Þjóðlíf - 01.01.1990, Side 42

Þjóðlíf - 01.01.1990, Side 42
Billy Joel: Stormfront Ferskir vindar Píanóleikarinn og söngva- smiðurinn Billy Joel hefur í gegn um tíðina samið mörg ágætis lög, t.d „Piano Man“, „Just the way you are“, „My Life“og fleiri. Þetta eru þó allt saman lög frá seinni hluta síð- asta áratugar. Á þessum áratug hefur frægðarsól kappans hinsvegar hnigið nokkuð, en á nýju plötunni blæs hann fersk- um vindum að hlustendum. Það eru mörg prýðislög á plöt- unni sem undir öllum eðlileg- um kringumstæðum ættu að kæta gamla aðdáendur kapp- ans. Bless: Melting Nærri hundrað prósent Það hefur alltaf verið stórvið- burður í íslenskri rokktónlist, að mínu mati, þegar hljóm- sveitir með Gunnari Hjálm- arssyni, í þessu tilfelli Bless, gefa út plötur. Drengurinn er án efa einn sérstæðasti pers- ónuleikinn innan rokkbrans- ans hérlendis og gott ef ekki með magnaðri rokklagasmið- um samtímans. Hin nýja plata Bless heitir Melting og á henni eru sjö lög, öll eftir Gunnar H. Þar af er eitt þeirra, „Nothing ever happens in my Head“ með enskum texta. Það eru tvö atriði sem eru þess valdandi að þessi plata er nokkuð öðruvísi en annað efni frá Bless. Nú heyrist í fyrsta skipti í kassa- gítar í tónlist sveitarinnar og annað, sem eru „jassbreik“ Birgis Baldurssonar trymbils (einn sá besti í dag) í byrjun lagsins Aleinn í b/d:„Aleinn í bíó/ekkert hljóð/bara suð úr tækjum og myndin á/aleinn í bíó/alheimur/ég fæ mér nýja grímu í myrkrinu“. „Melting“ er hreinræktuð rokkplata, af henni geislar frumkraftur rokktónlistar, enda eru hér eingöngu notuð frumhljóðfæri rokksins; trommur, gítar og bassi, sem Ari Eldon spilar á af miklum móð. Platan er tekin upp í tveimur hljóðverum; í Stúdíó Bjartsýni með Sveini Kjartanssyni og Þór Eldon og Hljóðrita en upptakari þar var Heimir Barðason, fyrrum meðlimur Jonee Jonee. Hljóðritalögin brjú eru miklu hrárri, en hin fjögur hafa „fínni“ áferð. „Algjör þögn“, síðasta lag plötunnar er eitt þessara „fínni“ laga og ég full- yrði það hér og nú að þetta lag er það besta sem ég heyrði á árinu 1989. Frábært lag, and- gítarsóló og söngur Gunna hreinlega bræðir hjarta mitt! Frammistaða Bless á „Melt- ingu“ er nærri því hundrað prósent, íslenskt rokk gerist varla betra, hlustið og sann- færist. HLJÓMPLÖTUR Kanadísk tónlistargyðja deildarhringinn og kynna þér nýja söngkonu mæli ég heils- hugar með þessari kanadísku tónlistargyðju. Keyptu nýj- ustu plötuna, gömlu plötuna, keyptu allt sem þú finnur með þessari snjöllu tónlistarskáld- konu. Kona er nefnd Jane Siberry. Tónlistarkona, ættuð frá Kan- ada, og ekkert venjuleg sem slík. Árið 1987 sendi hún frá sér sína fyrstu breiðskífu sem bar heitið The Walking. Fékk platan sú mikið lof gagnrýn- enda og ekki að ástæðulausu. Demanturinn sem hún færir okkur núna er þvílíkur kosta- gripur að platan sú fer á fóninn minn eiginlega jafnoft og ég skipti um sokka, eða nær dag- lega. Jane Siberry er einfald- lega frábær söngkona og tón- skáld, lagasmíðarnar spanna nánast allt litróf formsins, ang- urværar ballöður (La Jalouse), magnþrungnar tónsmíðar (Half Angel, Half Eagle), og allt þar á milli. Um textasmíð- ina má segja það sama, það skiptir ekki máli hvort hún yrkir um hundinn sinn, nátt- úruna, öfundina eða fegurð- ina, allt ber að sama brunni; Jane Siberry er snillingur og ekki spillir fyrir henni sam- starfsfólkið sem er allt úrvals hljóðfæraleikarar. Ef þú, les- andi góður villt víkka sjón- 42 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.