Þjóðlíf - 01.01.1990, Qupperneq 34

Þjóðlíf - 01.01.1990, Qupperneq 34
FLOKKAKERFIÐ ER RAMMGALLAð OG ÚRELT EINAR HEIMISSON MENNING Helgi Sœmundsson fyrrverandi ritstjóri Alþýðublaðsins og formaður Menntamálaráðs: Öll skynsemi mœlir með því að sameina Alþýðuflokkinn og Alþýðubandalagið og það er óskynsamlegt að segja fólki að það sé ekki hœgt. — Ég er fæddur austur í Flóa á Stokks- eyri, 17. júlí 1920. Ég var næstyngstur systkina minna og varð fljótt heilsulítill í æsku. Þetta heilsuleysi markaði uppvöxt minn því ég gat til dæmis ekki gengið í barnaskóla eins og önnur börn eða sinnt leikjum og störfum eins og þau. Slíkt verður til þess að maður lokast dálítið inni í sérheimi, sem í mínu tilviki voru bók- menntir. Þegar ég var fimmtán ára flutt- um við frá Stokkseyri til Vestmannaeyja og þar gekk ég í gagnfræðaskóla. Ég hafði aldrei gengið í skóla fyrr og þegar ég tók fullnaðarpróf úr barnaskóla var það í fyrsta sinn sem ég kom inn i skólahúsið. — Síðan gekk ég í Samvinnuskólann, lauk þaðan prófi 1940, og var eftir það lausamaður á ýmsum stöðum í Reykjavík. Ég hafði í huga að fara norður á Akureyri og taka inntökupróf í Menntaskólann þar en þetta voru umbrotatímar, byrjun stríðsins, margt á hverfanda hveli og líka hjá mér. Ekkert varð þess vegna af því að ég færi norður. Fljótlega eftir þetta hófust afskipti Helga af blaðamennsku. — Ég ræðst á Alþýðublaðið 1943 af til- viljun til þess að starfa þar sem blaðamað- ur og var þar síðan fram til ársins 1959 þar af ritstjóri síðustu 3 árin. Þá flyst ég yfir til Menningarsjóðs og hef starfað hjá útgáf- unni þar síðan, meðal annars sem ritstjóri Andvara. Helgi Sæmundsson stóð nærri Fram- sóknarflokknum á unglingsárum en gekk til liðs við Félag ungra jafnaðarmanna í stríðslok. — Ég fór að hafa veruleg afskipti af stjórnmálum í lok síðara stríðs í Félagi ungra jafnaðarmanna. Það var 1946 að mig minnir. Félagið hafði þá verið í lægð um nokkurra ára skeið. En jafnhliða afskiptum Helga Sæ- mundssonar af stjórnmálum varð hann ötull talsmaður Alþýðuflokksins á sviði menningarmála. — Á Alþýðublaðsárunum gerðist það að ég fór að skrifa um bækur. Ég hafði alltaf verið hneigður til bóka, allt frá upp- vaxtarárum. En þarna barst ég inn í þessi svokölluðu menningarmál, sem var nú að- allega fólgið í því að ég var lengi í úthlut- unarnefnd listamannalauna og um langt skeið formaður Menntamálaráðs. Hvaða skoðanir hefur Helgi á stefnu stjórnvalda í menningarmálum? — Það er mikilsvert að hægt sé að setja listamenn í þá aðstöðu að þeir geti starfað á besta hluta ævinnar án þess að vera of háðir afkomunni. Það gleymist stundum að til eru verðmæti í þjóðfélaginu, sem ekki koma peningum beinlínis við, og margir sækjast eftir, sem betur fer. Mér finnst aðalatriðið alltaf átt að vera það að menn hefðu góða starfsaðstöðu á þeim hluta ævinnar, sem skilar mestum ár- angri. Ég held að það sé óhjákvæmilegt í okkar þjóðfélagi að líta á það hverjir geta lifað af listum og menningu. Auðvitað er það einn mælikvarði að listaverk nái til fólks og verk þeirra seljist en það er ekki eini mælikvarðinn. Mér finnst annars um- ræða um þessi mál vera of lítil. Ég var í úthlutunarnefnd listamannalauna í 22 ár og mér finnst sem það hafi alls ekki verið rætt nógu mikið hvernig slíkri fyrir- greiðslu skuli hagað. Eiga til dæmis þeir, sem starfa að fullu og öllu við sína list, að fá meiri laun en aðrir? Um það mætti deila þótt mér finnist sjálfum að svo ætti að vera. En nú berst talið á ný að pólítískum afskiptum Helga Sæmundssonar: — Ég hef ekki þeyst eins mikið til í pólítík og sumir halda. Ég hef hálfgerðan ímugust á mönnum, sem breyta stöðugt um lífsviðhorf. Ég hef alltaf talið mig jafn- aðarmann en ekki haft samleið með Al- þýðuflokknum nema að mjög litlu leyti undanfarin ár eða allar götur síðan 1974. Mér finnst ástæða til að rannsaka hvers vegna sá flokkur og vinstrihreyfingin í heild í landinu hefur ekki skilað þeim ár- angri, sem vonir stóðu til í upphafi. Finnst þér árangur vinstri manna minni hér en annars staðar á Norður- löndum? — Já, alveg tvímælalaust, í sköpun þjóðfélagsins. Eru menn ekki í pólítík til að hafa áhrif á það? — Við höfum auðvitað gert hluti, sem eru góðir og gildir en samt held ég að við séum skemmra á veg komnir en á Norður- löndum, þar sem jafnaðarmannaflokkar hafa náð gífurlegum árangri. Velferðar- ríkið hér held ég sé miklu veikara en þar og í öðrum efnum erum við ennþá aftar á merinni. Þar á ég til dæmis við að lýðræði í efnahagsmálum og atvinnurekstri er meira þar en hjá okkur. Við erum hér til 34 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.