Frjáls verslun - 01.01.2013, Side 75
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 75
aðrir innan fyrirtækisins um leið
og hann þarf að vera fær um að
greina stöðu dagsins í dag. Enn
ein fína línan sem leiðtoginn
þarf að dansa á.
samskipti á vinnu-
stöðum
Eitt lögmála forystuúlfsins eru
samskipti og fá þau eðli málsins
samkvæmt mikla athygli í bók
inni. Höfundur fer þó lengra í
sinni umfjöllun en alla jafna í
stjórnunarbókum og minnist
stuttlega á viðkvæmt en engu
að síður algengt viðfangsefni
sem er náin tengsl vinnufélaga.
Í bókinni er fjallað um tengsl sem
hafa neikvæð áhrif á frammi stöðu
fyrirtækisins og því nauðsynlegt
fyrir leiðtogann að grípa inn
í. Vissulega óvenjulegt við
fangsefni stjórnunarbókar en
engu að síður mikilvægt því of
náin tengsl vinnufélaga og þær
flækjur sem þeim fylgja geta í
einstaka tilfellum haft lamandi
áhrif á aðra á vinnustaðnum
og þannig haft neikvæð áhrif á
frammistöðu.
Hreinskilni og raunsæi
Segja má að bókin sé í heild
hreinskilin og raunsæ. Höfund
ur kemur til dyranna eins og
hann er klæddur. Þykist ekki
vera eitthvað sem hann er ekki
og reynir ekki að setja sig á
stall. Hann vitnar í fjölda kenn
inga en leggur höfuðáherslu á
hagnýti og hvernig hægt er að
nýta efni bókarinnar með sem
áhrifaríkustum hætti. Sú nálgun
er stærsti kostur þessarar bókar
og skipar henni í flokk með
áhugaverðum bókum sem allir
leiðtogar hafa gott af því að
fletta í gegnum.
fimm lögmál
foRyStuúlfSinS
Byggt á kenningum og fræðisetningum um leiðtogann
hefur höfundur sett fram sín eigin lögmál sem beita má við
raunverulegar aðstæður. Þessi fimm lögmál vill höfundur
meina að séu hans „þýðing“ á fræðunum yfir á mannamál.
Samskipti – Hæfni til að eiga góð samskipti er mikilvæg-
asta hæfnin í fari leiðtogans. Ef hún er ekki fyrir hendi getur
leiðtoginn ekki náð árangri. góð samskipti eru nauðsynleg
til að byggja upp traust en það er traust milli starfsmanns
og leiðtoga sem er það sem hvetur fólk til að leggja sig allt
fram við verkefni sín.
Ástríða – skuldbinding starfsmanna til árangurs mun auk-
ast til mikilla muna ef stjórnendur búa yfir ástríðu fyrir því
að ná árangri. Árangur hvetur árangur. orka og eldmóður
drífur orku og eldmóð.
Misskilningurinn um að „vita svörin við öllu“ – Einn mesti
misskilningur leiðtogans er sá að hann telji að hann verði að
eiga svör við öllu. góðir leiðtogar eru tilbúnir til að viður-
kenna að þeir vita ekki allt. Sterki leiðtoginn er umkringd ur
öflugu fólki og þarf því ekki að hafa svörin við öllu.
Mikilvægasta eign fyrirtækisins er starfsfólkið – Ekki er
erfi tt að þróa vinningslið ef það er sett í forgang. Allir
starfsmenn verða að upplifa að á þá sé hlustað, það sem
þeir leggi af mörkum sé metið og nauðsynlegt er að þeir
upplifi að þeir standi sig vel. Endurgjöf og hrós, sem hefur
merkingu og er veitt með réttum hætti, eykur sjálfstraust og
byggir upp teymið.
Valdtraust (e. empowerment) – Leiðtogar sem ná árangri
veita starfsmönnum sínum frelsi og traust til að taka áhættu
og sýna frumkvæði. Ávinningurinn af því að treysta starfs-
mönnum sínum fyrir valdi og verkefnum er mun meiri en
áhættan sem í því felst. Veittu fólki frelsi til að vinna hlutina
með sínu lagi.
„Alltof oft eyða fyrirtæki dýrmætum tíma
og miklum fjármunum í að leysa „röng“
vandamál þar sem greining þeirra er ekki
nægilega vel unnin.“
HVað EiGa úlfar og
leiðtogar SamEiGin-
lEGt?
„Úlfar eru félagsverur. Þeir ferðast saman, éta saman,
veiða saman og leika sér saman. oft er talað um úlfahjarðir.
Hjörðin samanstendur vanalega af stórfjölskyldunnni. Úlfar
innan hjarðar eru því blóðtengdir. Að vera viðurkenndur af
hópnum, njóta virðingar og umhyggju er úlfunum mikil-
vægt. Er væntumþykja, traust og virðing ekki það sem allir
starfsmenn sækjast eftir?
Alveg eins og skipurit fyrirtækja eru breytileg að stærð þá
er stærð úlfahjarða breytileg, að meðaltali sex til sjö úlfar.
Er það ekki nokkurn veginn í takt við framkvæmdastjórnir
fyrirtækja? Hver meðlimur hjarðarinnar, eins og meðlimur
framkvæmdastjórnarinnar, hefur ákveðið hlutverk. Stund um
slíta ungir úlfar sig frá hjörðinni (frumkvöðlar) til að finna
sér sína stöðu. Almennt eru eldri úlfarnir í hjörðinni leiðtog-
arnir og krefjast virðingar hjarðarinnar. Þeir taka á kvarðanir
fyrir hópinn. Hjörðin ver sig og hvern og einn sem í henni
er. Úlfurinn sem leiðir hjörðina ferðast fremstur, ryður braut-
ina og slær taktinn – svipað og forstjóri fyrirtækis, ekki satt.
Úlfurinn sem leiðir hjörðina er hins vegar ekki hræddur við
að deila hlutverki sínu með öðrum. Hann stígur til hliðar
öðru hvoru og leyfir þeim næsta að taka forystu þó svo að
hlutverkin séu skýr og þannig geta úlfarnir mátað sig í leið-
togahlutverkinu og vanist því þegar og ef kallið kemur um
að taka forystu í hópnum. Hljómar eins og þróun eftirmanna
ekki satt (e. succession planning).“
góðir stjórnendur ávinna sér virðingu starfsmanna
sinna. Áhrifaríkir leiðtogar ávinna sér ekki einasta
virðingu starfsmanna sinna heldur stuðla einnig
að því að starfsmaðurinn virði sjálfan sig.