Fréttatíminn - 13.02.2015, Page 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Stormur og Snjókoma Sa-landS,
en meinlítið annarS Staðar.
HöfuðborgarSvæðið: Skýjað,
hægur vindur og vægt froSt.
S- og Sa Stormur með rigningu,
en Snjókomu á fjallvegum.
HöfuðborgarSvæðið: SlagveðurSrigning
meSt allan daginn.
SnýSt í Sv-Storm með Slyddu og
Síðar éljum v-landS.
HöfuðborgarSvæðið: Stormur, fyrSt
rigning, Síðan Slydda og él.
asahláka seint á laugardag
Það er skammt stórra högga á milli í
veðrinu og ekkert lát á umhleypingum.
í dag er spáð stormi og hinum versta
byl suðaustanlands, en v-til verður mun
hægari vindur og úrkomulaust að mestu.
Á morgun hlánar ákveðið og gerir S-
storm með lægð sem komin
er langt úr suðri. asahláka,
rigning og mikil vatnsagi
seint á laugardag og fram
á sunnudag, einkum S-
og v-lands. Síðan kólnar
aftur og snýst í Sv-storm
með éljum eftir hádegi.
-5
-6 -7
-6
-3
4
-1 -3
-1
5
1
2 3
4
3
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
vikan sem var
1.067.000.000
400
krónur mun kosta í Strætó frá og með
næstu mánaðamótum ef stjórn fyrir-
tækisins samþykkir hækkun á gjaldskrá
þess.
18 milljónir í sektir
alls voru út lán Borg ar bóka safns ins
853.128 í fyrra, nokkru minni en í fyrra.
notendur safnsins greiddu 18.501.480
krónur í sektir vegna vanskila í fyrra.
Bob Simon látinn
Banda ríski fréttamaður inn Bob Simon
lést í bílslysi í new york á miðvikudag,
73 ára að aldri. hann er kunnur fyrir
störf sín í fréttaskýringaþættinum 60
mínútum. Simon hlaut emmy-verð-
launin 27 sinnum.
króna velti knatt-
spyrnusamband
íslands í fyrra.
kSí fékk tæpar
400 milljónir
vegna sjónvarps-
réttar og 450
milljónir í styrki
frá uefa og fifa.
1.200
manns fóru um vesturland í
24 rútum á vegum gray line
á þriðjudagskvöldið til að
sjá norðurljós. aldrei hafa
fleiri farið í slíka ferð á einu
kvöldi hjá fyrirtækinu.
verslun Ákvörðun isavia hörmuð
Íslenskri hönnun
úthýst úr fríhöfninni
flugstöð leifs
eiríkssonar við
keflavíkurflug-
völl. rek-
stararaðili flug-
stöðvarinnar,
isavia, kynnti í
október síðast-
liðinum niður-
stöður í vali á
rekstraraðilum
í veitinga- og
verslunarrými
í flugstöðvar-
innar. Ljósmynd/
NordicPhotos/
Getty
Frá og með sunnudeginum verður engin verslun með áherslu á íslenska hönnun í flugstöðinni.
Sigurður már helgason hönnuður harmar það að stjórnvöld vilji ekki hafa íslenska hönnun á
fjölfarnasta ferðamannastað landsins. halla helgadóttir, framkvæmdastjóri hönnunarmið-
stöðvar, telur ákjósanlegt að flughöfnin verði með íslenskum brag frekar en alþjóðlegum.
v erslun Epal í Flugstöð Leifs Eiríkssonar mun loka dyrum sínum á sunnudaginn en þar
hefur verið seld íslensk hönnun um ára-
bil. Margir íslenskir hönnuðir harma
þá ákvörðun Isavia að bjóða verslunar-
plássið út í stað þess að ákveða að
gera íslensku hugviti hátt undir höfði
á þessum fjölfarnasta ferðamannastað
landsins. Sigurður Már Helgason er
einn þessara hönnuða.
grátleg þróun
„Þetta er bara grátlegt. Epal hefur
staðið vörð um íslenska hönnun í
áratugi og mun auðvitað gera það
áfram, en ekki lengur á þessum fjöl-
farna ferðamannastað. Í ljósi þess að
íslenska ríkið er að eyða milljörðum
í Listaháskóla, verkmenntaskóla og
allskyns menntun og fræðslu í sambandi við
hönnun, þá skil ég ekki af hverju fram-
leiðslunni er ekki gert hátt undir höfði í frí-
höfninni. Að henni sé úthýst fyrir nokkrar
krónur er bara óskiljanlegt,“ segir
Sigurður Már en Epal hefur selt Fuzzy-
kollinn hans við miklar vinsældir. Hann
segir kollinn seljast mjög vel í Fríhöfninni,
betur en í miðbænum. Áhyggjur hans snú-
ist þó ekki um sína eigin velgengni. „Þetta
snýst um unga hönnuði og þeirra framtíð.“
íslensk vöruhönnun og fatahönn-
un eiga að fá sitt rými
„Eins og þetta blasir við mér í
dag, þá lítur þetta ekki vel út
fyrir íslenska hönnun,“ segir
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri
Hönnunarmiðstöðvar, en hún fór og
heimsótti Isavia vegna málsins. „Að-
stoðarforstjóri Isavia fullvissaði mig um
að það væri verið að gera vel við íslenska
hönnun því húsgögn og innréttingar veit-
ingastaðanna eiga að stórum hluta til að
vera íslensk hönnun. En ég er vissulega
sammála Eyjólfi í Epal, sem hefur hingað
til séð um að hlúa að minni hönnuðum, í
því að íslensk vöruhönnun og fatahönnun
eigi að fá sitt rými í flugstöðinni. En í dag
lítur ekki út fyrir að það verði svo.“
Meiri auður í séríslenskum flugvelli
„Það er líka gott og gilt að velta því fyrir
sér hvort arðsemiskrafan sé það mikil að
vörur minni hönnuða, sem eru að stíga
sín fyrstu skref, geti ekki verið á boð-
stólum því leigan er svo há. Það þarf líka
að passa upp á framsetningu íslenskrar hönn-
unar og gæta þess að blanda ekki saman
hönnun og minjagripum. Við erum að
reyna að byggja upp íslenska hönnun og
móta stefnu, segir Halla en hún skipaði
stýrihóp ásamt fulltrúa iðnaðarráð-
herra og menningar- og menntamála-
ráðherra sem mótaði hönnunarstefnu
stjórnvalda sem var undirrituð árið
2011. „Það er mjög mikilvægt að fólk
sem kemur til landsins upplifi sterkt
að það sé á Íslandi. Þetta er auðvi-
tað spurning um ímyndasköpun og
markaðssetningu og ég held að
það sé meiri auður falinn í því
að hafa flugvöllinn sérís-
lenskan en alþjóðlegan.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Sigurður már helgason
hannaði fuzzy-kollinn árið
1972 en hann nýtur enn mikilla
vinsælda og hefur selst mjög
vel í fríhöfninni.
Halla Helgadóttir, framkvæmda-
stjóri hönnunarmiðstöðvar.
4 fréttir helgin 13.-15. febrúar 2015