Frjáls verslun - 01.01.2013, Side 70
70 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Icepharma veltir um átta milljörðum króna
árlega og er með um áttatíu starfsmenn.
„Við styðjum við almenna lýðheilsu með
því að selja, markaðssetja og þjónusta
heilsueflandi vöru. Stór hluti veltunnar
tengist lyfjum en við erum líka sterk í lækn
inga og hjúkrunarvörum auk þess sem
við bjóðum vítamín, næringu, barnavörur,
húðvörur og hárvörur og höfum umboð fyrir
íþróttavörumerkið Nike á Íslandi.
Icepharma fékk í fimm ár í röð viðurkenn
ingu VR sem fyrirmyndarfyrirtæki auk þess
sem fyrirtækið hefur undanfarin þrjú ár
hlotið sérstaka viðurkenningu Creditinfo
fyrir fjárhagslegan styrk fyrirtækisins.“
Margrét segir að fyrirtækið sé því vel í
stakk búið til að uppfylla framtíðarsýnina;
að eflast enn frekar innan heilbrigðisgeir
ans. „Það hefur verið krefjandi verkefni að
sinna aðilum innan íslenska heilbrigðiskerf
isins undanfarin ár. Ef marka má umræður
í þjóðfélaginu, jafnt meðal fagfólks sem
notenda heilbrigðisþjónustunnar, virðist
nú komið að ákveðnum þolmörkum. Við
hljótum sem þjóð að ætla að varðveita og
efla þá góðu heilbrigðisþjónustu sem við
höfum hingað til notið. Icepharma ætlar sér
hlutverk í því verkefni.“
þakkarviðurkenning fKa til
guðrúnar Lárusdóttur.
ÁRæði, þolinmæði
og PaSSaSEmi
G
uðrún Lárusdóttir, framkvæmda
stjóri Stálskips, hlaut þakkar
viður kenningu FKA.
„Allt kapp er núna lagt á að
ríkis væða sjávarútveginn með
nýju fiskveiðifrumvarpi og ef það verður
samþykkt verður greinin ekki lengur sjálf
bær heldur ríkisvædd.“
Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri
Stálskips, hlaut þakkarviðurkenningu FKA.
Fyrirtækið er fjölskyldufyrirtæki sem Guðrún
og eiginmaður hennar, Ágúst Sigurðs
son, ásamt fleirum stofnuðu fyrir rúmum
40 árum. Þess má geta að Stálskip er á
meðal 150 stærstu fyrirtækja landsins og
samkvæmt könnun Frjálsrar verslunar í fyrra
greiddi það starfsmönnum sínum hæstu
meðallaun allra fyrirtækja á landinu.
„Það er mjög ánægjulegt að fá þessa
viður kenningu,“ segir Guðrún. „Það er
svo oft sem fólk fær þakkir fyrir unnið starf
þegar það er farið héðan af jörðinni eða
komið á grafarbakkann. Þess vegna finnst
mér ánægjulegt að fá þessa þakkarviður
kenningu frá þessum frábæru konum í FKA
á meðan ég er í fullu fjöri og í fullu starfi.“
Guðrún segir marga hluti spila inn í vel
gengni fyrirtækisins. „Við hjónin höfum alltaf
sniðið okkur stakk eftir vexti við fyrirtækja
rekst urinn. Við höfum ekki farið fram úr okkur
með að gera allt mögulegt sem kannski
hefði verið voða gaman að gera og fjárfest
miklu meira en lenda svo í núlli eins og mar
gur hefur gert. Við höfum unnið frekar hægt
og sígandi og ætli það sé ekki sígandi lukka.
