Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Side 44
XVIII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA
FYLGIRIT 57
um eftir hjartastoppið var ástand vinstri slegils orðið mun betra
(mynd 1B).
Umræða: Við teljum að hér sé um að ræða tilfelli af brodd-
þensluheilkenni (Takotsubo cardiomyopathy, transient LV
apical ballooning syndrome, stress-induced cardiomyopathy).
Meingerð þessa ástands er flókin. Heilkennið sést oftast hjá
konum eftir tíðahvörf, mögulega vegna áhrifa kynhormóna á
samspil sjálfvirka taugakerfisins og innkirtlakerfa. Aðrar orsakir
kunna að vera meðvirkandi í þessu tilfelli, svo sem hjartakvilli
vegna áfengisneyslu, hraðtakts eða blóðþurrðar. Ekki er búið að
framkvæma hjartaþræðingu.
Mynd 1. Hjartaómskoðun (A4C). A. Broddblaðra á vinstri slegli.
Útstreymisbrot mældist um 30%. B. Eðlileg lögun á vinstri slegli, útstreym-
isbrot mældist 45-50%.
Lanzo A02BC03 RE
Wyeth Lederle Nordiska AB, Lansóprazól 15 mg eða 30 mg. Sýruþolin munndreifitafla. Ábendingar: Meöferð við skeifugarnar- og magasári. Meðferð við bólgu i vélinda vegna bakflæðis. Fyrirbyggjandi meðferð við bólgu i vélinda
vegna bakflæðis. Upprætingarmeðferð við Helicobacter pylori (H. pylori), gefiö samhliða viðeigandi sýklalyfjameðferð við sárum sem tengjast sýkingu af völdum H.pylori. Meðferð við góðkynja maga- og skeifugarnarsárum sem tengjast
notkun á bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID) hjá sjúklingum sem þurfa viðvarandi meðferð með slikum lyfjum. Fyrirbyggjandi meðferð við maga- og skeifugamarsárum sem tengjast notkun á bólgueyöandi gigtarlyfjum hjá sjúklingum I
áhættuhópi sem þurfa viövarandi meðferð með sllkum lyfjum. Einkennameðferð við vélindabakflæöi. Meðferð viö Zollinger-Ellison heilkenni. Skammtar og lyfjagjöf: Til þess að ná hámarksverkun ber að taka Lanzo að morgni, einu
sinni á dag, nema þegar það er notaö til að uppræta H. pylori, en þá ber að taka lyfið tvisvar á dag, einu sinni að morgni og einu sinni að kvöldi. Taka ber Lanzo að minnsta kosti 30 minútum fyrir mat. Lanzo er með jaröarberjabragði.
Leggja skal töfluna á tunguna og sjúga hana varlega. Taflan leysist hratt sundur I munninum og gefur frá sér sýruþolin örkyrni sem sjúklingurinn kyngir með munnvatni sinu. Að öðrum kosti má kyngja töflunni heilli með glasi af vatni.
Munndreifitöflurnar má leysa sundur i smáskammti af vatni og gefa þær um magaslöngu gegnum nös eða með munnsprautu. SAe/fugarnarsár.Ráðlagður skammtur er 30 mg einu sinni á dag i 2 vikur. Hjá þeim sjúklingum sem ekki
hafa náð fullum bata innan þess tíma er lyfjagjöf haldið áfram I tvær vikur til viðbótar með sama skammti. Magasár.-.Ráðlagður skammtur er 30 mg einu sinni á dag i 4 vikur. Sárið læknast venjulega innan fjögurra vikna, en hjá þeim
sjúklingum sem ekki hafa náð fullum bata innan þess tima má halda lyfjagjöf áfram í fjórar vikur til viðbótar með sama skammti. Bó/ga / vélinda vegna bakflæðis: Ráðlagður skammtur er 30 mg einu sinni á dag í 4 vikur. Hjá þeim
sjúklingum sem ekki hafa náð fullum bata innan þess tima má halda meðferð áfram I fjórar vikur til viðbótar með sama skammti. Fyrirbyggjandi meðferð við bólgu i vélinda vegna bakflæðis: 15 mg einu sinni á dag. Auka má
skammtinn upp I 30 mg á dag eftir þörfum. Upprætingarmeðferð við Helicobactcr pylori: Viö val á viöeigandi samsettri meðferð ber aö taka tillit til opinberra leiðbeininga á hverjum stað hvað varðar ónæmi baktería, meöferöariengd,
(oftast 7 dagar en stundum allt að 14 dagar), og viðeigandi notkun á sýklalyfjum. Ráölagður skammtur er 30 mg af Lanzo tvisvar á dag í 7 daga samhliöa öðrum af tveimur eftirfarandi valkostum:klaritrómýcin 250-500 mg tvisvar á dag
+ amoxicillin 1 g tvisvar á dagklaritrómýcin 250 mg tvisvar á dag + metrónídazól 400-500 mg tvisvar á dag. Meðferð við góðkynja maga- og skeifugarnarsárum sem tengjast notkun á bólgueyðandi gigtarlyfjum hjá sjúklingum
sem þurfa viðvarandi meðferð með slíkum lyfjum:.30 mg einu sinni á dag I 4 vikur. Hjá þeim sjúklingum sem ekki hafa náð fullum bata má halda meöferð áfram I fjórar vikur til viöbótar. Fyrir sjúklinga sem eru I áhættuhópi, eða
