Frjáls verslun - 01.01.2013, Qupperneq 111
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 111
leyndarmálum sem þola varla
dagsljósið.
Í aðalhlutverkum eru James
McAvoy, sem leikur Simon,
Vincent Cassel, sem leikur
glæpaforingjann Franck, og
Rosanna Dawson, sem túlkar
dáleiðarann Elizabeth. Þegar
Danny Boyle fyrst kynnti
Trance voru aðrir leikarar
orð aðir við hlutverkin. Michael
Fassbender var um tíma talinn
líklegur til að leika Simon,
Colin Firth var orðaður við
hlutverk Francks og Scarlett
Johansson og Zoe Zaldana
við hlutverk Elizabeth.
Danny Boyle er ekki marg
orður um Trance þegar
hann var spurður um hvað
hún fjallaði en sagði þó að
hugmyndin væri komin frá
gömlum sakamálamyndum:
„Löngun mín var að gera
„film noir“kvikmynd en með
miklum tilfinningum, öfugt við
film noir þar sem persónur
eru venjulega kaldar, en þrátt
fyrir að persónurnar í Trance
eigi margt sameiginlegt með
persónum úr slíkum kvikmynd
um eru þær um leið nútíma
legar.“
Vildi ekki aðalstign
Eftir hina vel heppnuðu opnun
arhátíð Ólympíuleikanna og
með í huga hversu frábæran
feril Danny Boyle á að baki
kom ekkert annað til greina hjá
bresku krúnunni en að aðla
kappann, en þar var komið að
vegg því hann neitaði heiðrin
um: „Allir sem þekkja mig
vita að ég er á móti titlum á
borð við þá sem veittir eru af
bresku konungsfjölskyldunni.“
Danny Boyle verður því aldrei
sir Danny og fetar hann þar
með í fótspor leikarans Alberts
Finneys, leikkonunnar Van
essu Redgrave og popparans
Davids Bowies, sem eru meðal
nokkurra þekktra einstaklinga úr
listaheiminum sem hafa neitað
slíkri upphefð og Finney meira
að segja tvisvar.
Hvað varðar framtíðarverk
efni hjá Danny Boyle þá er
hann með ýmislegt í farvatn
inu, bæði sem framleiðandi
og leikstjóri. Eitt framtíðarverk
efnið er 28 Months Later
sem kæmi sem lokakafli við
28 Days Later og 28 Weeks
Later, en Boyle leikstýrði fyrri
myndinni og framleiddi þá
seinni. Þá hefur hann sagt að
hann langi til að vinna aftur
með Ewan McGregor, sem lék
aðalhlutverkið í þremur fyrstu
kvikmyndum hans, A Shallow
Grave, Trainspotting og A
Life Less Ordinary, en vinslit
urðu á milli þeirra þegar Boyle
valdi Leonardo DiCaprio til að
fara með aðalhlutverkið í The
Beach í stað McGregors sem
hafði sóst eftir hlutverkinu.
Danny Boyle á opnunarhátíð
á Ólympíuleikunum í London
síðastliðið sumar, athöfn þar
sem hann var listrænn
stjórnandi.
og erfitt að taka eina fram yfir aðra
GæðIn MIKIl
Aldrei þessu vant eiga þær níu kvikmyndir sem tilnefndar
eru til óskarsverðlaunanna sem besta kvikmynd tilnefningu
na skilið, en þegar ameríska kvikmyndakademían fjölgaði
tilnefningum úr fimm í mest tíu voru margir sem sögðu að
þarna væru markaðsöflin að verki með það að leiðarljósi að
óskarstilnefning sem besta kvikmynd myndi auka aðsóknina.
Hvað sem því líður eru gæðin einstaklega mikil í ár og sjaldan
hefur verið jafnerfitt að spá um hvaða mynd verður valin. Hér
verður aðeins fjallað í stuttu máli um hvað myndirnar hafa
með sér í óskarsbaráttuna og hvað vinnur gegn þeim.