Síðan má segja að velgengnina megi
fyrst og fremst þakka fólkinu sem vinnur
fyrir okkur. Við höfum verið heppin með
skip stjóra og heppin að það hafa ekki orðið
mikil óhöpp hjá okkur; það hefur að vísu
orðið eldsvoði í einu skipinu í Barentshafi
og annað var hér um bil sokkið en einhvern
veginn höfum við komið þessu á kjöl aftur
og unnið okkur út úr þessu. En þetta hefur
verið geysilega mikil vinna.“
Guðrún segir nokkra þætti nauðsynlega
í svona rekstri: „Maður þarf að hafa áræði,
þolin mæði og passasemi. Og það á ekki
að fara fram úr sjálfum sér þegar kemur að
ákvörðunum.“
Guðrún segir þau hjónin hafa hagrætt m.a.
á þann hátt að selja skip og nú er að eins
gerður út frystitogarinn Þór HF. „Við seld um
skip til að vera bara með eitt skip á þeim
kvóta sem annars tvö skip hefðu verið með.“
Fyrirtækið hefur verið með um tvo millj
arða króna í aflaverðmæti og segir Guðrún
þau hjónin hafa verið heppin með erlenda
viðskiptavini. Við eins og aðrir í sjávarút
vegi höfum sannarlega fengið að finna fyrir
því sem að mínu mati hefa verið rangar
ákvarðanir stjórnvalda. Allt kapp er lagt á
að reyna að ríkisvæða greinina með nýju
fiskveiðifrumvarpi og ef það verður sam
þykkt verður greinin ekki lengur sjálfbær
held ur ríkisvædd.
Það er verið að fórna miklum hagsmun
um til að fullnægja þörf stjórnvalda til að
koma að sínum gæluverkefnum þó svo að
augljóst sé að það eru ekki þjóðarhags
munir sem eru hafðir að leiðarljósi.“
gæfusporið 2012 svþ:
konuR í meiri
hluta Í StjÓRn SVÞ
M
argrét Kristmannsdóttir,
fram kvæmdastjóri Pfaff og
formaður Samtaka verslunar
og þjónustu, veitti Gæfuspor
inu 2012 viðtöku. „Núna eru
konur formenn í tvennum stærstu hags
muna samtökum innan SA; hjá SVÞ og SI –
Samtökum iðnaðarins.“
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmda
stjóri Pfaff og formaður Samtaka verslunar
og þjónustu, veitti Gæfusporinu 2012
viðtöku en samtökin hlutu viðurkenninguna
þar sem þau þykja öðrum fremur hafa virkj
að kraft kvenna til stjórnarsetu eða til áhrifa
í atvinnulífinu.
Þess má geta að mörkuð voru tímamót
á aðalfundi SVÞ í mars í fyrra þegar konur
urðu í fyrsta sinn í meirihluta í stjórn aðildar
félags innan Samtaka atvinnulífsins en SVÞ
er eitt af sjö aðildarfélögum sem starfa
inn an SA og hafa um 23% vægi innan sam
takanna.
„Gæfusporið varpar jákvæðu ljósi á sam
tökin,“ segir Margrét, „en oft verða hags
munasamtök í atvinnulífinu fyrir gagn rýni
þannig að það er mjög jákvætt fyrir sam tökin
þegar líka er tekið eftir því sem vel er gert.“
Margrét tekur fram að sú staðreynd að
konur eru í meirihluta stjórnar SVÞ geti
skýrst af því að konur eru fjölmennar í
versl un og þjónustu en þetta var einnig
með vitað val. „Hagsmunasamtök í atvinnu
lífinu hafa í gegnum tíðina verið mjög
fka–verðLaunin 2013
„Við hjónin höfum ekki
farið fram úr okkur með því
að gera allt mögulegt sem
kannski hefði verið gaman
að gera, og fjárfest miklu
meira, en lenda svo á núlli
eins og margur hefur gert.“
Margrét Kristmannsdóttir. „Gæfusporið
varpar jákvæðu ljósi á samtökin en oft verða
hagsmunasamtök í atvinnulífinu fyrir gagn
rýni.“
Guðrún Lárusdóttir. „Við seldum skip til að
vera bara með eitt skip á þeim kvóta sem
annars tvö skip hefðu verið með.“