með sár sem erfitt er að græða, ætti að öllum líkindum að beita lengri meðferðarlotu og/eða stærri skammti. Fyrirbyggjandi meðferð við maga- og skelfugarnarsárum sem tengjast notkun á bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID)
hjá sjúklingum i áhættuhópl (t.d. > 65 ára aldri eða með sögu um maga- eða skeifugarnarsár) sem þurfa viðvarandi meðferð með slikum lyfjum: 15 mg einu sinni á dag. Ef meöferð bregst skal nota 30 mg skammt einu sinni
á dag. Einkennameðferð við vélindabakflæði: Ráölagöur skammtur er 15 mg eða 30 mg á dag. Hratt gengur draga úr einkennum. Ihuga ber að aölaga skammtinn fyrir hvern og einn. Ef ekki tekst að ráða bót á einkennum innan
fjögurra vikna með 30 mg dagskammti er mælt með frekari rannsóknum. Meðferð við Zollinger-Ellison heilkenni: Ráölagöur upphafsskammtur er 60 mg einu sinni á dag. Aölaga ber skammtinn fyrir hvern og einn og halda meðferð
áfram svo lengi sem nauðsyn krefur. Notaöir hafa verið dagskammtar allt upp 1180 mg. Fari nauðsynlegur dagskammtur yfir 120 mg ber að gefa hann I tveimur aöskildum skömmtum. SKért lifrgr- eða nýrnastarfsemi; Engin þörf er á
að aðlaga skammta fyrir sjúklinga með skerta nýrnastarfsemi. Sjúklinga með miðlungsalvarlegan eða alvarlegan lifrarsjúkdóm ber aö hafa undir reglulegu eftirliti og mælt er með að minnka dagskammtinn um 50%. AldraðÍnVegna
minnkaðrar úthreinsunar á lansóprazóli hjá öldruðum kann að vera nauösynlegt að aðlaga skammtinn eftir þörfum hvers og eins. Ekki ber að nota stærri dagskammt en 30 mg fyrir aldraöa, nema kllnlskar ábendingar séu knýjandi.
Frábendingar: Ekki skal gefa lansóprazól með atazanaviri. Sérstök varnaðarorö og varúöarreglur við notkun: Eins og á við um aörar sárameöferöir ber að útiloka möguleikann á illkynja magaæxli þegar magasár er meöhöndlaö
með lansóprazóli, því að lansóprazól getur falið einkennin og tafið sjúkdómsgreiningu. Skert lifrarstarfsemi. Meöferö með lansóprazóli getur leitt til örtitiö aukinnar hættu á sýkingum I meltingarveginum, t.d. af völdum Salmonella og
Campylobacter vegna hugsanlegrar hækkunar á sýrustigi. Hjá sjúklingum sem eiga við maga- og skeifugamarsár að striöa ber að skoða hvort orsökin geti veriö sýking af völdum H. pylori. örsjaldan hefur verið tilkynnt um ristilbólgutilvik
hjá sjúklingum sem taka lansóprazól. Ef fram kemur alvarlegur og/eða þrálátur niðurgangur ber þvi að ihuga aö hætta meðferð. Fyrirbyggjandi meöferð við ætisáramyndun hjá sjúklingum sem þurfa viðvarandi meöferö með
bólgueyðandi gigtarlyfjum skal takmarka við sjúklinga i mikilli áhættu (t.d. fyrri blæöing, rof eða sár i meltingarvegi, hár aldur, samhliða notkun á lyfjum sem vitað er að auki llkur á aukaverkunum í efri hluta meltingarvegar [t.d. barksterar
eða blóðþynningarlyfj, annar alvarlegur þáttur sem stuölar að sama sjúkdómi eða langvarandi notkun á þeim hámarksskömmtum sem mælt er með að nota af bólgueyöandi verkjalyfjum). Þar sem Lanzo inniheldur laktósa ættu
sjúklingar með mjög sjaldgæf erfðavandamál sem felast í óþoli gegn galaktósa, skorti á Lapp-laktasa eða vanfrásogi glúkósa-galaktósa ekki að taka lyfið. Lyfið inniheldur aspartam sem umbrotnar i fenýlalanín og getur þvi reynst
sjúklingum með felýlketonúriu skaölegt. Milliverkanir við önnur lyf og aörar milliverkanir: Ekki ber að gefa lansóprazól samhliða atazanavíri. Frásog ketókónazóls og ítrakónazóls úr meltingarveginum eykst þegar fyrir hendi er
magasýra. Lansóprazólgjöf getur leitt til þess að þéttni ketókónazóls og itrakónazóls verði ekki nægileg til þess að ná fram meðferðaráhrifum og þvi ber að foröast þessa samsetningu. Samhliða gjöf lansóprazóls og digoxins getur leitt
til aukinna mæligilda digoxins i plasma. Þvi ber aö fylgjast með plasmagildum digoxins, og aðlaga skammtinn af digoxini ef nauðsyn krefur, bæði við upphaf og lok meðferðar meö lansóprazóli. Lansóprazól getur aukið plasmaþéttni
lyfja sem umbrotna fyrir tilstilli CYP3A4. Ráðlagt er að gæta varúðar þegar lansóprazól er gefið samhliða lyfjum sem umbrotna fyrir tilstilli þessa ensims og hafa þröngt lækningalegt sviö.Samhliöa gjöf lansóprazóls eykur plasmaþéttni
takrólimus (CYP3Aog P-gp hvarfefni). Útsetning fyrir lansóprazóli jók meðalútsetningu fyrir takrólimus um allt að 81%. Ráðlagt er að fylgjast með plasmaþéttni takrólimus þegar samhliða meðferð með lansóprazóli er hafin eða stöðvuð.
