Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 113

Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 113
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 113 É g er þakklát fyrir það alla daga að hafa fengið tækifæri til að starfa sem mann­ auðsstjóri því starfið er í senn fjölbreytt, gefandi og krefjandi, alveg eins og ég vil hafa það. Starf mitt felur í sér mjög ólík verkefni, allt frá því að taka stefnumarkandi ákvarðanir sem varða starfsmannamál í að sinna viðkvæmum málefnum sem snúa að fólki almennt. Vörður hefur á undanförnum misserum lagt aukna áherslu á mannauðsmálin og leitað leiða til að styrkja þann þáttinn í starf­ seminni. Margvísleg verkefni fylgja því starfinu en það verkefni sem helst liggur á mínu borði þessa dagana er úrvinnsla vinnu staðagreiningar sem fram kvæmd var nýlega hjá fé laginu. Þá er ég einnig að vinna grunnvinnu fyrir jafnlauna­ úttekt sem framkvæmd verður hjá félaginu og mun hjálpa okkur í að treysta jafnrétti kynja í launum. Einnig erum við að byrja undirbúningsvinnu fyrir frammistöðusamtöl sem gefa okkur tækifæri til endurgjafar og mats á styrkleikum og veikleik­ um okkar starfsmannahóps og greiningu á fræðslu­ og þjálfunarþörf. Skemmtilegasta verkefnið sem er á borði mínu í dag er skipulagning á fögnuði starfsmanna og maka þeirra, en félagið náði þeim markmiðum sem sett voru fyrir 2012 og því ætlum við að fagna þeim ár angri með viðeigandi hætti.“ Harpa segist eiga stóra, samheldna og háværa fjöl­ skyldu og liggja ræturnar bæði til Siglufjarðar og Færeyja. „Fjölskyldan er þekkt fyrir að tala mikið, hlæja hátt og hafa unun af því að borða góðan mat. Amma okkar frá Færeyjum kenndi okkur að halda upp á allt sem mögulegt er að halda upp á með veislu og þeim sið viðhöldum við. Ég er yngst fjögurra systra og allar eigum við börn og njótum þess að eiga góðar samverustundir.“ Harpa á tvö börn, Lenu Maríu, 15 ára, og Emil Örn, 14 ára. „Bæði eru þau á kafi í íþróttum, æfa fótbolta og körfubolta. Ég er borinn og barnfæddur Garðbæingur og hef búið þar alla mína tíð og vil hvergi annars staðar vera. Eftir grunnskólapróf frá Garðaskóla fór ég í Kvenna­ skólann í Reykjavík og þaðan í Háskóla Íslands þar sem ég lærði hjúkrunarfræði. Ég starfaði við hjúkrun um nokkurt skeið, bæði við slysa­ og krabbameins­ hjúkrun en sneri mér að einka­ geiranum og endaði í meist­ aranámi í mannauðsstjórn un við HÍ. Hvað áhugamál varðar eiga börnin mín tvö hug minn allan og eru áhugamál mitt númer eitt enda hrikalega gaman að fylgja þeim eftir í lífinu. Þar fyrir utan hef ég áhuga á allri útivist en veiði, golf, skíði, fjallgöng­ ur, hlaup, útilegur og annað þess háttar er nokkuð sem við hendumst í þegar tími vinnst til. Einnig hef ég sungið mikið og er í frábærum kvennakór, Léttsveit Reykjavíkur. Söngur er mjög gefandi og ég fæ mikla útrás í því að syngja. Sumarhús fjölskyldunnar í Grímsnesi er mikið notað fyrir fjölskyldu­ og vinaferðir og einnig eigum við athvarf á hinum frábæra stað Siglufirði sem við nýtum okkur, þá sérstaklega á veturna, og skíðum þar á besta skíðasvæði okkar Íslendinga. Skíðafrí eru uppáhaldsfrí fjöl­ skyldunnar. Síðasta vet ur fórum við í langa ferð til Austurríkis þar sem við áttum magnaða daga í Ölp unum með hópi vina og framund an er gott skíðafrí fyrir norðan þar sem norðlensku alparnir fá að finna fyrir því. Sumarið er svo handan horns­ ins. Þá ætla börnin mín utan í keppnisferðir en markmið mitt er að leggjast í undirbún ing fyrir Laugavegar maraþon og vinna niður forgjöfina í golfinu. Árið 2013 leggst því vel í mig og næg verkefni framundan, en það er einmitt eins og ég vil hafa það.“ Harpa Víðisdóttir – mannauðsstjóri hjá tryggingafélaginu Verði Nafn: Harpa Víðisdóttir Fæðingarstaður: Reykjavík, 29. júní 1970 Foreldrar: Karen Júlía Magnúsdóttir og Víðir Finnbogason Maki: Einstæð Börn: Lena María, 15 ára, og Emil Örn, 14 ára Menntun: BS í hjúkrunarfræði, MS í mannauðsstjórnun „Sumarhús fjölskyldunnar í Grímsnesi er mikið notað fyrir fjölskyldu- og vinaferðir og einnig eigum við athvarf á hinum frábæra stað Siglufirði sem við nýtum okkur, þá sérstaklega á veturna, og skíðum þar á besta skíðasvæði okkar Íslendinga.“ fóLk
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.