Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 36

Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 36
MENNING aM^M^^iiiiiiBaiBBMlllBM þótt mér þyki ljóst að leiðtogi verður að vera til staðar. Hversu erfitt hefur ekki verið að finna mann, sem verið hefur for- ingi vinstrimanna eins og til dæmis Ólafur Thors fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Núna höfum við tvo jafnaðarmanna- flokka á íslandi, Alþýðuflokk og Alþýðu- bandalag. Hvað er hægt að gera í þeirri pólítísku stöðu? — Ég held að vinstristefnan sé áhrifa- meiri á íslandi en lítur út fyrir á yfir- borðinu. í samtökum eins og Kvennalist- anum og Framsóknarflokknum er auðvit- að mikið af vinstrihugmyndum. Bilið milli Alþýðuflokks og Alþýðubandalags er minna en fyrir 10 árum. Er hægt að sameina þessa flokka? — Ég held að það sé alveg hægt að gera það. Það væri ekkert meira mál en þegar Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður. Við skulum muna það að Sjálfstæðisflokkur- inn varð þannig til að tveir nokkuð ólíkir flokkar, Frjálslyndi flokkurinn og íhalds- flokkurinn, runnu saman. Öll skynsemi mælir með því að sameina Alþýðuflokk- inn og Alþýðubandalagið og það er óskyn- samlegt að segja fólki að það sé ekki hægt. Mál eins og herstöðin eru núna minna Ég held að vinstri stefna á íslandi sé áhrifa- meiri en virðist í fljótu bragði. atriði en áður. Annars gætum við skrifað heila bók um það mál. Umræður um her- stöðina hafa verið á lágu plani hér á íslandi og verða sennilega enn um sinn. Ég var mjög andvígur því að ísland yrði gert að herstöð. Mér var sú stefna andvíg að hverfa frá hludeysisstefnu á sínum tíma. Hins vegar hef ég ekki sömu viðhorf í þessum efnum og sumir þeir, sem ætla mætti að ég væri sammála. Herinn er hér ekki vegna íslands heldur Bandaríkjanna. Núna verðum við að treysta á breytíngarn- ar í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum og vona að þær verði til þess að herinn hverfl héðan á braut. Hefur okkur alltaf skort nútfmalega stjórnmálaleiðtoga? — Ég er nú ekki viss um það. Við höf- um átt stjórnmálaleiðtoga, sem ástæða var til að binda vonir við. Þeir fengu hins vegar aldrei þá aðstöðu, sem hefði verið, ef þeir hefðu starfað í stórum og sterkum flokki. Héðinn Valdimarsson var dæmi um slíkan leiðtoga. Of fáir hæfir menn taka núorðið þátt í stjórnmálum og þar á flokkakerfið óefað sök að máli. Það er rammgallað, úrelt og leiðinlegt. Stjórnmál hér eru skítug og margir góðir menn vilja ekki taka þátt í slíku. Það er miklu væn- legra til árangurs að leggja fyrir sig önnur störf en á sviði stjórnmála, sagði Helgi Sæmundsson að lokum. 0 Þú getur treyst okkur KRISTINN SVEINSSON og starfsmenn Vagnhöfða 27 Símar 686431 74378 672877 45 ára reynsla tryggir gæöin

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.