Frjáls verslun - 01.01.2013, Side 93
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 93
flugfélag Íslands flytur mikið af íslenskum hópum milli landshluta og bendir hópum gjarnan á afþreyingarfyrirtæki
sem eru í samstarfi við flugfélagið á hverjum stað.
upplifun fyrir ævintýragjarna
Flugfélag Íslands:
„Ber helst að nefna
að framvegis verður
hægt að breyta
bókun og afbóka á
netinu en í dag er
það einungis gert í
gegnum síma.“
Að sögn Evu Bjarkar Guð jónsdóttur, deildar stjóra þjónustu
vers, er Flugfélagið einnig með
þó nokkuð af skipulögðum
dagsferðum á Akureyri, Egils
staði og Ísafjörð. „Þá er flogið
frá Reykjavík að morgni og
komið til baka seinnipartinn.
Þessar dagsferðir hafa verið
mjög vinsælar hjá erlendum
ferðamönnum og við finnum
fyrir auknum áhuga í þær hjá
landanum. Við erum t.d. með
tvær nýjar ferðir á Akureyri, í
samvinnu við Saga Travel, sem
hafa slegið í gegn. Annars vegar
er um að ræða svokallaða Sæl
keraferð um Eyjafjörð, þar sem
m.a. er siglt út í Hrísey, krækl
ingaræktin skoðuð á leiðinni og
hádegisverður snædd ur á eynni.
Einnig er far ið í heimsókn til
veiðimanna, fisk verkenda, kjöt
framleiðenda og bruggara þar
sem við fáum sýnishorn af hinni
fjölbreyttu eyfirsku matvæla
flóru í því umhverfi sem hún er
ræktuð, veidd, alin eða unnin í.
upplifun fyrir
ævintýragjarna
Önnur mjög spennandi upplif
un fyrir ævintýragjarna er ferð
í Lofthellinn í Mývatnssveit.
Lengd hellisins er um 370 metr
ar og er hann á fimm hæðum.
Mesta hæð er fimmtán metrar
en víða þarf að ganga boginn
eða skríða. Saga Travel leggur
fram nauðsynlegan búnað,
t.d. höfuðljós, hjálma og negld
stígvel. Þessi ferð er ógleyman
leg en hentar mögulega ekki
fólki með innilokunarkennd
eða myrkfælni. Lesa má um
þessar og aðrar frábærar dags
ferðir á heimasíðu Flugfélags
ins: www.flugfelag.is.
Einnig höfum við verið að
selja hópum og einstaklingum
flug og hótel til Færeyja. Þá er
flug til Grænlands mjög stór
hluti af starfsemi okkar, sérstak
lega yfir sumartímann, og er
áhugi erlendra ferðamanna
á Grænlandi mikill enda um
stór brotna náttúrufegurð að
ræða. Eitthvað hafa Íslendingar
smitast af áhuganum því við
fáum margar fyrirspurnir um
Grænlandsferðir.
nýr vefur
Á nýja vefnum okkar, sem fer í
loftið í febrúarlok, verður boðið
upp á margar skemmtilegar
nýjungar. Ber helst að nefna
að framvegis verður hægt að
breyta bókun og afbóka á netinu
en í dag er það einungis gert í
gegnum síma. Einnig verður
hægt að kaupa dagsferðir og
pakkaferðir beint á netinu. Við
munum breyta fargjöldun
um þannig að farþegar njóti
góðs af; t.d. með lægri lægstu
fargjöldum og fleiri sætum í
boði á ódýrari fargjöldum. Í
einhverjum tilfellum verður
hægt að setja inn afsláttarkóða,
eða Flugslátt, þar sem boðið
verður upp á afslátt af öllum
fargjöldum í ákveðnum tilfell
um. Auk þessa verður margt
annað í boði og mikil og jákvæð
breyting verður einnig á útliti
heimasíðunnar.“
TexTi: Hrund HauKsdÓTTir Myndir: Geir Ólafsson
Starfsfólk þjónustuvers Flugfélags Íslands. Ingibjörg Dís, Svala, Eva Björk, Berþóra, Brynja, Jóhanna og Steinunn Ósk.