Fréttatíminn - 13.02.2015, Side 2
– fyrst og fre
mst
ódýr!
Fylltu bollurn
ar
koma í dag
419kr.pk.
Fylltar rjómabollur, 2 stk.
Skammbyssur í tollinum
Tollverðir stöðvuðu ný-
verið tvær sendingar frá
Hong Kong sem höfðu að
geyma eina gasskamm-
byssu hvor. Hafði sami
einstaklingur pantað þær
báðar. Um var að ræða
nákvæmar eftirlíkingar
af Glock 17 og Springfield
armory cal 45. en með
gashleðslu. Þar sem slíkir
munir eru ekki leyfðir
hér á landi var málið
sent til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu sem
gerði innflytjandanum að
endursenda byssurnar
eða heimila förgun þeirra
og tók hann fyrrnefnda
kostinn. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar
geta vopn af þessu tagi
reynst skaðleg sé ógæti-
lega farið með þau.
Frítt í sund í
Hafnarfirði
Ókeypis verður í sundlaugar Hafnar-
fjarðar dagana 25. febrúar til 1. mars
þegar skipulagsdagar og vetrarfrí
eru í leik- og grunnskólum Hafnar-
fjarðar. Bæjarráð samþykkti þetta
á fundi sínum. Í Hafnarfirði eru 3
almennings sundlaugar, sú elsta frá
1943, Sundhöllin við Herjólfsgötu en
yngst er Ásvallalaugin sem var vígð
2008. Sundkennsla hófst hins vegar
í Hafnarfirði 1909 og var í fyrstu
kennt í sjónum út af Hamarskotsmöl
en kennslan fluttist síðan vestur á
Malir. - eh
Aukin sala á
áfengi í janúar
Sala áfeng is jókst um 8,1% í
janú ar miðað við sama mánuð
í fyrra. Þetta er miðað við
fast verðlag en salan jókst um
7,1% á breyti legu verðlagi.
Verð á áfengi var 0,9% lægra
í janú ar síðastliðnum en í
sama mánuði í fyrra að því er
fram kemur í gögn um Rann-
sókna set urs versl un ar inn ar.
Lánshæfi Orkuveitunnar
styrkist
Lánshæfisfyrirtækið Fitch Ratings hefur gefið
Orkuveitu Reykjavíkur einkunnina BB- með
stöðugum horfum. Grunneinkunn Orkuveit-
unnar í matinu er tveimur þrepum hærri en
hún fékk frá lánshæfisfyrirtækinu Moody‘s í
desember síðastliðnum. Þetta er í fyrsta sinn að
lánshæfi Orkuveitunnar er metið af Fitch. „Það
er mitt mat að sú samstaða sem skapast hefur
meðal eigenda Orkuveitunnar um stefnu fyrir-
tækisins, þar sem aðaláherslan er á áreiðanlega
grunnþjónustu við íbúa, hafi dregið verulega úr
óvissu í rekstri og rekstrarumhverfi Orkuveitu
Reykjavíkur,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri
Orkuveitunnar. - eh
Heiðar Már Sigurðs-
son fékk þyngsta
dóminn, fimm og
hálfs árs fangelsi.
Ólafur Ólafsson
fékk fjögurra og
hálfs árs dóm og
Sigurður Einarsson
var dæmdur í fjög-
urra ára fangelsi.
Dómsmál Hæstiréttur sakfellir í al tHani-málinu
Hreiðar Már í fimm og hálfs árs fangelsi
Fjórir stjórnendur og eigendur Kaupþings
voru sakfelldir í Al Thani-málinu í Hæsta-
rétti í gær, fimmtudag. Hreiðar Már Sig-
urðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
fékk fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, var dæmdur í fjögurra ára
fangelsi. Ólafur Ólafsson, einn aðaleig-
enda Kaupþings, fékk fjögurra og hálfs
árs dóm sem og Magnús Guðmundsson,
forstjóri Kaupþings í Lúxemburg.
