Fréttatíminn - 13.02.2015, Síða 8
Það ofbeldi
sem Guð-
mundur í
Byrginu beitti
vistkonur þar
er gott dæmi.
TRAUSTIR,
NOTAÐIR
GÆÐABÍLAR
Á HAGSTÆÐU VERÐI
VW Golf Sportsvan Highline
Árgerð 2014, besín
Ekinn 2.000 km, sjálfskiptur
Chevrolet Captiva
Árgerð 2011, bensín/metan
Ekinn 67.000 km, sjálfskiptur
Audi A4 2.0 TDI AT
Árgerð 2013, dísil
Ekinn 32.000 km, sjálfskiptur
Skoda Rapid Amb. 1.2 TSI
105 hö. Árgerð 2012, bensín
Ekinn 35.000 km, beinskiptur
Lexus RX400 Hybrid EXE
Árgerð 2008, bensín
Ekinn 120.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 4.650.000
Ásett verð: 3.590.000
Ásett verð: 5.490.000
Ásett verð: 2.690.000
Ásett verð: 3.990.000
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
heklanotadirbilar.is
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Audi Q7 3.0 TDI 233 hö
Árgerð 2008, dísil
Ekinn 130.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð:
5.790.000
MM Pajero Instyle
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 73.000 km, sjálfskiptur
VW Touareg V6 TDI
Árgerð 2007, dísil
Ekinn 101.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 6.290.000Ásett verð: 4.890.000
VW Golf TDI Trendl
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 125.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 1.990.000
SamfélagSmál fimmtíu gráir Skuggar gefa ranga mynd af BdSm
Hvetja til sniðgöngu á
Fimmtíu gráum skuggum
Formaður BDSM segir að í Fimmtíu gráum skuggum sé karlmaðurinn frá upphafi í valdastöðu
gagnvart konunni og því sé samþykki hennar alltaf þvingað. Fimmtíu gráir skuggar gefi því ranga
mynd af BDSM þar sem jafnræði þarf að ríkja milli aðila. Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum tekur
undir þetta og hvetur fólk til að sniðganga myndina en þess í stað styrkja samtök sem styðja við
þolendur heimilisofbeldis.
S öguþráðurinn í Fimmtíu gráum skuggum gefur ekki aðeins misvísandi
heldur beinlínis ranga mynd
af því hvað BDSM er,“ segir
Magnús Hákonarson, formaður
BDSM á Íslandi. „Grundvallar-
atriði í BDSM er að þar ríki
jafnræði milli einstaklinga og
að báðir eða allir aðilar séu
samþykkir því sem á sér stað.
Vandamálið með samband
Christian Grey og Anastasiu
Steele, aðalpersónanna í Fimmtíu gráum
skuggum, er að hann er frá upphafi í valda-
stöðu gagnvart henni þannig að samþykkið
verður alltaf þvingað,“ segir hann. Kvik-
myndin Fimmtíu gráir skuggar, byggð á
samnefndri bók, verður frumsýnd víða um
heima um helgina.
Magnús bendir á að dæmi séu um að ein-
staklingar beiti aðra ofbeldi undir því yfir-
skini að um BDSM sé að ræða. „Það ofbeldi
sem Guðmundur í Byrginu beitti vistkonur
þar er gott dæmi. Hann var í valdastöðu
gagnvart þeim og hlaut dóm, þrátt fyrir að
þær hefðu veitt þetta þvingaða samþykki,“
segir Magnús.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta,
tekur undir að boðskapur Fimmtíu grárra
skugga sé varhugaverður. „Ég gerði tilraun
til að lesa þessar bækur en gafst upp eftir
að ég var hálfnuð með þá fyrstu. Þarna er
fjallað um saklausa unga stúlku og óendan-
lega ríkan mann sem er eldri en hún.
