Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 20
20 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
– í sambandi við allt
118 Já.is Stjörnur.is Símaskrá Já í símann i.ja.is
Já – það passar
Þ
egar Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Ice land
air, er spurður hverju hann
telji að megi þakka þriðja
sætið í umræddri könnun
segir hann að erfitt sé að
dæma um það. „Kannanir okkar sýna að
við skiptavinum okkar líkar þjónusta og
áreiðanleiki fyrirtækisins sem og vöxtur
þess á undanförnum árum, leiðarkerfið og
sú tíðni sem við bjóðum upp á. Svo hefur
fyrirtækið verið mjög sýnilegt og einnig má
nefna markaðsherferðir okkar. Ég held að
þetta spili allt inn í.“
Birkir Hólm segir að hvað upp bygginu
ímynd arinnar varðar hafi verið lögð
áhersla á að fyrirtækið væri dæmt af
frammi stöðunni og góðri þjónustu og tíðni.
„Við höfum undanfarin ár lagt áherslu á
íslenskt þema eða upplifun sem við köllum
„Refreshing Icelandic travel experience“
og við höfum auk þess lagt áherslu á að
byggja upp tíðni í leiðarkerfi okkar til og frá
Íslandi sem og fleiri heilsárs áfangastaði.
Aðaláhersla okkar hvað ímyndina varðar
hefur verið að standa okkur vel og láta
dæma okkur af frammistöðunni.“
Birkir Hólm segir að Icelandair vilji láta
greina sig frá keppinaut unum með öflugri
markaðsgrein ingu og markaðssetningu
með góðri þjónustu sem tengist ímynd
Íslands.
„Við viljum spinna hagkvæmni og sveigj
anleika inn í alla þræði rekstrarsins hjá
okkur.“
hagKvæmni og sveigjanLeiKi
Birkir Hólm guðnaSon, framkvæmdaStJóri icElandair:
„Við viljum spinna
hagkvæmni og sveigjan
leika inn í alla þræði
rekstrarsins hjá okkur.“
„Það hefur verið markmið
okkar frá upphafi að skila
til viðskiptavina hluta af
þeim ávinningi sem
náðst hefur.“
vinsæLasta fyrirtækið
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss.
G
uðmundur Marteins
son, framkvæmda
stjóri Bónuss, segir
að stefna fyrirtækisins
sé skýr en hún sé
að bjóða neytendum
allar helstu matvörur á sem bestu verði og
sama verð til neytenda í öllum Bónusversl
unum hvort sem þeir búa á höfuðborgar
svæðinu eða Vestfjörðum.
„Tilkostnaður þarf að vera í lágmarki
til þess að geta selt ódýrt og á slagorð
okkar, „Bónus ekkert bruðl“, þar vel við.
Varðandi stefnu í markaðsmálum höfum
við ávallt litið svo á að ánægður viðskipta
vinur sé okkar besta auglýsing og höfum
kappkostað alla tíð að standa undir þeim
væntingum sem til okkar eru gerðar.“
Guðmundur segir að hvað varðar ímynd
fyrirtækisins sé starf þeirra sem vinna hjá
fyrirtækinu að reyna að uppfylla vænting
ar og þarfir viðskiptavina og að þeir finni
að matarkarfan sé ódýrust í Bónus.
„Það hefur verið markmið okkar frá
upphafi að skila til viðskiptavina hluta
af þeim ávinningi sem náðst hefur með
auknum magninnkaupum og betra
innkaupsverði. Við gerum okkur grein fyrir
því að það ástand sem hefur verið hérna
eftir hrun hefur verið neytendum erfitt; allt
hefur hækkað og kaupmáttur rýrnað og
æ sjaldnar upplifa íslenskir neytendur að
þeir hafi gert góð kaup.“
Guðmundur segir að Bónus hafi alltaf
notið mikilla vinsælda í umræddri könnun
og verið á toppnum eða við hann oftar en
nokkurt annað fyrirtæki. „Það er okkar vinna
og markmið að koma Bónus á toppinn á
nýjan leik.“
hLuti ávinnings tiL
viðsKiptavina
guðmundur martEinSSon, framkvæmdaStJóri BónuSS:
Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtæki
landsins á sviði útleigu atvinnuhúsnæðis. Okkar
sérsvið er að finna þínu fyrirtæki rétt húsnæði.
Atvinnuhúsnæði
sem hentar þér
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
www.Reitir.is
Reitir@Reitir.is
Sími
575 9000