Frjáls verslun - 01.01.2014, Qupperneq 129
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 129
„Okkar markmið er
að fjölga verðmætum
ferðamönnum með
áherslu á jafna dreif
ingu yfir árið og nýta
þannig innviðina yfir
vetrarmánuðina.“
Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri og
Brynja Laxdal markaðsstjóri
hjá Meet in Reykjavík segja
að markviss sókn og gríðarleg
vinna hafi skilað árangri:
„Við höfum unnið ötullega
að því að gera okkur sýnileg
erlendis en ekki síður hérna
heima því við erum sífellt að
vinna að því að efla umræðuna
um arðbærni ráðstefnu og
hvataferðamarkaðarins. Það
er mikilvægt að hlutaðeigandi
fyrirtæki og áhrifamenn séu
samstiga í þessari markaðssókn
og stefnumótun. Sömuleiðis
erum við að byggja upp hóp
tals manna (Meet in Reykjavík
am b assadora) innan íslensks
viðskipta, menningar og fræða
samfélags sem með stuðn ingi
okkar geta beitt áhrif um sínum
og komið með fundi, ráð stefnur
eða aðra viðburði til Íslands.
Við höfum meira að segja
útbúið iPadapp sem er frítt
í AppStore og inniheld ur
gríðar legt magn af upp lý sing
um, myndum og mynd böndum
og hjálpar öllum þeim sem vilja
kynna Reykjavík og Ísland sem
áfangastað fyrir hvers kyns
fundi eða viðburði. Appið heitir
einfaldlega Meet in Reykjavík.
Á meðal stærstu aðildarfélaga
Meet in Reykjavík eru Reykja
víkurborg, Icelandair Group
og Harpa. Svo eru það flestar
ráðstefnu og ferðaskrif stof
urn ar, öll stóru hótelin, Bláa
Lónið og tæknifyrirtæki eins
og Nýherji og Exton. Lands
bankinn kemur einnig sterkur
inn þótt hann hafi ekki beinna
hags muna að gæta en sýnir
með þátttöku sinni trú á ferða
þjónustunni, hann gerir sér
grein fyrir verðmætunum
sem fyrirtækin skapa. Sumir
styðja Meet in Reykjavík þar
sem þeir skilja mikilvægi
liðs heildarinnar, aðrir vegna
beinna viðskipta og hagsældar.
„Best City Convention
Bureau“ í Norður-Evrópu
Meet in Reykjavík starfar sem
markaðsstofa og er í raun
eins og millistykki milli erl
endra kaupenda og íslenskra
birgja; við sækjum á erl enda
mark aði og leitum eftir skipu
leggjendum ráðstefna, hvata
ferða eða stærri viðburða og
kveikjum áhuga þeirra. Þegar
því takmarki er náð setjum
við okkur í samband við þá
þjónustuaðila sem þeir þurfa á
að halda hérlendis. Það að vera
valin „Best City Convention
Bureau“ í NorðurEvrópu 2013
var frábær innspýting fyrir
starfsfólkið og starfsemi okkar.
Sóknin er m.a. fólgin í því
að við förum á sýningar erl
end is, við höldum úti mjög
öflugri vefsíðu, heimsækjum
fyrirtæki erlendis og bjóðum
skipuleggjendum heim til að
skoða aðstæður. Markaðir
sem við höfum verið að ein
blína mikið á eru eðlilega þeir
áfanga staðir Icelandair sem
flog ið er beint til, í Evrópu og
Ameríku. Gott aðgengi skiptir
höfuðmáli fyrir þann markhóp
sem við vinnum með. Það
kem ur stundum erlendum ráð
stefnuhöldurum á óvart hversu
vel er mætt á ráðstefnur sem
haldnar eru á Íslandi, oft betur
en í öðrum löndum, en reynsl
an hefur sýnt að fólk vill ekki
missa af þessu einstaka tæki
færi til að kynnast Íslandi.
