Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 29
Þekktur
Græningi til
krata
Einn þekktasti þingmaöur og
forystumaður Græningja um
langt árabil, Otto Schilly 57
ára lögfræðingur, hefur nú
yfirgefið grænsku fylkinguna
og verður frambjóðandi sós-
íaldemókrata í næstu þing-
kosningum. Hann var valinn
með yfirgnævandi meirihluta
fyrir SPD- deild í Bæjaralandi,
sem frambjóðandi. Félagarn-
ir þar eru mjög stoltir af hinum
nýja liðsmanni, sem er lands-
þekktur þar fyrir heillandi
málafylgju í sjónvarpi, og er
reyndar meðal þeirra þýskra
stjórnmálamanna sem getið
hafa sér gott orð á erlendum
vettvangi. Hann varð fyrst
þekktur í tíð ”68 óeirðanna í
V-Berlín þar sem hann starf-
aði með mönnum eins og
Rudi Dutschke. Síðar meir
var hann lögmaður hryðju-
verkafólks án þess þó að
vera sakaður um þátttöku í
slíku. Hann þykir afburða
góður fagmaður meðal lög-
manna og er talinn hafa átt
ríkulegan þátt í velgengni
Græningja á sínum tíma. Þar
var hann hins vegar sakaður
um að vera málamiðlunar-
maður og krati. Sjálfur viður-
kennir hann að hafa alltaf
verið sósíaldemókrati í sér.
Framboð hans fyrir SPD í
næstu kosningum kemurekki
verulega á óvart, því þróun
Ottos frá Græningjum og
reyndar margra fleiri hefur
farið fram fyrir opnum tjöldum
á síðustu misserum...
Elisabeth Talor og Larry Fortensky.
árum yngri manni og almenn-
ingsviðhorfið gamalkunna
breytist hægt í þessum efn-
um. Fólk í þessum sambönd-
um segir sögur af ótrúlega
harkalegum viðbrögðum
annarra fjölskyldumeðlima
þegar samböndin byrja. En
þjóðfélagsfræðingurinn sem
vann að rannsókninni fullyrð-
ir, að ef svona sambönd kom-
ast yfir viðbrögðin og fyrstu
erfiðleikana reynast þau ótrú-
lega farsæl. Samlífið reynist
þá einnig mun hamingjurík-
ara en algengari sambýlis-
form...
Fátækt í
ísrael
Rúmlega tíu prósent af 4.5
milljónum íbúa ísraels lifa
undir fátæktarmörkum. Það
sem þykir sérstaklega
óhugnanlegt í þessu ríki sem
vill kalla sig velferðarríki er,
að á meðal hinna fátæku eru
223 þúsund börn. Útreikning-
ar þessir eru miðaðir við ein-
staklingstekjur í landinu; þeir
sem hafa helmingi minni tekj-
ur en meðaltekjur teljast fá-
tækir í ísrael. Hjá fjölskyldu
með tvö börn liggja fátæktar-
mörkin við 1235 schekel.
Tryggingastofnun ríkisins
studdi fátækar fjölskyldur
með 5.8 milljörðum schekel.
Ef sá stuðningur væri tekinn
frá, væru 20% þjóðarinnar
undir fátæktarmörkum...
(Byggt á Spiegel — óg)
Brjóstastækkun með silikoni.
Silikonbrjóst hættuleg
Þúsundir kvenna hafa brugð-
ið á það ráð að láta stækka
brjóst sín með silikoni. Það
getur orðið hættulegt. Lækn-
ar við háskólann í Pennsylv-
aníu í Fíladelfíu í Bandaríkjun-
um upplýsa nú konur sem
vilja fara í slíka aðgerð að þær
geti hugsanlega notið þess í
einungis sex til fimmtán ár.
Þá færu ýmsar aukaverkanir
að koma í Ijós; ýmiss konar
gigtarsjúkdómar, sársauki í
maga og þörmum og ýmis-
legt fleira er tiltölulega al-
gengt. í rannsókn á fjórum
konum á aldrinum 43 til 63
ára, sem höfðu látið fjarlægja
silikonið, kom einnig í Ijós að
aukaverkanirnar héldu
áfram. Læknarniróttast aðtil-
fellum sjúklinga með slíkar
aukaverkanir muni fara fjölg-
andi á næstunni...
(Byggt á Spiegel — óg)
Krabbameins-
valdur
Bandarískir vísindamenn
hafa rannsakað tíðni krabba-
meins meðal fyrrum starfs-
manna við pappírsgerð fyrir
Kentsígarettufiltera. Af þeim
33 mönnum, sem störfuðu
við þessa iðju á sjötta ára-
tugnum eru 28 þegar látnir.
Samkvæmt upplýsingum
Kent-sígarettuverksmiðjunn-
ar voru framleiddar 9,8 millj-
arðar af þessum hættulegu
sígarettum fram til ársins
1956 að framleiðslu þeirravar
hætt.
ÞJÓÐLÍF 29