Þeir voru sakfelldir fyrir umboðssvik
eða hlutdeild í umboðssvikum og fyrir
markaðsmisnotkun. Áður höfðu fjór-
menningarnir verið sakfelldir í héraði en
Hæstiréttur mildaði refsingu Sigurðar og
þyngdi refsingu Ólafs og Magnúsar. Þeir
voru einnig dæmdir til að greiða sektir á
bilinu 13 til 33 milljónir króna. Sérstakur
saksóknari gaf út ákæru á hendur fjór-
menningunum í febrúar 2012 fyrir lán-
veitingar tengdar viðskiptum sjeiksins Al
Thani við Kaupþing árið 2008 og einnig
fyrir að hafa látið ranglega líta út fyrir að
Al Thani hafi verið í viðskiptum við Kaup-
þing.
Bæði sakborningar og saksóknari
áfrýjuðu dómi héraðsdóms, sakborningar
vildu sýknu en saksóknari vildi refsiþyng-
ingu. - eh
t ilkynnt var um 21 týnt barn til lög-reglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum janúar. Um er að ræða
börn á aldrinum ellefu til sautján ára sem
skráð hafa verið týnd í kerfi lögreglunnar.
Fleiri börn en vanalega
21 barn telst vera mikill fjöldi sé miðað við
síðastliðinn desember þegar tilkynnt var
um 12 týnd börn, en einnig sé miðað við
meðaltal síðustu ára. Í nýrri samantekt
lögreglunnar yfir árin 2008 til 2014 kemur
fram að síðastliðið ár var tilkynnt um alls
131 týnt barn, eða um 11 börn að meðal-
tali á mánuði. Á síðastliðnum sjö árum var
mest um týnd börn árið 2009 þegar alls var
tilkynnt um 220 börn, eða um 18 á mánuði.
Oft á tíðum skila ungmennin sér fljót-
lega eftir að óskað hefur verið eftir aðstoð
lögreglu en í öðrum tilfellum tekur leitin
lengri tíma og þá er tekið til þess ráðs að
lýsa eftir barninu í fjölmiðlum en lögreglan
hefur ekki upplýsingar um það hversu oft
lýst var eftir barni í fjölmiðlum.
Á síðasta ári var leitað að alls 82 börnum,
42 drengjum og 40 stúlkum, og var meðal-
aldur þeirra 15 ár. Kynjahlutfallið hefur
verið að jafnast út síðustu ár en meðalaldur
drengjanna farið lækkandi á meðan meðal-
aldur stúlknanna fer hækkandi.
Ekki allir í vímuefnum
Ýmsar ástæður eru fyrir því að börn
týnast og tengist vímuefnanotkun ekki
alltaf hvarfinu. Í samantekt lögreglu er
tekið fram að stundum sé um misskilning
að ræða, stundum eigi börnin við hegð-
unarvanda að etja og sum barnanna eru
sjúklingar. Loks eru það þau börn sem
eru að flýja heimilisaðstæður. Hjá Barna-
verndarnefnd Reykjavíkur fengust þær
upplýsingar að erfitt sé að draga ályktanir
af þessari tölu en segir þennan fjölda geta
tengst ákveðnu verkefni sem lögreglan
hefur nýlega farið af stað með.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
leit mikill fjölDi týnDra barna í janúar
21 týnt barn í janúar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað að tuttugu og einu týndu barni í janúar. Það eru
mun fleiri börn en hafa horfið að meðaltali á mánuði síðustu ár.
Síðastliðið ár var tilkynnt um alls 131 týnt barn, eða um 11 börn að meðaltali á mánuði. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Ýmsar
ástæður eru
fyrir því að
börn týnast
og tengist
vímuefna-
notkun ekki
alltaf hvarf-
inu.
2 fréttir Helgin 13.-15. febrúar 2015