Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 9
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 9
að koma á legg lággjalda flug
fé laginu Laker Airways. Þá
voru enn miklar takmarkanir
á flugrekstri. Þó hafði fengist
leyfi fyrir flugi yfir Atlantshafið
milli Gatwik og Newark vegna
þess að það var ekki talin bein
ógn við flug British Airways til
Ameríku.
Branson lagði ekki aðeins fé í
fyrirtækið, hann eignaðist það
allt og frá 1984 hefur það heitið
Virgin Atlantic Airways. Gengið
hefur á ýmsu í rekstrinum og
segja má að Branson hafi verið
of snemma á ferðinni. Enn áttu
eftir að líða níu ár þar til honum
var leyft að keppa beint við
British Airways með flugi frá
Heathrow.
Reksturinn á Virgin Atlantic
hefur kostað blóð, svita og tár.
Branson segist hafa grátið þeg
ar eina leiðin til að rétta félagið
af var að selja Virgin Records
árið 1992. Hann missti við það
stöðu sína í plötuútgáfu og
tilraunir til að stofna nýjar útgáf
ur síðar hafa litlu skilað og nú
hefur netið gjörbreytt aðstöðu
fólks til að nálgast tónlist.
virgin Cola – virgin
vodka
Virgin Atlantic á nú fjörutíu flug
vélar og hefur ekki vaxið jafn hratt
og önnur lággjalda fé lög. Tap
varð á rekstrinum í fyrra. Virgin
Atlantic ber þó vöru merkið Virgin
víða um heim – og jafn vel geim.
Branson hefur uppi áform um
geimferðalög í nafni Virgin Gal
actic. Enginn er þó farinn af stað
með „geimvagni“ Bransons en
hann segir að allt verði klárt fyrir
fyrstu ferð á næstu árum.
Branson á líka járnbrautarlestir
og hefur rekið símafyrirtæki.
Einnig eru á markaði Virgin
Cola og Virgin Vodka. Og hann
á hluti í flugfélögum víða um
heim. Árið 2007 reyndi hann að
eignast ráðandi hlut í bankan
um Northern Rocks og hugðist
breyta nafninu í Virgin Mon
ey en fékk ekki. Bankinn féll
skömmu síðar.
Núna leggur Branson mesta
áherslu á að þróa nýtt vistvænt
eldsneyti í fyrirtækinu Virgin
Fuels. Ef það heppnast er
heiminum bjargað – svo líklega
verða fréttir af Branson og
uppá tækjum hans næstu ár.
sir richard
Branson er núna fjórði ríkasti
maður Bretlands og númer 236
á heimslista Forbes yfir ríkustu
menn. Hann hefur alltaf verið
um deildur. Hann er sakaður um
að koma sér undan sköttum með
því að skrá fyrirtæki sín í skatta
skjólum og hann er sak aður
um að vera úr hófi upp tekinn af
sjálfum sér.
Það þótti líka hofmóður þegar
hann bætti einni af Bresku Jóm
frúaeyjum í eignasafn sitt. Hann
varð að eiga eina af „Virgin
Islands“. En þrátt fyrir gagnrýni
ber hann nú titilinn „sir“ eftir
að Bretadrottning aðlaði hann
árið 2000 fyrir framtakssemi og
dugnað.
Sir Richard er líka yfirlýsinga
glaður. Hann sagði til dæmis
að askan frá Eyjafjallajökli
væri brandari – en varð samt
að sætta sig við flugstopp og
bótagreiðslur.
Branson hefur hin síðari ár
gefið sig æ meira að umhverfis
málum. Hlýnun jarðar er honum
áhyggjuefni. Hann er og óspar
á að lýsa veikleikum sínum og
hégómaskap, sérstaklega við
að kaupa hitt og þetta dót bara
vegna þess að það er nýtt. Og
hann er glaumgosi – eða vill
í það minnsta viðhalda þeirri
ímynd.
Innan fyrirtækisins er það
hins vegar Joan, kona hans,
sem gætir allrar skynsemi í
fjárfestingum. „Joan er miklu
klókari en ég,“ segir Branson.
Þau eiga dótturina Holly.
Reksturinn á Virgin
Atlantic hefur kost
að blóð, svita og tár.
Branson segist hafa
grátið þeg ar eina
leiðin til að rétta
félagið af var að
selja Virgin Records
árið 1992.
Glaumgosinn sir Richard Branson á frönsku Rivíerunni.
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is