers, rokksöngkon- an Tina Turner 50 ára með 17 árum yngri manni, leikkonan Ursula Andress 53 ára á met- iö meö 23 ára gömlum manni, Tina Turner og Erwin Bach. sem hún hefur búiö lengi með, Elisabeth Taylor 57 ára meö hinum 37 ára gamla Lar- ry Fortensky. „Konan færir inn í sambandið þaö sem vegur upp á móti æskunni; visku og vald. Þess vegna nýtur hún virðingar“, segir Ursula Richter, sem rannsak- að hefur svona sambönd og býr sjálf meö 14 árum yngri karli. Fólk sem ekki nýtur frægöar fer ekki mjög hátt meö slík sambönd, því þau eru þrátt fyrir allan fjöldann fremurtortryggð. Þaö kostaði Edith Piaf árið 1962 mikinn kjark og fórnir aö giftast 20 Ritskoðarar í ham Ritskoöaöarar í Kína hafa meira en nóg aö gera viö aö koma höndum yfir ritmál frá útlöndum, þar sem grunur liggur á aö viðkomandi papp- írar búi yfir skrifum meö „borgaralegu frjálslyndi" eöa jafnvel „gagnbyltingarsinnuð- um greinum". Vegna þess að Stærsta guðshúsið Felix Houphouet-Boigny 84 ára, forsætisráöherra Afríku- lýöveldisins Fílabeinsstrand- ar hefur reist sér minnis- varöa. í 250 kílómetra fjar- lægö frá höfuðborginni Abijdan reis stærsta róm- versk-kaþólska guöshús í Afríku. Þar geta 18 þúsund manns beðist fyrir í einu. Jó- hannes Páll páfi mun vígja húsið í janúar. Kostnaður nemur um 4600 milljónum ís- lenskra króna. tímarit eru boðin til sölu í al- þjóðlegum hótelum, hafa tímarit eins og Newsweek, Time og Spiegel oftsinnis verið gerö upptæk eða blað- síður rifnar úr þeim og sverta sett yfir sumar greinar og myndir. Ritskoðararnir eiga hins vegar erfiöara meö aö ráöast gegn „afturhalds- áróöri" sem berst meö símrita (telex og þ.h.). Þess vegna hafa fyrirtæki og stofnanir fengið fyrirskipanir um aö senda grunsamlegar send- ingar til yfirferðar hjá ritskoö- ara. Útlendingar í Kína hafa einnig verið varaöir viö. í yfir- lýsingu frá stjórnvöldum seg- ir: „Þaö verður aö bæta upp- eldi verslunarmanna og ann- arra útlendinga í Peking, og koma þeim í skilning um hvaö er bannað...“ (Byggt á Spiegel — óg) Listmálarinn Hsu Hsiao-dan var i framboði til þingsins í Taiwan fyrir Verkamannaflokkinn ífyrstu kosningunum sem þar eru haldnar eftir að stríðsástandi var aflétt árið 1987. I kosningabaráttunni hafði þessi þrítuga stúlka sem er lærður sagnfræðingur m.a. afrekað að aflétta klæðum af öðru brjósti sínu og þannig svipað til annars stjórnmála- manns — á Ítalíu, Ilonu Stalker. En Hsiao-dan þótti ekki einungis athyglisverður frambjóðandi vegna frjálslegrar kosningabaráttu, held- ur ekki síður vegna pólitískrar afstöðu sinnar; hún barðist fyrirlýðræði, fjölþáttaþjóðfélagi og frelsi listarinnar. Ahugi hennar og virkni ípólitík hófst þannig, að hún var handtekin vegna þátttöku i listrænni uppá- komu (performans) þarsem hún kom fram nakin. Hún hétþvíað efhún næði kjöri íkosningunum myndi hún fækka fötum opinberlega. Hvorki hafa borist fregnir né myndir afþvíhvort hún náði kjöri... 28 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.