Frjáls verslun - 01.01.2013, Síða 99
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 99
Þessi ráðstefna hafði verið haldin tvisvar áður og höfðu þá konur verið í meirihluta í salnum. Í þetta skipti þótti mikilvægt
að fá karla á ráðstefnuna og voru konur
hvattar til að koma með karlmann með sér
á ráðstefnuna og var aðgangseyrir sá sami
og ef kona kom ein.“
Hafdís segir að karlmenn hafi verið um
40% ráðstefnugesta þetta árið og hafi verið
öðruvísi að líta yfir salinn en á fyrri ráð
stefnum. „Mér finnst því þessi ráðstefna
eftirminnileg fyrir utan að fyrirlesarar voru
mjög góðir.“
Karlmenn um
40% ráðstefnugesta
Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga Spa, segir að eftir-
minnilegasta ráðstefnan í sínum huga sé ráðstefnan „Virkjum
kraft karla og kvenna“ sem Félag kvenna í atvinnulífinu stóð
fyrir árið 2009 ásamt Viðskiptaráði Íslands, Samtökum at-
vinnu lífsins og LeiðtogaAuði.
Eftirminnileg ráðstefna
Helstu ráðstefnurnar
Icelandair Group, Harpa og fjöldi þjónustu fyri rtækja
og ferðaskrifstofa hafi staðið í fyrra að margföldun
á stuðningi og fjárframlagi til markaðssetningar
á ráðstefnumarkaðnum sem hófst með stofnun
Ráðstefnuborgarinnar Reykja víkur eða Meet in
Reykavík í upphafi árs 2012.
„Menn fóru að gefa kirfilega í og það er verið
að sækja á með meiri kynningu og beinni sókn á
markaðinn úti sem þýðir meðal annars meiri þátttaka
í alþjóðlegum sýningum með aðildar félögum. Þá er
meiri áhersla lögð á að fá ferðaskipuleggjendur og
blaðamenn til Íslands til að kynna fyrir þeim getuna
og aðstöðuna sem við höfum. Einnig er búið að leggja
mikla áherslu á upplýsingar á vefnum og almennt
markaðsefni sem nýtist við markvissa til boðs gerð í
stærri viðburði.“
Meðal stórra verkefna sem unnið hefur verið að upp
á síðkastið má t.d. nefna Evrópumót í hópfimleikum
sem mun koma til Reykjavíkur haustið 2014 með
áætluðum gestafjölda upp á 2.5003.500 manns og
eins stendur valið á milli Reykjavíkur og Miami
varðandi það hvor borgin verður fyrir valinu sem
mótsstaður fyrir World Outgamesleikana árið
2017. World Outgames er íþrótta, menningar og
mannréttindahátíð sem stendur yfir í tíu daga fjórða
hvert ár með áætluðum gestafjölda upp á 10.000
12.000 manns. Auk Reykjavíkur sóttu borgirnar Rio de
Janeiro, Róm, Denver og Miami um að halda leikana
en ákveðið hefur verið að valið standi einungis á milli
Reykjavíkur og Miami.
Þorsteinn Örn segir að ekki séu til góðar mæl ingar
á fjölda ráðstefnugesta á ári. Talað hefur verið um að
þeir séu líklega á bilinu 2535.000 en markmiðið sé að
fjölga þeim að minnsta kosti um 510.000 árlega.
Í tilkynningu frá Hörpu hefur komið fram að bókanir
fyrir ráðstefnur árið 2013 séu um 55% fleiri en þær voru
í fyrra; mest munar um fjöl þjóð legar ráðstefnur og má
búast við því að hátt í fimmtán slíkar verði haldnar í
Hörpu á þessu ári.
Á meðal stórra ráðstefna sem voru haldnar í fyrra
má nefna 30th Nordic Geological Winter Meeting,
ráðstefnu um Evrópustofu, sameigin legt vísindaþing
SKÍ, SGLÍ og FÍFK,The Eur opean Clubhouse
conference, The Scandi navian Transplantation Society
XXVI Congress, TERENA Networking Conference,
10th Nordic Nutrition Conference, XXXIII Nordic
Congress in Clinical Chemistry, 6th Nordic Congress
on Pediatric Pain. Þess má geta að um 1.000 manns
mættu á Læknadaga, um 1.500 manns á CCP Fanfest
og um 800 manns á Via Nordica sem var alþjóðleg
ráðstefna vegagerðarmanna.
Á meðal ráðstefna sem haldnar verða á þessu ári
má nefna Iceland Goethermal Conference, The XIII
Nordic Theoretical Archaeology Group Conference,
Norrænir nýrnadagar, 65th Annual Meeting of the
Scandinavian Neurosurgical Society, 46th Nordic Lung
Congress, Nordic Society of Nephrology 32nd Biennal
Congress og Vísindaráðstefna HÍ. Fjölmennustu
fyrirhuguðu ráðstefnurnar á þessu ári eru CCP Fanfest,
The Universal Congress of Esperanto og 89th. EOS
Congress.
Við hjá Gestamóttökunni sjáum um að skipuleggja og
halda utan um ráðstefnur, fundi, ferðir og viðburði.
Okkar er að sjá til þess að þú getir notið þín til fulls í
hlutverki gestgjafans, svo saman fari gleði og árangur.
Ráðstefnur og fundir
- Komdu á okkar fund! Sími: 551 1730 | gestamottakan.is
Gleði og árangur
Ráðgjöf
Bókanir
Umsýsla
Rafræn skráning o.fl.