Lansóprazól hefur reynst hefta flutningspróteinið P-glýkóprótein (P-gp) in vitro. Ekki er vitaö hvort þetta er mikilvægt í klinisku tilliti. Rétt er að íhuga skammtaminnkun þegar lansóprazól er gefið samhliða CYP2C19-hemlinum
flúvoxamini. Rannsókn hefur sýnt að plasmaþéttni lansóprazóls aukist allt að fjórfalt. Lyf sem framkalla ensimin CYP2C19 og CYP3A4, á borð við rifampicin og Jóhannesarjurt (HyperiCíim PQÍQratum). geta minnkað plasmaþéttni
lansóprazóls umtalsvert. Súkralfat/sýrubindandi lyf geta minnkað aögengi lansóprazóls. Þvi ber aö taka lansóprazól aö minnsta kosti 1 klst. eftir að þessi lyf eru tekin. Ekki hefur veriö sýnt fram á neinar kliniskt marktækar milliverkanir
lansóprazóls viö bólgueyðandi gigtarlyf, en engar formlegar milliverkunarrannsóknir hafa verið geröar. Meðganga og brjóstagjöf: Meöganga: Engin klinisk gögn liggja fyrir um notkun lansóprazóls á meðgöngu. Dýrarannsóknir benda
hvorki til beinna né óbeinna skaðlegra áhrifa á meðgöngu, fósturvlsi-/fósturþroska, fæðingu eða þroska eftir fæðingu. Ekki mælt með að nota lansóprazól á meðgöngu. Brjóstagjöf: Ekki er vitað hvort lansóprazól skilst út I brjóstamjólk
kvenna. Dýrarannsóknir hafa leitt i Ijós útskilnað lansóprazóls i mjólk. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Aukaverkanir á borð við sundl, svima, sjóntruflanir og svefnhöfga geta komi fram.Viö þær aðstæður getur viðbragðshæfni
minnkað. Aukaverkanir: Algongar (>1/100).'Höfuöverkur, sundl. Velgja, niðurgangur, magaverkur, hægðatregða, uppköst, vindgangur, þurrkur í munni eða kverkum. Aukin mæligildi lifrarensima. Ofsakláði, kláði, útbrot. Þreyta.
Sjaldgæfar (1/100- 1/1000): Blóðflagnafæð, rauökyrningager, hvitfrumnafæð. Þunglyndi. Liðverkir. Bjúgur. Mjög sjaldgæfar (1/1000-1/10.000): Blóöleysi. Svefnleysi, ofskynjanir, ringlun. Eirðarleysi, svimi, húðskynstruflanir, svefnhöfgi,
skjálfti. Sjóntruflanir. Tungubólga, hvltsveppasýking i vélinda, brisbólga, bragðskynstruflanir. Lifrarbólga, gula. Depilblæðingar, purpuri, hárlos, regnbogaroðaþot, Ijósnæmi. Millivefsbólga i nýrum. Brjóstastækkun hjá karlmönnum. Hiti,
ofsvitnun, ofnæmisbjúgur, lystarleysi, getuleysi. Koma örsjaldan fyrir (<1/10.000): Kyrningahrap, blóöfrumnafæö. Ristilbólga, munnbólga. Steven-Johnson heilkenni, eitrunardreplos húðþekju (Lyell's heilkenni). Bráöaofnæmislost.
Aukin maéligildi kólesteróls og þriglýseriða, natrlumlækkun i blóði. Dagsetning endurskoðunar textans: 12.desember 2007. Pakkningar og verð l.janúar 2008: Lanzo 15 mg: 14 stk. 1480 kr„ 98 stk. 7874 kr.. Lanzo 30 mg: 14 stk.
2653 kr„ 56 stk. 7926 kr„ 98 stk. 12953 kr..
icepharma Wyeth
44 LÆKNAblaðið 2008/94