Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 53
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 53
Guðbjartur Hannesson vel ferðarráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið á dögunum eftir að ríkisstjórnin afgreiddi
nýtt frumvarp um almannatryggingar að
um nýja hugsun sé að ræða í almanna
tryggingum. Þótt frumvarpið verði lagt
fram á Alþingi búast fæstir við því að svo
stórt og umfangsmikið mál verði afgreitt
fyrir þinglok.
Í frétt Morgunblaðsins kom fram að
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
hefði á landsfundi Samfylkingarinnar sagt
að nýtt almannatryggingakerfi væri eitt
af þeim málum sem þyrfti að ná farsælli
niðurstöðu í fyrir kosningar. „Við verðum
að láta þingið meta það,“ sagði Guðbjartur
aðspurður hvort hann teldi raunhæft að
ljúka afgreiðslu þessa máls í vor.
Guðbjartur sagði að frumvarpið fæli í
sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. „Það gerir
það, en þá sérstaklega til lengri tíma. Þetta
er byggt á alveg nýju kerfi. Gert er ráð
fyrir sameiningu bótaflokka og breyttum
skerðingarmörkum. Þetta felur því í sér
alveg nýja hugsun. Það er ástæðan fyrir
því að það hefur tekið mjög langan tíma
að koma þessu í lagabúning. Það hefur
einnig tekið tíma að gera kostnaðarmat.
Þetta er dýrt þangað til lífeyrissjóðirnir
taka verulega stóran hluta af kostnaðinum
eftir því sem frá líður. Við erum að skoða
að breyta frumvarpinu þannig að það
verði ekki eins þungt í greiðslum,“ sagði
Guðbjartur við Morgunblaðið.
ný hugsun í
aLmannatryggingum
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra boðar nýja hugsun og minni skerðingu í nýju frumvarpi.
Þess má geta að núverandi ríkisstjórn herti á tekjutengingunni sumarið 2009 og skerti þar með elli
lífeyrinn hjá fjölmörgum – og túlka aldraðir það sem hækkun jaðarskatta og það mitt í kreppunni.
Stólpar & MP banki
Viðskipti í stöðugri
uppbyggingu
Stólpar hafa skýra sýn á það hvernig á að byggja
til framtíðar. Þeir vita að það kostar þekkingu,
fé og fyrirhöfn að reisa hús. Skýr framtíðarsýn
skiptir öllu máli í rekstri fyrirtækja.
Þess vegna eru Stólpar í viðskiptum hjá okkur.
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is banki atvinnulífsins
B
ra
nd
en
b
ur
g
625 ÞúS. kr. á mánuði í lífeyriStekjur
fyrir Skatta
Hvernig lítur dæmið út?
196 þús. kr. í skatta.
70 þús. kr. sem hann heldur eftir í vasapening.
327 þús. kr. til hjúkrunarheimilis (hámark).
500 ÞúS. kr. í lífeyriStekjur fyrir Skatta
engar aðrar tekjur. Fer á hjúkrunarheimili.
500 þús í lífeyrisgreiðslur
Hvernig lítur dæmið út?
146 þús. kr. í skatta.
70 þús. kr. sem hann heldur eftir í vasapening.
284 þús. kr. til hjúkrunarheimilis.
300 ÞúS. kr. í lífeyriStekjur fyrir Skatta
engar aðrar tekjur. Fer á hjúkrunarheimili.
300 þús í lífeyrisgreiðslur
Hvernig lítur dæmið út?
65 þús. kr. í skatta.
70 þús. kr. heldur eftir í vasapening.
165 þús. kr. til hjúkrunarheimilis.
150 ÞúS. kr. í lífeyriStekjur fyrir Skatta
engar aðrar tekjur. Fer á hjúkrunarheimili.
150 þús í lífeyrisgreiðslur
Hvernig lítur dæmið út?
9 þús. kr. í skatta.
70 þús. kr. heldur eftir í vasapening.
72 þús. kr. til hjúkrunarheimilis.
103 ÞúS kr. í lífeyriStekjur fyrir Skatta
engar aðrar tekjur. Fer á hjúkrunarheimili.
103 þús í lífeyrisgreiðslur
Hvernig lítur dæmið út?
0 þús. kr. í skatta.
70 þús. kr. heldur eftir í vasapening.
33 þús. kr. til hjúkrunarheimilis.
0 kr. í lífeyriStekjur úr lífeyriSSjóði
engar aðrar tekjur. Fer á hjúkrunarheimili.
0 kr. í lífeyrisgreiðslur
Hvernig lítur dæmið út?
0 kr. í skatta.
50 þús. kr. í vasapening frá Tr.
0 kr. til hjúkrunarheimilis.