Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Page 22

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Page 22
XVIII. ÞING FELAGS ISLENSKRA LYFLÆKNA FYLGIRIT 57 ræstra CD4+/CD25+ T-frumna jókst á fyrstu 24 klukkustundum (P=0,033). Þessi aukning var mest eftir enduropnun kransæða. A hinn bóginn reyndist tjáning CD54 (ICAM-1) á CD4+ T frumum vera minnkuð 24 stundum eftir hjartadrep (P=0,02). Að lokum minnkaði hlutfall CD14+ einkjarna frumna sem tjáðu HLA-DR. Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að CD4+ T frumur hafi hlutverki að gegna í bólguferli sem fylgir bráðu hjartadrepi og enduropnun kransæða. Þó er frekari rannsókna þörf. Verði þessar niðurstöður staðfestar gæti það leitt til nýrra meðferðarúrræða við enduropnun kransæða eftir brátt hjarta- drep. E 19 Nýgengi, flokkun og sjúkdómsmynd skjaldvakaofseytingar á íslandi Ari Jóhannesson', Ama Guðmundsdóttir1'2, Árni V. Þórsson1, Bolli Þórsson2, Gunnar Sigurðsson1, Gunnar ValtýssonM, Kolbeinn Guðmundsson3, Ragnar Bjamason1-3, Rafn Benediktsson1'2 ’Lyflæknasviði Landspítala, 2Læknasetrinu, 3Domus Medica, ‘1St. Jósefsspítala arijoh@landspitali.is Inngangur: í rannsókn á nýgengi skjaldvakaofseytingar á íslandi árin 1980-1982 reyndist það vera 23,6/100.000/á ári og 83,3% sjúklinga voru með Graves-sjúkdóm. Af ýmsum ástæð- um þótti rétt að kanna nýgengi, orsakir og sjúkdómsmynd skjaldvakaofseytingar að nýju, tæpum 25 árum eftir fyrri rann- sóknina. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var framskyggn og náði til tveggja ára (2004-2005). Allir innkirtlalæknar á íslandi skráðu nýgreind tilvik af skjaldvakaofseytingu á rannsóknartímanum ásamt orsökum og einkennum. Auk þess var haft samband við yfirlækna allra heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa, útskriftargrein- ingar á Landspítala skoðaðar svo og nýkomur á ísótópastofu Landspítalans á rannsóknartímanum. Sjúkdómsgreining og undirflokkun studdist við klíníska mynd og niðurstöður blóð- og myndgreiningarrannsókna. Niðurstöður: Alls greindust 259 einstaklingar með skjaldvaka- ofseytingu á rannsóknartímabilinu. Nýgengi var 44,2/100.000/á ári. Meðalaldur var 50,6 ár (9-92). Eitt hundrað sjötíu og tveir sjúklingar (66,4%) höfðu Graves-sjúkdóm, 36 (13,9%) ofseytandi hnút(a), 12 (4,6%) verkjalausa skjaldkirtilsbólgu, átta (3,1%) eftirburðarbólgu, 13 (5,0%) millibráða skjaldkirtilsbólgu, 11 (4,2%) skjaldvakaofseytingu tengda amíódaróni og sjö (2,7%) aðrar eða óþekktar orsakir. Nýgengi skjaldvakaofseytingar jókst með aldri, að 70 árum. Algengustu einkenni í Graves-sjúkdómi (>60%) voru hjartsláttarónot (79,3%), þreyta (78,8%), heitfengi (76,7%), aukin svitamyndun (71,1%), þyngdarbreyting (70,9%), skjálfti (67,5%) og mæði (60%). Ályktanir: Samanborið við fyrri rannsókn hefur nýgengi skjald- vakaofseytingar á íslandi nær tvöfaldast á tæpum aldarfjórð- ungi. Mögulegt er að bætt skráning skýri hluta af aukningunni. Graves-sjúkdómur er sem fyrr algengasta orsök skjaldvakaof- seytingar á íslandi. E 20 Faraldsfræði heiladingulsæxla á íslandi