Þjóðlíf - 01.01.1990, Síða 57
Akio Moríta forstjórí Sony. Bandarikjamenn áætla tíu mínútur fram í tímann en við tíu ár...
framleiðir ekkert, bætir maður engum
verðmætum við hráefnin, og ágóðinn
verður lítill. Þess vegna höfum við í Japan
unnið í mörg ár að því að bæta framleiðslu-
aðferðirnar og gerum það enn í dag.
Sp: Það reyna líka aðrir.
Morita: Þar sem frjáls markaður ræður
ferðinni er ekki hægt að þvinga neina til að
kaupa framleiðslu einhvers tiltekins aðila.
Skilyrði fyrir góðum viðskiptum er að
framleiða aðlaðandi vöru. Er við ætlum að
selja kassettutæki verðum við að gera það
meira aðlaðandi en öll önnur.
Sp: Hvers vegna tekst ykkur það betur en
öllum öðrum?
Morita: Með hörkuvinnu!
Sp: Þú notar hvert tækifæri sem gefst til að
gagnrýna efnahagslíf Bandaríkjanna.
Hver eru helstu vandkvæði atvinnulífsins
þar?
Morita: Skammsýn framkvæmdastjórn.
Þar verða öll fyrirtæki að gefa ársfjórð-
ungslega upp veltuna, hagnaðinn o.s.frv.
Ef niðurstaðan er neikvæð falla hlutabréf í
verði og stjórnendurnir eru látnir fara.
Þess vegna eru stjórnendurnir stöðugt
með hugann við skammvinnan gróða,
augnabliksgróða. Fyrirtækin kaupa jafn-
vel framleiðslu annarra til að selja með
ágóða, en þau fjárfesta ekki í rannsóknum
og þekkingu sem skilað gæti árangri til
lengri tíma.
Sp: Á þetta einnig við um Evrópu?
Morita: í Evrópu lítur dæmið mun betur
út....
Sp: Það er haft eftir þér að „Japanir áætli
tíu ár fram í tímann en Bandaríkjamenn í
tíu mínútur“. Hver er áætlunartími
Evrópubúa?
Morita: Þar gera mörg stórfyrirtæki vel í
þessu efni; Philips, Baer, BASF,
Hoechst, Bosch og Siemens til dæmis.
Þau fjárfesta mikið í rannsóknum..
Sp: Eru þessi fyrirtæki ekki heilbrigð
vegna þess að Japanir hafa enn sem komið
er látið þau í friði?
Morita: Verið ekki svona svartsýnir. Þið
ættuð að vera stoltari...
Sp: Eru einhver takmörk í herfræði Jap-
ana á viðskiptasviðinu?
Morita: Við höfum enga slíka heildar her-
fræði. Þið óttist Japan of mikið. Banda-
ríkin voru stórveldi..
Sp: ..og eru ekki lengur?
Morita: Jú, reyndar. En þar áður var Eng-
land stórveldi og Frakkland. Þýskaland
hefur líka verið stórveldi.
Sp: Mun Japan bætast í hóp stórvelda?
Morita: Ef til vill, það væri allavega gott
fyrir allan heiminn.
Sp: Verður 21. öldin öld Japans?
Morita: Aðstæður í efnahagslífi breytast
hratt. Um þessar mundir er Evrópa að
reyna að verða stór að nýju. Ég sé fyrir mér
þrjú voldug efnahagssvæði; Ameríku, As-
íu og Evrópu.
Sp: Á öllum þessum svæðum virðist Japan
vera voldugast ríkja með fjölda verksmiðja
og fyrirtækja og ræður stærstum hluta
markaðarins.
Morita: Sameining Evrópu 1992 er fyrir
okkur alla hið besta mál. Ég dái þessa
ákvörðun Evrópubúa. Öll lönd verða að
láta eitthvað af sjálfstæði sínu til að hægt sé
að sameina þessi ólíku málsvæði og menn-
ingarsvæði. Það er sársaukafullt, en engu
að síður hafa Evrópubúar sett markið
hátt. Við Japanir ættum að taka Evrópu-
búa í þessu efni okkur til fyrirmyndar og
færa slíkar fórnir. Ef við ætlum að vera
góðir samborgarar í heiminum megum við
ekki einskorða okkur við eigin hags-
muni...
Sp: Setjum svo, að einhver hjá Coumbia
Pictures vildi gera kvikmynd um „Innrás
Japana á viðskiptasviði heimsins". Hvað
myndir þú segja við því?
Morita: Allt í lagi mín vegna. Þið hjá
Spiegel gagnrýnið líka ríkisstjórn lands
ykkar. Það er bísniss.
Sp: Er allur heimurinn bara bísniss?
Morita: Einmitt. Um það snýst málið og
misklíðin...
Spiegel—eh/óg
ÞJÓÐLÍF 57