Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Síða 29

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Síða 29
XVIII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA FYLGIRIT 57 lectomy). Bati eftir aðgerð var góður. Fjórum mánuðum síðar er hann við góða heilsu og kominn til vinnu. Öndunarmælingar eftir aðgerð sýna verulega bætta öndunarstarfsemi. Alyktanir: Tilfellið sýnir að hægt er að lækna risablöðrur í lunga með skurðaðgerð og að hægt er að mæla rúmmál blaðranna með bæði myndgreiningarrannsóknum og öndunarmælingum. V 6 Broddblöðruheilkenni. Sjúkratilfelli Guðný Stella Guðnadóttir', Hannes Sigurjónsson1, Þorbjörn Guðjónsson14, Helga Ágústa Sigurjónsdóttir2, Maríanna Garðarsdóttir3, Ragnar Danielsen1, Karl Andersen1-4 ’Hjartadeild, 2efnaskipta- og innkirtladeild, 3myndgreiningadeild Landspítala, Jlæknadeild HÍ gudnystella@yahoo. com Inngangur: Broddblöðruheilkenni (Apical Ballooning Synd- rome) er hjartasjúkdómur sem nýlega hefur verið lýst. Broddblöðruheilkenni einkennist af bráðri afturkræfri truflun á samdrætti í miðhluta og broddi vinstri slegils sem leiðir til útþenslu brodds í slagbili. Einkenni og teikn hjá sjúklingunum benda til bráðs kransæðasjúkdóms en ekki finnast marktækar þrengingar við kransæðaþræðingu sem útskýra einkenni sjúk- lings. Samdráttartruflunin gengur til baka á fáeinum dögum. Sjúkratilfelli: í desember 2007 voru þrjár konur greindar með broddblöðruheilkenni á 10 daga tímabili á Landspítala. Allar höfðu vægar hækkanir á hjartaensímum, nýjar ST-breytingar, tímabundna hreyfiskerðingu á vinstri slegli samkvæmt hjarta- ómun auk þess sem þær höfðu verið undir miklu álagi. Tvær konur höfðu ekki marktækar breytingar á kransæðum. Þriðja konan var með marktækt þrengda hægri kransæð en einkenn- andi útlit fyrir broddblöðruheilkenni við hjartaómskoðun auk fyrrnefndra ST-breytinga. Hún þróaði síðar djúpar T-bylgjur í öllum leiðslum á hjartalínuriti. Umræða: Meingerð broddblöðruheilkennis er óþekkt en nokkrar tilgátur hafa verið settar fram. Offramleiðsla katekólamína er ein þeirra. Katekólamín geta valdið kransæðaherpingi, truflun á æðaþeli og haft neikvæð áhrif á hjartavöðvafrumur. Einstaklingar með broddblöðruheilkenni hafa aukið magn kate- kólamína og neurópeptíða. Þekkt er að sjúkdómar sem hafa áhrif á magn katekólamína geta valdið tímabundinni truflun á starfsemi vinstri slegils. Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem fá broddblöðruheilkenni. Tilraunir með estrógengjöf hafa sýnt minnkaða virkni í sympatíska taugakerfinu. Alyktanir: Lýst er fyrstu þremur tilfellum á Islandi með broddblöðruheilkenni, áður óþekktum sjúkdómi hér á landi. Mikilvægt er að læknar hafi hann í huga við skoðun kvenna með einkenni bráðs kransæðaheilkennis sem ekki reynast hafa marktækar þrengingar við kransæðamyndatöku. V 7 Rof á vélinda er oftast fylgikvilli læknisinngripa. Afturskyggn rannsókn á Landspítala Halla Viðarsdóttir1, Sigurður Blöndal2, Hörður Alfreðsson1, Tómas Guðbjartsson1-3 ’Hjarta- og lungnaskurðdeild, 2skurðlækningadeild Landspítala, 3læknadeild HÍ hallavi@landspitali.is Inngangur: Rof á vélinda er sjaldgæfur og oft lífshættulegur kvilli sem getur verið sjálfsprottinn eða komið eftir áverka. Meðferð er langoftast fólgin í skurðaðgerð þar sem reynt er að hefta útbreiðslu sýkingar í miðmæti og blóðeitrun sem oft fylgir í kjölfarið. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna orsakir og faraldsfræði rofs á vélinda og hvaða meðferð var beitt á Landspítala á 28 ára tímabili. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á öllum sjúk- lingum með rof á vélinda 1980-2007. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og miðuðust útreikningar á lifun (hráar tölur) við 31. desember 2007 en meðaleftirfylgni var 69 mánuðir. Niðurstöður: Alls greindust 27 sjúklingar, meðalaldur 62 ár (bil sjö mánaða til 90 ára), 15 karlar. Orsök var af læknisvöldum í 14 tilvikum (54%), oftast eftir vélindavíkkun (n=7) og magaspeglun (n=3). Sjálfkrafa rof greindist hjá átta sjúklingum (31%) og fjórir (15%) höfðu rof vegna aðskotahlutar. Rof á brjóstholshluta vél- inda greindist hjá 18 sjúklingum (75%), hjá þremur í kviðarhols- (13%) og þremur (13%) í hálshluta. Sjúkdómur í vélinda var til staðar hjá 12 sjúklingum, langoftast þrenging. Af 27 sjúklingum greindust fimm við krufningu, 10 fengu eingöngu sýklalyfja- meðferð, og fjórir fengu að auki brjósholskera en þurftu síðar í brjóstholsaðgerð. Alls fóru því 15 sjúklingar í opna skurðaðgerð, þar sem miðmætið var opnað og lagðir inn brjóstholskerar. í átta tilfellum var að auki lögð út stómía á maga og komið fyrir næringarlegg í smágirni. Þrír sjúklingar fengu T-kera í vélinda og í fimm tilfellum var saumað yfir rofið. Atta sjúklingar fengu alvarlega fylgikvilla og fimm þurftu enduraðgerð. Alls lágu 16 sjúklingar á gjörgæslu og miðgildi legutíma voru fjórir dagar (bil 1-41). Heildarlegutími voru 16 dagar (bil 9-83). Af 27 einstak- lingum eru 16 á lífi og mældist eins og fimm ára lifun 81 og 65%. Fimm einstaklingar létust af völdum rofs á vélinda (19%). Ályktanir: Tíðni vélindarofs virðist svipuð hér á landi og í ná- grannalöndum okkar. Rofið er oftast af læknisvöldum og stað- sett í brjóstholshluta vélinda. Stór hluti sjúklinganna (19%) deyr eftir vélindarof. V 8 Aðgerð á Zenkers sarpi með sveigjanlegri holsjá. Tvö sjúkratilfelli Jón Örvar Kristinsson Meltingardeild Landspítala jonorvahSinternet.is Inngangur: Zenkers sarpur (ZS) (Zenkers diverticulum) er algengasta tegund sarpa í efri hluta meltingarvegar. Meirihluti sjúklinga er eldri en 70 ára við greiningu, heldur fleiri karlar en konur. Helstu einkenni eru kyngingarerfiðleikar, hósti, tilfinning um aðskotahlut í koki eða vélinda og bakflæði á fæðu í munn. LÆKNAblaðið 2008/94 29

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.