Tinna Baldvinsdóttir1, Ásta Bragadóttir1, Gunnar Sigurðsson1-2' Jón G. Jónasson1'4 Árni V. Þórsson1-3' Rafn Benediktsson1'2 ’Læknadeild HÍ, 2innkirtla- og efnaskiptasjúkdómadeild, 3Barnaspítala Hringsins Landspítala, 4Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands tib1@hi.is Inngangur: Rannsóknir benda til að nýgengi heiladingulsæxla fari vaxandi og hefur það verið skrifað á framfarir í myndgrein- ingartækni. Vísbendingar eru einnig um að algengi æxla er hafa klíníska þýðingu sé mun meira en áður var talið. Á Islandi var algengi talið 4,8/100.000 árið 1963. Efniviður og aðferðir: Tímabil rannsóknarinnar var 1955-2007. Upplýsinga var aflað frá myndgreiningardeildum Landspítala og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, Röntgen Domus, Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands, Hjartavemd, Rannsóknarstofu í meinafræði á Landspítala og frá sérfræði- læknum í innkirtla- og kvensjúkdómum. Einnig voru upplýs- ingar fengnar úr rannsókn Ástu Bragadóttur og félaga á heila- dingulssjúkdómum frá 2001. (Kynnt á XV. þingi Félags íslenskra lyflækna á ísafirði 2002. Læknablaðið/Fylgirit 44 2002.) Niðurstöður: Bráðabirgðaniðurstöður leiða í ljós að 312 einstak- lingar greindust með heiladingulsæxli á rannsóknartímabilinu. Miðgildi aldurs við greiningu var 41,9 ár (3-88 ár), 35,2 ár fyrir konur og 53,3 ár fyrir karla. Prólaktínæxli voru 35% en 26% vom óvirk kirtilæxli (non-functioning adenoma). Aldursstaðlað nýgengi miðað við 100.000 íbúa var 2,9 hjá konum og 1,8 hjá körlum. Nýgengið jókst úr 0,1 í 6,3 meðal kvenna frá fyrsta til síðasta fjórðungs tímabilsins en úr 0,4 í 3,6 meðal karla. Algengi í lok desember 2006 reyndist 82/100.000. Einkenni eða teikn við greiningu höfðu 84% einstaklinga en fjöldi greininga var augljóslega tengdur tilkomu nýrrar myndgreiningartækni, tölvusneiðmyndun og segulómun. Ályktanir: Nýgengi heiladingulsæxla á íslandi er að aukast og algengi nú er 17 sinnum hærra en 1963 sem er sambærilegt við niðurstöður nýrra erlendra rannsókna. Sú staðreynd að 84% einstaklinga voru með einkenni eða teikn um sjúkdóminn við greiningu undirstrikar mikilvægi þess að læknar séu á varðbergi gagnvart æxlum í heiladingli sem virðast vera tiltölulega algeng eða hátt í 1:1000. E 21 Cushingssjúkdómur á íslandi í fimmtíu ár Steinunn Amardóttir, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir Lyflæknasviði Landspítala steinarn@iandspitaii.is Inngangur: Cushingssjúkdómur (CS) er sjaldgæfur með áætlað nýgengi um 0,5-1,0/100.000. CS stafar af offramleiðslu ACTH frá heiladingli, sem leiðir til ofseytingar kortisóls frá nýrnahett- um. Neikvæð áhrif CS á efnaskipti, svo sem sykursýki, hækk- aðar blóðfitur og háþrýstingur, eru talin skýra háa tíðni hjarta- og æðasjúkdóma og hátt dánarhlutfall hjá sjúklingum með CS. Sjúkdómsgreining CS getur verið erfið og rannsóknaraðferð- irnar eru flóknar og því hugsanlegt að algengi sjúkdómsins sé vanmetið. Markmið rannsóknarinnar var að finna sjúklinga sem 22 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.