Þessi maður myndi skora hátt þegar gert
er hættumat í ofbeldissamböndum. Hann
stjórnar henni, er fullur afbrýði-
semi, hann ákveðir hvernig hún
klæðist og hvað hún borðar, hann
nauðgar henni en hún trúir því að
með því að elska hann nógu heitt
þá geti hann breyst. Svona lagað
gengur ekki upp í raunveruleikan-
um,“ segir hún. „Þarna er ofbeldi
sett í samhengi við glamúr og pen-
inga og ég verð hreinlega döpur
yfir því hvað fólk hefur gleypt
við þessu gagnrýnislaust. Vin-
sældir þessara lélegu bókmennta
og þeirrar hugmyndafræði sem þar birtist
þarf að skoða í því ljósi að þriðja hver kona
á Íslandi hefur verið beitt ofbeldi í parasam-
bandi,“ segir Guðrún.
Aktívistar víða um heim hafa hvatt fólk
til þess að sniðganga bíómyndina og gefa
þess í stað andvirði bíómiða til samtaka eða
stofnana sem styðja við þá sem verða fyrir
heimilisofbeldi. Gail Dines, prófessor við
Wheelock College í Boston, er forsprakki
þessarar grasrótarhreyfingar sem í Banda-
ríkjunum kennir sig við einkunnarorðin „50
dollars not 50 shades“ en Gail er Íslending-
um að góðu kunn eftir að hún var aðalfyrir-
lesari á ráðstefnu um klám og klámvæðingu
sem þrjú ráðuneyti stóðu fyrir árið 2012 í
samvinnu við lagadeild Háskóla Íslands.
Guðrún segist sannarlega taka undir þenn-
an boðskap og bendir fólki á að það geti til
að mynda stutt Stígamót, Kvennaathvarfið,
Aflið á Akureyri eða Sólstafi á Ísafirði.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hvað er BdSm?
BDSM er skamm-
stöfun notuð sem
samheiti yfir alla
þá möguleika
sem geta falist í
sadómasókisma,
munalosta, leður-
lífsstíl, og valda- og
skynjunar-
breytingarleikjum.
BDSM er alltaf með
samþykki beggja/
allra aðila.
Formaður BDSM á Íslandi segir að í jafnræði þurfi
að ríkja í BDSM-samböndum en í Fimmtíu gráum
skuggum hafi karlmaðurinn völd yfir konunni.
Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Mynd sem er dreift víða u
m netið þar sem fólk er hv
att til að styrkja samtök
eða stofnanir sem styðja
við þá sem verða fyrir hei
milisofbeldi í stað þess
að borga sig inn á myndin
a Fimmtíu gráa skugga.
Guðrún Jónsdóttir,
talskona Stígamóta.
Alþýðusamband Íslands skorar á ís-
lensk stjórnvöld að taka starfsemi
Primera Air og Primera Air Nordic til
skoðunar og stöðva starfsemi þeirra
en flugfélagið hefur sætt gagnrýni
fyrir að segja upp íslenskum fluglið-
um og borga erlendu starfsfólki mun
lægri laun en íslenskir kjarasamning-
ar kveða á um.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
og eigandi Primera Air, hefur aftur
á móti sagt í yfirlýsingu að flugliðar
hjá fyrirtækinu fái margfalda þá upp-
hæð í laun sem nefnd hefur verið í
fréttaflutningi af fyrirtækinu.
ASÍ segist nú hafa undir höndum
gögn sem sýni að félögin brjóti lög
og grundvallarréttindi á því starfs-
fólki sem sinni flugi fyrir Primera
Air hér á landi. Þessu hefur Primera
Air hafnað og hótar nú Alþýðusam-
bandinu málssókn.
Í yfirlýsingu frá Magnús M. Norð-
dahl, lögmanni ASÍ, segir hann að
engum ætti að dyljast að grunur ASÍ
um brot Primera gagnvart launafólki,
sem njóta skuli verndar íslenskra laga
og kjarasamninga, sé vel rökstuddur
og að brot fyrirtækisins séu alvarleg.
ASÍ vonast til að Primera bregðist
hratt og örugglega við.
Kjósi Primera að bregðast ekki
við, standi verkalýðshreyfingunni
ýmis úrræði til boða sem beina
megi gegn fyrirtækjum til þess að
koma í veg fyrir ólögmæt félagsleg
undirboð. -hh
flugfélag áSkorun aSí vegna launakjara flugliða
Stjórnvöld stöðvi Primera Air
Boeing 737 þota Primera Air.
8 fréttir Helgin 13.-15. febrúar 2015