Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 33
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 33
F
élagið hefur gjarnan
verið nefnt Óskabarn
þjóð arinnar enda
var stofnun þess
álitin leggja sitt á
lóð ar skálarnar í sjálfstæðisbar
áttu íslensku þjóðarinnar. Á
stofn árinu varð Eimskip þegar
alþjóðlegt flutningafyrirtæki með
samstarfsaðila víðs vegar um
veröldina. Hin sögulega tilkoma
Eimskipafélagsins blés mönnum
kraft og bjartsýni í brjóst. Frá
upphafi naut fyrirtækið eindæma
velvilja og þessum tímamót um
þjóðarinnar fylgdu miklar eftir
vænt ingar.
Með stofnun Eimskipafélagsins
tók íslenska þjóðin í eigin hend
ur samgöngur og flutninga til
landsins og frá og var því ekki
lengur háð öðrum þjóðum líkt og
raunin hafði verið um aldir. Hin
gríðarlega þátttaka almennings
í hlutafjárútboði félagsins á
árunum 1914 til 1917 var þáttur
í þeirri þjóðlegu vakningu sem
leiddi til fullveldisins 1918 og
stofnunar lýðveldis 1944. Því var
einlægt heitið sem almenningur
gaf Eimskipafélgi Íslands í upp
hafi: „Óskabarn þjóðarinnar“, og
endurspeglaði ánægju og stolt
landsmanna.
Sagan í stiklum
Framtíðin blasti björt við Eim
skipa félagsmönnum og stuðn
ings neti þeirra, strax í árdaga
fyrir tækisins. Í fyrri heimsstyrjöld
inni hóf Eimskip siglingar en það
reyndist ómetanlegur þáttur í
því að fyrirbyggja að upp kæmi
skortur á nauðsynjavörum, sem
ella hefði getað orðið raunin. Í
síðari heimsstyrjöldinni drógu
erlend skipafélög sig í hlé og
hefði sigið á ógæfuhliðina hjá
þjóðinni án siglinga Eimskipa
félagsins vestur um haf. Þann ig
varð saga Eimskips sam ofin
þjóðarsögunni, eins og Guð
mundur Magnússon orðar það í
bók sinni: Eimskipafélag Íslands
í 100 ár. Bókin, sem er saga
félagsins, er að stofni til byggð
á bókinni Eimskip, frá upphafi til
nútíma, sem kom út 1988. Í bók
Guðmundar er sagt mun ítarlegar
frá fjölbreyttri sögu félagins og
nær hún allt fram til ársins 2013.
Í dag er Eimskipafélag Íslands
einnar aldar gamalt og því með
elstu starfandi fyrirtækjum lands
ins. Saga félagsins er samofin
þjóðarsögunni og hef ur því
mikla sérstöðu meðal atvinnu
fyrir tækja.
bjargvættur í styrjalda
umróti
Mikilvægi Eimskipafélagsins
fyrir hina íslensku þjóð kom svo
sannarlega í ljós í heimsstyrj öld
unum á síðustu öld þegar erlend
skipafélög hættu sigl ing um
hingað til lands. Eimskip hóf
siglingar til Bandaríkjanna í fyrri
heimsstyrjöldinni en þær sigl
ingar komu í veg fyrir alvarlegan
skort á ýmsum nauð synjavörum
í landinu. Veturinn 19391940,
eða í upphafi síðari heimsstyrj
ald ar, sannað ist enn hversu
ómetanlega þýð ingu félagið
hafði fyrir aðdrátt nauð synja til
landsins. Þegar erlendu skipa
félögin drógu sig í hlé komu
Ameríkusiglingar Eim skipa fé
lags ins í veg fyrir að á Íslandi
skapaðist vandræðaástand.
Eimskipafélagið var stofnað
sem hlutafélag. Í raun var félagið
það sem kallað er þjóðþrifa
fyrirtæki. Það var stofnað til að
gera gagn en ekki til að skapa
eigendum sínum, hluthöfunum,
sérstakan fjárhagslegan ágóða.
Fyrstu áratugina sem félagið
starfaði var það einmitt í senn
styrkleiki og veikleiki Eimskipa
félagsins. Styrkurinn fólst í hinni
miklu samstöðu almenn ings um
að leggja peninga í fyrirtækið,
eiga viðskipti við það og styðja
með margvíslegum hætti, á
erfið leikatímum. Það var hins
veg ar snúið viðfangs að snemma
voru gerðar margvís legar kröfur
um þjónustu sem gat verið
vandkvæðum bundið að inna
af hendi og var á stundum
ósam rýmanleg eðlilegum rekstri
félagsins. Ekki mátti aðeins
hafa hagkvæmni og arðsemi að
leiðar ljósi.
nútíminn vill upp á dekk
Þegar fram liðu stundir lagaði
Eimskipafélagið sig að nútíma
kröfum til fyrirtækja. Almenn og
sértæk tækniþróun hafði einnig
mikil áhrif og tilkoma gáma og
tölva byltu fullkomlega flutn inga
starfseminni.
Í byrjun níunda áratugarins
mörkuðu stjórnendur Eim skipa
félagsins nýja flutningastefnu en
þá var lögð áhersla á að félagið
annaðist alhliða vöruflutninga,
ekki aðeins með skipum frá
einni höfn til annarrar, heldur
einnig land og loftleiðis. Þetta
tengdist þeim breytingum sem
urðu til fyrir tilstuðlan gámanna,
sem enn í dag eru hinir stöðluðu
einingaflutningar. Skipin töldust
nú til eins hlekks af mörgum
í sjálfri flutningakeðjunni. Á
tíunda áratugnum hóf fé lag
ið svo markvissa þátttöku á
inn lendum hlutabréfamarkaði.
Hug myndin byggðist á því að
dreifa áhættu flutningastarfsem
innar. Fjárfestingarstarfsemin
reyndist árangursrík en um leið
var hún mjög umdeild. Þótti
sumum Eimskipafélagið vera
orð ið of fyrirferðarmikið í íslensku
þjóð félagi og þessar deilur juk ust
þegar félagið var orðið eig andi
að nokkrum stærstu út gerðar
fyrirtækjum landsins, við upphaf
þessarar aldar.
Eigendaskipti og
stefnu breytingar
Deilurnar um stöðu og stefnu
Eimskipafélagsins voru rótin
að eigendaskiptum á félaginu
haustið 2003. Athafnamennirnir
Björgólfur Guðmundsson og
Björgólfur Thor Björgólfsson,
sem þá höfðu nýlega eignast
Landsbankann, náðu yfirráðum
yfir Eimskipafélaginu. Feðgarn
ir breyttu starfsemi félagsins
og seldu einstakar einingar
rekstrarins. Yfirlýst markmið
var að Eimskipafélagið einbeitti
sér framvegis að flutningastarf
semi. Árið 2005 seldu þeir
viðskiptafélaga sínum, Magnúsi
Þorsteinssyni, Eimskipafélagið
og innlimaði hann það í eignar
haldsfélag sitt Avion Group
sem sinnti bæði flugrekstri
Afmælisgestir fjölmenntu á afmælistónleikana í Hörpu.