Hámörkun gjaldeyristekna
Ferðaiðnaðurinn er að slá
sjávar útveginum við í gjald
eyris tekjum og ferðamönnum
fjölg ar jafnt og þétt. Okkar
mark mið er hins vegar að
hámarka gjaldeyristekjur úr
ferða þjónustunni með sem
minnst um ágangi á landið og
góðri nýtingu innviða utan
háannatíma. Líkt og aðrar
út flutningsgreinar er ferða
þjónusta háð aðgangi að nátt
úruauðlindum og kosturinn við
ráðstefnu og hvataferðagesti
er að þeir eru undir eftirliti
fag aðila sem eru að þjónusta
þá allan tímann og passa um
leið upp á öryggismál og góða
um gengni um landið. Raunin
er líka sú að oftast er greiðslan
á kostnað ráðstefnuhaldarans
og gest urinn hefur því aukið
svigrúm til almennrar eyðslu.
Þeir gera yfirleitt vel við sig í
mat og drykk, þeir nota síma
þjónustu í ríkari mæli og eyða
í raun allt að tvöfalt meira en
hinn hefðbundni ferðamaður.
Í sumar var t.d. haldin 2.500
manna EOSráðstefna (evrópskir
tann réttinga sér fræð ingar)
og þeir gestir skildu eftir sig
rúman milljarð í tekjum. Þessi
við burður hefði aldrei verið
haldinn á Íslandi nema fyrir
persónulegan metnað tveggja
einstaklinga eða svo kall aðra
Meet in Reykja víkam bassa
dora. Það eru mörg fleiri svona
tækifæri fram undan.
Svo merkilegt sem það er þá
eru ferðamenn sem heimsækja
okkur á veturna ívið ánægðari
en sumargestirnir – þeir heillast
af vetrinum okkar, myrkrinu
og norðurljósunum og við
eigum því að vera óhrædd við
að tala um og markaðssetja þá
árstíð, sem vissulega býr yfir
ákveðnum sjarma. Hvataferðir
hafa verið að teygja sig yfir á
myrkustu mánðina. Það var
t.d. um tvö hundruð manna
hvatahópur hér í byrjun janúar.
rannsóknir eru grunnur að
stefnumótun
Meet in Reykjavík hefur hafið
vinnu við gagnagrunn um
ráðstefnu, funda og hvata
ferða markaðinn. Þessar tölur
munu gefa okkur skýrari
mynd af verðmætasköpun
og þróun innan þessa geira
ferðaþjónustunnar og nýtast
til samanburðar við önnur
sam keppnislönd og til stefnu
mótunar. Því miður er það
svo að fjár magn til rann sókna
innan ferðaiðnað arins er ekki í
neinum takti við þá verð mæta
sköpun sem þessi grein skapar
íslensku samfélagi.
Háþróað þjónustustig í
bland við hið einstaka
Erlendir aðilar sem eru kunn
ugir í bransanum telja að innan
fárra ára geti Reykjavík verið
á listanum yfir tíu vinsælustu
alþjóðlegu ráðstefnuborgirnar
en kosturinn við Reykjavík er
góð aðstaða til ráðstefnuhalds,
ekki síst eftir að Harpa bættist
við, nútímaleg tækni, frábær
matur, öll þjónusta er innan
seilingar og stórbrotin náttúran
rétt utan við borgarmörkin. Þá
einkennir mikið menningar
og listalíf borgina. Ekki síður
státum við af góðu þjón ustu
stigi, öruggri borg og vinaleg
um íbúum. Allt eru þetta kostir
sem erlendir skipuleggjendur
leggja mikla áherslu á.“
Teymið hjá
Meet in Reykjavík:
Hildur Björg Bæringsdóttir,
Þorsteinn Örn Guðmundsson,
Brynja Laxdal markaðsstjóri,
Einar Gylfason, Sigurjóna
Sverrisdóttir og Hjördís María
ólafsdóttir.