Frjáls verslun - 01.01.2013, Síða 66
66 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Það hefur aukið sveigjanleikann þegar
kemur að lagerstöðu á bílum. Menn reyna
að haga pöntunum í takt við það, það er til
dæmis betra að fá bíla inn á vormánuðum
en á haustin. Menn reyna þannig að
sveiflu jafna og um leið bregðast hratt við í
ýmsum þáttum rekstrarkostnaðar, eins og
til dæmis markaðskostnaði. Við sáum það
glöggt að þegar salan var hvað minnst voru
auglýsingar bílaumboða litlar sem engar.“
En þó að væntingar margra hafi verið að
lifna við á fyrri hluta síðasta árs leynir sér
ekki að bakslag hefur orðið. Erna segir
að margt skýri það. „Ég held að það hafi
komið bakslag út af gengislánamálunum,
margir voru að bíða eftir því að þessi mál
kláruðust. Á meðan fólk veit ekki hvað það
á mikið í bílnum og þarf stöðugt að vera að
velta því fyrir sér hvort það fái endurgreitt
eða ekki er ekki von á mikilli hreyfingu
meðal kaupenda. Fólk hringir gjarna til að
spyrja um stöðuna en því miður er lítil svör
hægt að veita. Sumir þora hreinlega ekki
að taka áhættu meðan á þessu stendur. Við
vorum að vonast til þess að eitthvað gerðist
en því miður hefur það ekki orðið raunin.
Því má segja að þróunin í þjóðfélaginu
síðasta árið hafi valdið vonbrigðum. Héðan
af gerum við ekki ráð fyrir að mikið gerist
fyrr en í fyrsta lagi eftir kosningar, nema
hjá Íslandsbanka, sem er að byrja að senda
út endurútreikninga núna í febrúar.“
allir að bíða
Erna sagði að ástandið birtist ágætlega í
aldurssamsetningu bílkaupenda því fólk á
miðjum aldri sæist lítið og það væri helst
fólk yfir sextugt sem skoðaði bílakaup.
Aðrir væru enn að bíða eftir úrlausn sinna
mála. Hafa yrði í huga að lán af 4050
þúsund bílum væru enn óafgreidd. Því
væri augljóst að þessi biðstaða hefði mikil
áhrif. Um leið hefði fólk breytt sínum
bílakaupum mikið og liðin tíð að fólk ætti
þrjá bíla á heimili. Nú teldi fólk sig þurfa
að meta kostnað af bílaeign upp á nýtt. Þá
ýtti hækkun á sköttum einnig eftir því að
fólk færði sig yfir í ódýrari bíla.
Erna er stjórnarformaður tryggingafélags
ins Sjóvár. Hún er hluthafi í SF1, sem keypti
ríflega helming hlutafjár á miðju ári 2011
og hefur aukið við hlut sinn síðan. Sjóvá
er alhliða vátryggingafélag með tæplega
30% markaðshlutdeild og um 70 þúsund
viðskiptavini. Enginn hluthafa í SF1 fer
með stærri hlut en sem svarar til 10% hlut
deild í Sjóvá. Eignarhlutur Ernu þar er í
gegnum EGG ehf. Erna kom inn í stjórnina
strax árið 2009 sem óháður stjórnar aðili.
Síðan er rætt við hana hjá Stefni, sem er
sjálfstætt starfandi fjárfestingafélag og sá
um að setja saman fjárfestingahóp til að
kaupa félagið. „Tryggingamarkaðurinn
er mjög áhugaverður markaður en allt
öðru vísi en bílamarkaðurinn. Þetta er til
þess að gera íhaldssamt umhverfi enda
má segja að tryggingar séu þess eðlis. Það
er búið að vera mjög gaman að vinna í
þessu verkefni. Með nýjum forstjóra hefur
farið mikil vinna í að endurskipuleggja
félagið frá grunni. Það er búið að þétta og
nýtískuvæða Sjóvá og það er stefnt að því
að skrá félagið á markað. Ætli þetta verði
ekki ár tryggingafélaganna í kauphöll
inni. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt
verkefni og forvitnilegt að kynnast öðrum
geira. Eftirlitið er mikið og formfestan fyrir
vikið meiri.“ Þegar félagið verður skráð er
ætlunin að leysa upp SF1 og hver hluthafi
fái beint hlut í félaginu. Erna sagði að þrátt
fyrir margvíslega erfiðleika sem steðjuðu
að félaginu hefði því gengið vel að halda
viðskiptavinum sínum. Í dag væri Sjóvá vel
fjármagnað og með traustar undirstöður
sem meðal annars birtist í sterku eiginfjár
hlutfalli.
Auk þessara verkefna situr Erna í stjórn
verslunarrisans Haga en þar hefur hún
setið sem óháður stjórnarmaður síðustu
þrjú ár. Hún tók sæti þar um leið og Arion
banki fékk fulltrúa í stjórn. „Hagar hafa
verið mjög skemmtilegt verkefni. Þar
fórum við í gegnum skráningarferli fyrir
rúmu ári og það hefur gengið mjög vel. Ég
segi oft að Hagar eru flottasta fyrirtæki sem
ég hef nokkurn tímann kynnst. Skilvirknin
og tölfræðin er hreint ótrúleg og ég sé
notað þar inni nánast allt sem ég kynntist
í náminu á Spáni.“ Erna er ekki í eigenda
hópi Haga en hún kemur að sjóðnum Auði
1 sem eigandi að 2% hlut. En talandi um
námið á Spáni. Erna segir að þar hafi hún
kynnst mikilvægi áætlanagerðar sem hún
beitir óspart í þeim rekstri sem hún kemur
að hér á landi. Hún segir að sumir hafi það
viðhorf að áætlanagerð eigi tæpast við á
Íslandi en hún telji að það sé öðru nær.
„En því er ekki að
leyna að mark að
urinn hefur tekið
hægar við sér en
við héldum. Það
hægir á þessu
frekar en hitt og
viðskiptavinirnir
eru dálítið að bíða
eftir því hvernig
fer.“
erna Hjá bL
Fjölskyldan stóð saman að rekstri B&L þar til félagið var selt 2007. Hér er Gísli Guðmundsson
ásamt börnum sínum, þeim Ernu og Guðmundi Gíslasyni yngri.
Mynd/Úr einkasafni.