AMOUR
Með: Sagan höfðar örugglega til
eldri meðlima akademíunnar og kvik
myndin hefur verið á öllum listum yfir
bestu kvikmyndir á síðasta ári.
Móti: Textuð yfir á ensku og varla
fara Bandaríkjamenn að velja an
nað árið í röð franska kvikmynd, en
The Artist vann í fyrra.
ARGO
Með: Ben Affleck er í miklu
uppáhaldi í Hollywood um þessar
mundir auk þess sem Argo hefur
fengið frábæra dóma og óvænt
mikla aðsókn.
Móti: Lincoln og Zero Dark Thirty
eru einnig pólitískar kvikmyndir og
eru með sterkari bakgrunn.
BEAST OF THE
SOUTHERN WILD
Með: Hefur átt góðu gengi að
fagna á kvikmyndahátíðum, m.a.
Sundance. Hugljúf ævintýrasaga
með níu ára aðalleikkonu sem
bræðir hjörtu áhorfenda.
Móti: Fyrst og fremst er það
markaðurinn sem vinnur gegn
henni en myndin var mjög ódýr og
litlir peningar til að koma henni á
framfæri við akademíuna.
DJANGO
UNCHAINED
Með: Quentin Tarantino. Flestir
vilja að hann fái einhvern tímann
óskarinn. Vinsælasta kvikmynd
hans hingað til og frábærir dómar
ættu að hjálpa honum.
Móti: Bandaríska kvikmyndaaka
demían. Engin kvikmynda hans
hefur verið valin besta kvikmynd
og hann aðeins fengið fjórar
tilnefningar og einu sinni fengið
óskarinn fyrir handrit (Pulp Fiction).
LIFE OF PI
Með: Einn af meisturum kvikmynd
anna, Ang Lee, reynir sig við
þrívíddar formið með góðum ár angri,
frábær útfærsla á verðlaunaðri bók
með fullkomnum tæknibrellum.
Móti: Þarna erum við aftur komin
að meðlimum kvikmyndaake demí
unnar þar sem meðalaldur er frekar
hár og þar með sætta sig þeir
kannski ekki við nýstárlegt útlitið.
LINCOLN
Með: Spielberg í fínu formi og ekki
eyðileggur möguleikana stórkost
legur leikur Daniels DayLewis og
þar að auki hefur myndin notið
mikilla vinsælda.
Móti: Fátt sem mælir á móti nema
kannski að meðlimir akademíun
nar telji að Steven Spielberg
sé búinn að fá sinn skammt af
óskarsverðlaun um, hvort heldur sem
er hann sjálfur eða kvikmyndir hans.
LES MISéRABLES
Með: Uppáhald margra. Sagan
segir okkur að góðar söngleikja
myndir eiga meiri möguleika en
aðrar kvikmyndir og Les Misérables
er svo sannarlega á meðal þeirra
bestu.
Móti: Ef slagurinn mun standa á milli
tveggja sögulegra kvikmynda stendur
Lincoln sjálfsagt betur að vígi.
SILVER LINING
PLAyBOOK
Með: Hefur með tímanum, frá því
hún var frumsýnd við ekki mikla
athygli, unnið sér inn góðar umsagn
ir og nýtur enn góðrar aðsóknar og
safnar að sér aðdáendum.
Móti: Allar aðrar. Silver Lining Play
book er kannski sú kvikmynd sem
erfiðast er að melta fyrir suma.
ZERO DARK THIRTy
Með: Kathryn Bigelow. Eina
konan sem hefur haslað sér völl á
stríðsleikvangi karlanna og gerir
það betur en þeir flestir. Einnig ætti
að hjálpa nýliðinn atburður sem
myndin fjallar um og Bandarík
jamenn eru stoltir af.
Móti: Bandarísk stjórnvöld hafa
gagnrýnt Bigelow fyrir að sneiða
stundum hjá réttri atburðarás og
ýkja annað til að fá meiri spennu.
ósKarsverð
Launin
besta
KviKmyndin