Þjóðlíf - 01.01.1990, Side 68
VÍSINDI OG UMHVERFI
MINNA GETIIR
Um bók Harðar Bergmanm
Fyrir jól kom út hjá Menningarsjóði
bókin Umbúðaþjóðfélagið eftir Hörð
Bergmann. Líkt og nafnið gefur til kynna
er þetta rit um þjóðfélagsmál, stiklað er á
mörgum grundvallaratriðum þjóðfélags
okkar en jafnframt sett spurningamerki
við tilvist flestra þeirra. Þetta er mjög
gagnrýnið verk, sem skapar drjúgt tilefni
til frekari umræðna um málin.
Meðal þess, sem fyrst kemur í hug, við
lestur bókar Harðar Bergmanns, Um-
búðaþjóðfélagið, er hve mannskepnan
hefur glatað miklum lífsgæðum á öld
tækninýjunga: tímanum. Tíminn er kom-
inn í umbúðir, ekki fer hjá því að okkur
verði hugsað til þess lífs, sem afar og
ömmur nútímamannsins lifðu, þegar ekk-
ert sjónvarp, ekkert heilbrigðiskerfi, eng-
inn sparisjóður, vaxtaaukalán eða kynlífs-
námskeið urðu til þess að drepa tímann
fyrir fólki. Er tækni og velferðarstofnanir
nútímaþjóðfélagsins frelsisskerðing?
Ef til vill er bók Harðar mikilvægust
vegna þeirra efasemda, sem hann setur
fram um viðtekið gildismat á almennri
velferð, hagvexti, tækni, menntun og heil-
brigðiskerfi. Hvar eru mörk umbúða og
innihalds? Hörður Bergmann hefur á um-
liðnum árum í blaða- og tímaritsgreinum
og í útvarpi verið frumkvöðull í gagnrýn-
um hugsunarhætti, hugsunarhætti, sem
reyndar hefur sett æ meiri svip á stjórn-
málaumræðu í iðnríkjum Vesturlanda.
Hann hefur út frá sjónarhóli umhverfis-
verndarsinna gagnrýnt sóun á verðmæt-
um, tilgangslausum vexti á ýmsum svið-
um, til dæmis í heilbrigðiskerfi. Hörður
dregur til dæmis í efa að heilsufar þjóðar-
innar hafi í raun batnað þótt útgjöld til
heilbrigðiskerfis hafi aukist mjög. Stöðugt
fleiri leita til sérfræðinga, stöðugt fleiri
neyta lyfja af ýmsu tagi. Hörður segir:
„Sé litið yfir 35 ára tímabil frá 1950
lætur nærri að útgjöld til heilbrigðiskerfis-
ins hafi tífaldast miðað við fast verðlag og
mannaflinn innan þess sjöfaldast. Hvað
ætli hafi valdið vexti þessarar þjónustu og
einstökum kostnaði við hana? Eykst
heilsuleysi þjóðarinnar í hlutfalli við fjölg-
un sjúkrarúma, lækna og annars starfsliðs
68 ÞJÓÐLÍF