Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 91

Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 91
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 91 sér langtímamarkmið í fjár mál ­ um; aftur lendum við Íslend ­ ingar í næstneðsta sæti landanna fjórtán. Erlendar rannsóknir benda jafnframt á að skortur á fjár ­ málalæsi auki líkur á greiðslu falli lántakenda. Í rann sókninni sem getið er hér að ofan og var gerð árið 2011 kemur fram 23% Íslendinga höfðu tekið lán til að ná endum saman einhvern tíma undanfarna tólf mánuði, margfalt hærra hlutfall en til dæmis í Þýska landi (4%), Noregi (7%) eða Bretlandi (9%). Mikil vitundarvakning hef ­ ur orðið undanfarin ár um mikil vægi fjármálalæsis. Fjár ­ mála læsi er komið á dagskrá í aðalnámskrá grunn­ og fram ­ halds skóla. Árið 2011 skipaði mennta málaráðherra stýrihóp undir stjórn Sölva Sveinssonar sem á að efla fjármálalæsi í grunn­ og framhaldsskólum. Þá er að finna í stefnuyfirlýsingu ríkis ­ stjórnarinnar sterk skilaboð um eflingu fjármálalæsis. Fjármálalæsis er þörf til að taka upplýstar ákvarðanir í flókn ­ um heimi. Þetta er svo augljóst að OECD ákvað í fyrra að bæta fjármálalæsi við PISA­rann sókn sína, til viðbótar við stærð ­ fræði, lestur og náttúrufræði. En meginmarkmið PISA­rannsókn ­ anna er að meta hversu vel nem ­ endum hefur tekist að tileinka sér þá þekkingu og ná þeirri hæfni sem þeir þurfa á að halda til að taka fullan þátt í nútímasamfélagi. Þess væri óskandi að Íslendingar bæru gæfu til að taka þátt í fjármála læsishluta PISA­rann ­ sóknar innar framvegis. Fjármálalæsis er þörf til að vega og meta mikilvægi þess að fjárfesta í framhaldsnámi. Eftir að skyldunámi lýkur stendur ungt fólk frammi fyrir mikl um ákvörðunum sem hafa gífur ­ legar ákvarðanir á kjör yfir ævina. Ýmislegt bendir til þess að náms menn geri sér litla grein fyrir skilmálum námslána og endurgreiðsluákvæðum. Fjármálalæsiskennsla í skólum snertir einnig jafnrétti. Rannsóknir sýna að þeir sem best eru læsir á fjármál eru efnameiri giftir mennta menn. Fjármálalæsir eru þannig mun líklegri til að hafa mikið milli handanna en þeir sem eru verr læsir á fjármál. Erlendar rannsóknir benda til að um helm ­ ing auðsmunar megi skýra með fjármálalæsi. Með stóreflingu fjármálalæsis má tryggja að fólk taki meðvitaðar ákvarðanir í fjármálum áður fremur en eftir að það tekst á hendur skuldbindingar í fjármál um. Margir taka sér á herðar veru lega íþyngjandi fjárhagslegar skuldbindingar snemma á ævinni án þess að ígrunda þær. Má þar nefna námslán og tilheyrandi yfirdráttarlán þar sem þau eru eftirágreidd, tölvu kaupalán, bíla ­ lán, bindandi áskriftir, kredit kort, húsnæðis lán og svo má lengi telja. Þann ig má koma í veg fyrir kostn aðarsamar eftiráað gerðir sem á einn eða annan hátt lenda á einstakl ingunum sjálfum eða jafnvel samfélag inu í heild. Þá þarf einnig að koma til alls ­ herjar viðhorfsbreyting í þjóð ­ félaginu en segja má að lög og reglur endurspegli ríkjandi viðhorf hverju sinni. Það mætti halda því fram að skuldurum sé umbunað í formi vaxtabóta og endurgreiðslna en þeim sem spara sé hegnt með fjár magnstekjuskatti. Þannig hvetur umhverfið fremur til lán ­ töku en letur til sparnaðar. Öll erum við fjármagnseigendur í gegnum lífeyrissjóðina. Mán aðar ­ lega greiðum við 12% launa okkar í sameiginlega sjóði og samkvæmt lögum eiga lífeyrissjóðir að tryggja lágmarkslífeyri sem nemur 56% af meðallaunum sem greitt er af í lífeyrissjóð í mánaðarlegan elli ­ lífeyri til æviloka. Þar sem flestir hafa mun hærri laun í lok starfsævinnar en í upphafi hennar má reikna með að hlutfallið af lokalaunum sem við fáum í lífeyri sé þó nokkru lægra en 56%. Viljum við auka ráðstöfunartekjur okkar eftir starfslok þurfum við að leggja mun meira fyrir en við gerum nú. Til að það megi verða að veruleika þurfum við að taka höndum saman og skapa umgjörð sem hvetur til sparnaðar. Það minnsta sem við getum gert er að gefa næstu kynslóð tækifæri til að spara. Við þurf ­ um ekki að bíða eftir að aðrir, svo sem stjórnmálamenn eða embættismenn, efli fjármála læsi okkar eða færi fjármála læsis ­ kennslu í skólana. Við getum tekið fjár málalæsi í eigin hendur. Þú getur gerst fjármálalæsis­ erind reki. Hafðu samband við skólastjórnendur. Það ætti ekki að þurfa mikinn sannfæringarkraft eða sölumennsku. Nú þegar er til viðurkennt námsefni sem notað er í þó nokkrum skólum. Þá hefur Stofnun um fjármálalæsi frá árinu 2012 staðið fyrir námskeiðum í kennslu fjármálalæsis fyrir kennara. Við hina fáu sem telja fjármálalæsiskennslu óþarfa eða ekki ofarlega á dagskrá vil ég benda á að fáfræði í fjármálum hefur sýnt sig að virka ekki. Tök ­ um höndum saman og látum reyna á það. Sem hagfræðingur veit ég að fólk bregst jafnan vel við hvatningu. Hér er hún: Án grundvallarfjármálalæsis munu börnin þín fara fram á að fá skulda ­ leiðréttingar, rétt eins og foreldrar þeirra. Og hver mun þurfa að borga þær? Mikil vitundarvakn­ ing hef ur orðið undan farin ár um mikil vægi fjármála­ læsis. Breki Karlsson er forstöðu mað - ur Stofnunar um fjár mála læsi. Hann er með M.Sc. í hagfræði og alþjóða viðskiptum frá Copenhagen Business School og B.Sc í viðskipta - fræði frá Háskólan- um í Reykjavík. dæmi um SPaRNað að TekNu TilliTi Til VeRðBÓlgu og fJÁRmagNSTekJuSkaTTS. Verðbólga 3,10% fjármagnstekjuskattur 20% algengur óverðtryggður sparireikningur 4,6% algengur verðtryggður sparireikningur 75% dæmi um 1.000 kR. iNNiSTæðu Óverðtryggða sparisjóðsbókin Vextir 46 kr. fjármagnstekjuskattur: 9,2 kr. Verðbólgan étur 31 krónu. 46 ­ 9,2 – 31 = 5,8 eftir standa: 5 krónur og 80 aurar eða 0,58% raunvextir. VeRðTRyggða SPaRiSJÓðSBÓkiN Vextir: 17,5 kr. Verðbætur: 31 kr. fjármagnstekjuskattur: 9,7 (reiknað af vöxtum og verðbótum) Verðbólgan étur 31 krónu 17,5 + 31 ­ 9,7 – 31 = 7,8 eftir standa: 7 krónur og 80 aurar eða 0,78% raunvextir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.