Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 8
8 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Af hverju eru svo margir skussar úr skóla mold-
ríkir? Þannig er því farið með hinn próflausa sir
Richard Branson. Hann gat ekk ert lært en er
samt einn af frægustu auðjöfrum heims.
TexTi: Gísli KrisTjánsson.
Lesblindur leiðtogi
R
ichard Branson er
af ættum lögmanna.
Afi hans sat meira
að segja í leyndar
ráði Bretakonungs
og Branson var settur í bestu
einkaskóla að hætti fjölskyldunn
ar. Námsárangur var lakur.
Eig inlega „agalegt skúffelsi“
fyrir ættina og engar prófgráður
hjá stráknum.
Síðar kom ástæðan í ljós.
Hinn ungi ættarlaukur var ekki
treggáfaður heldur lesblindur.
Hann gat ekki lesið lögin sem
hann átti að nema. Þess vegna
fór Branson fyrst út í tónlistar
bransann, svo flugið og hefur
síðan aukið smátt og smátt við
veldi sitt. Hann á nú nær 400
fyrirtæki að mestu eða öllu leyti,
flest undir vörumerkinu Virgin.
Það er ef til vill órökstudd
mýta að lesblindir séu auðsælli
en aðrir. Þó eru þess mörg
dæmi að lesblint fólk nái langt í
við skiptum. Þar á meðal er Bill
Gates. Sennilega er það þrátt
fyrir lesblinduna. Banda rísk
rannsókn hefur samt sýnt að
19% frumkvöðla eru lesblind.
Hvað Branson varðar gat hann
einfaldlega ekki orðið torlæs
lögmaður. Hann beindi hæfi
leikum sínum að viðskiptum í
staðinn.
Barátta við einokun og
samráð
Og viðskiptavit Bransons kom
fram þegar á skólaárunum.
Hann kom fyrst á fót tímariti fyrir
menntaskólakrakka. „Stú denta
blaðið“ hans varð lykillinn að
síðari velgengni. Fyrst opn aði
hann plötubúð í tengslum við
blaðið. Hann auglýsti plöturnar í
blaðinu og seldi þær í póstversl
un fyrir mun lægra verð en
viðurkenndar plötubúðir.
Fátækir stúdentar keyptu
miklu heldur ódýrt hjá Branson
en dýrt hjá verslunum, sem
höfðu með sér samráð um verð
og afslætti. Hann flutti inn plötur
sem breskir útgefendur höfðu
selt til útlanda með miklum
afslætti. Tilraunir útgefenda til
að stöðva plötusölu Bransons
vegna undirboða og tollsvika
mistókust. Síðari tilraunir til að
stöðva hann hafa ekki heppnast
heldur og þó hefur gengið á
ýmsu.
Plötubúðin fékk nafnið Virgin
eða Jómfrúin. Nafnið var ekki
tilviljun. Branson leit svo á að
hann væri sem saklaus „jómfrú“
í viðskiptum. Hann ræddi
þetta við skólafélaga sína og þá
kom upp hugmyndin að kalla
fyrirtækið Virgin. Einn kunn
ingja hans rissaði nafnið upp
á servíettu. Þar með var merki
félagsins komið og það er
óbreytt enn þann dag í dag.
Gaf út það sem aðrir
vildu ekki
Plötusalan gekk vel og næsta
stig var að hefja plötuút
gáfu. Virgin Records var
stofnað árið 1972. Gróðinn af
lágverðsplötubúðinni var það
milkill að Branson gat keypt
hús næði undir hljóðver og hann
bauð líklegum tónlistarmönn
um að taka upp. Fyrstur var
efni legur en sérvitur náungi að
nafni Mike Oldfield. Hann vildi
leika á öll hljóðfærin sjálfur.
Hann tók upp plötuna Tubular
Bells hjá Branson, sem gaf
verkið út.
Þessi fyrsta skífa Virgin Rec
ords varð metsöluplata og er
klassískt verk í sögu popptón
listar. Selst raunar enn í stóru
upplagi árlega. Og vinsædir
Tubular Bells báru frægð vöru
merkisins Virgin Records um
allan heim. Branson var kominn
í fremstu röð útgefenda á einni
nóttu. Næsta stórsveit var Six
Pistols, sem engir vildu gefa út.
Heppni að byrja á Mike Old
field? Ef til vill en Branson hefur
oft verið ótrúlega heppinn –
eða bara glöggur. Næstu árin
var Branson fyrst og fremst
viðriðinn skemmtibransann. Þar
var ekki fyrr en árið 1984 að
hann ákvað að leita fyrir sér á
nýjum sviðum. Hann fór að reka
flugfélag.
Brattur í fluginu
Flug var ekki sérstakt áhugamál
hans. Til hans var leitað með fjár
magn frá náungum sem reyndu
Sir Richard Branson hjá
Virgin Group