Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 49

Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 49
MENNING ÁRBÓK UM ÞJÓÐMÁL Ný árbók um félagsvísindi komin út ÞJOÐMAL * V* t f ,1 ** 1 X. J + ' f r Arbók um samfélagsmál nm Út er komin árbók um þjóðmál sem Út- gáfufélag félagshyggjufólks og Félags- og hagvísindastofnun Islands gefa út. I ritnefnd eru Fannar Jónsson, Gestur Guðmundsson, Ivar Jónsson, Jóhannes Ágústsson, Ragnar Karlsson og Þórður Gunnar Valdimarsson. í formála segir að með útgáfunni sé verið að leitast við að fullnægja brýnni þörf fyrir vettvang gagnrýnnar fræðilegrar umræðu um málefni íslensks samfélags og vinna slíkri umræðu þegnrétt. Ritstjórnin er ómyrk í máli í formálan- um, þar sem sagt er m.a.: „í landinu eru ekki stundaðar neinar hagrannsóknir að gagni. Kenningarleg umræða er stöðnuð og byggir á úreltum kenningum sem koma að litlum notum við greiningu á íslenskum aðstæðum. Jafnframt hefur Seðlabanki fs- lands óeðlilega mikil áhrif á hagfræðilega umræðu með tökum sínum á eina hag- fræðitímaritinu í landinu sem eitthvað kveður að, þ.e. Fjármálatíðindum. Áherslusvið Seðlabanka eru f.o.f. á sviði peningamála og því er hægrisinnuð pen- ingamálaumræða og einfeldningslegar kenningar um íslenskt efnahagslíf ríkj- andi í hagfræðilegri umræðu hér á landi.“ í bókinni eru greinar um æskulýðsrann- sóknir og verkmenntun íslendinga eftir Gest Guðmundsson, en hann vinnur nú að doktorsritgerð um þetta efni. Þá er grein eftir ívar Jónsson um félagsleg eignarform gegn einkavæðingu. Þýddar greinar eru eftir Cynthiu Cockbum; Stéttaátök, hagsmunasamtök og viðhald karlveldis í þýðingu Aðalheiðar Eiríksdóttur og um ritvinnslu og breytingar á karlveldisstjórn skrifstofunnar eftir Jane Baker og Hazel Downing í þýðingu Grétu Elínar Guð- mundsdóttur. Þá er í bókinni langur kafli á enskri tungu eftir ívar Jónsson,,, Heg- emonic politics and capitalist restructur- ing“. í formála bókarinnar er sagt að reynt verði að birta efni ritsins á íslensku, „en það verður þó ekki skilyrði“. Við spurð- um Gest Guðmundsson einn aðstandenda útgáfunnar hvort það væri ekki einn helsti tilgangur ritsins að gefa lesendum tæki- færi til að lesa fræðilegt efni á íslensku máli. „Jú vissulega er það einn megin til- gangurinn, en því verður ekki alltaf við komið, þannig að í þetta skipti urðum við að láta það gott heita að birta einn kafla á ensku. Hér er þó aðeins um einn kafla að ræða, eins konar bókarauka, og ég vonast til að í framtíðinni verði allt efni ritsins á íslensku". Haustið 1990 er áformað að næsta rit komi út og þá er ætlunin að megin þemað verði „jafnaðarstefna á krossgötum“. Fjallað verður sögulega um jafnaðarstefn- una og skipulagsform hennar á íslandi, og framtíðarhlutverk hennar í gjörbreyttum heimi. -óg SENDIBÍLASTÖÐIN HF. BORGARTÚNI 21 áS SlMI 25050 S REYKJAVÍK ÞJÓÐLÍF 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.