Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 91
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 91
auknum umsvifum í ferðaþjónustunni, sem enn sér ekki fyrir endann á, fylgja að sjálfsögðu nýjar fjárfestingar
á vegum fyrirtækja í atvinnugreininni.
Fjármögnun nýfjárfestinga
í ferðaþjónustu
Landsbankinn
„Ef eðlilegt sam
ræmi er milli stofn
kostn að ar og tekna
hef ur bankinn
verið áhugasamur
um að fjármagna
verkið.“
Brýnast að fjölga gistirýmum
Davíð Björnsson, forstöðumað
ur á fyrirtækjasviði Lands
bankans:
Á síðustu árum hefur verið
brýnast að fjölga gistirýmum en
á því sviði hefur bankinn verið
í forystu í fjármögnun nýrra
verkefna og hefur fjármagn
að byggingu eða stækkanir á
hótelum, bæði í Reykjavík og
á landsbyggðinni. Eins höf um
við fjármagnað kaup á áhuga
verðum hótelum um allt land,
enda finnum við fyrir aukn um
áhuga hjá reyndu og metn aðar
fullu fólki sem er að hasla sér
völl í þessum rekstri. Þá finn um
við líka fyrir aukinni eftirspurn
vegna fjármögnunar bíla leigubíla
og hópferðabíla og það hefur
eðlilega fylgt fjölgun ferða
manna.
að mörgu að hyggja við
fjármögnun
Það er ýmislegt sem bankinn
leggur til grundvallar þegar
hann tekur ákvörðun um fjár
mögnun. Það er auðvitað að
mörgu að hyggja og allir þræðir
þurfa að tengjast saman. Sé
dæmi tekið af hóteli sem reisa á
úti á landsbyggðinni leggjumst
við vel yfir áætlanir eigenda
um stofnkostnað enda er mikil
vægt að honum sé stillt í hóf,
eða a.m.k. að hann endurspegli
áætlaðar tekjur af starfseminni.
Við skoðum síðan rekstraráætl
anir og fullvissum okkur um að
þær séu í samræmi við það sem
almennt þekkist í viðkom andi
landshluta. Ef eðlilegt sam
ræmi er milli stofnkostnaðar
og tekna hefur bankinn verið
áhugasamur um að fjár magna
verkið. Vissulega má hið
sama segja um ný verkefni á
Reykjavíkursvæðinu, en þar má
reyndar stofnkostnaður vera
hærri enda er nýting hótela
að öllu jöfnu betri í Reykjavík
þegar horft er yfir allt árið.
mikilvægur stuðningur fyrir
þróun ferðaþjónustu
Landsbankinn hefur tekið
virkan þátt í því að auka
um svif ferðaþjónustunnar á
undan förnum árum í samræmi
við yfirlýst markmið um að
vera hreyfiafl í samfélaginu.
Við skipti við ferðaþjónustu
fyrir tæki hafa markvisst verið
aukin og ég treysti mér til að
fullyrða að bankinn hafi tekið
afgerandi forystu þegar kemur
að fjármögnun nýfjárfestinga
í greininni. Við teljum að sá
stuðningur sem við veitum sé
mjög mikilvægur fyrir áfram
haldandi þróun ferða þjón
ust unnar og við erum sérlega
ánægð með að hafa fjármagnað
uppbyggingu víða um land,
jafnt á Patreksfirði og Hraun
eyjum sem og í Reykja vík. Við
viljum vera í forystu í ferða
þjónustu, svo einfalt er það.“
TexTi: Hrund HauKsdÓTTir
Davíð Björnsson, forstöðumaður á fyrirtækjasviði Landsbankans.