Fréttatíminn - 13.02.2015, Page 12
F
Ferðagreinin hefur vaxið ævintýralega
hér á landi undanfarin ár. Greinin skilar
nú meiri gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins
en aðrar, er komin fram úr sjávarútvegi og
stóriðju. Samhliða hafa skatttekjur af grein-
inni aukist. Fagna ber auknum ferðamanna-
straumi til landsins en honum fylgir aukið
álag, einkum á vinsælustu ferðamannastöð-
unum, þeim náttúruperlum sem fólk vill
helst skoða. Þrátt fyrir meiri skatttekjur
af greininni er samstaða um
það að leita skuli nýrra leiða
í gjaldheimtu til að mæta því
álagi sem ferðamannafjöld-
inn hefur á staðina. Deilur
standa hins vegar um leiðir í
þeim efnum.
Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir, ráðherra ferðamála, hefur
mælt fyrir sérstökum náttúru-
passa á Alþingi en sú leið hefur
verið gagnrýnd af Samtökum
ferðaþjónustunnar, stjórnar-
andstöðu, auk efasemda innan stjórnarflokk-
anna. Þá sýndi skoðanakönnun MMR, sem
birt var í desember, aukna andstöðu almenn-
ings gegn náttúrupassa.
Markmiðið með útgáfu náttúrupassa er
að stuðla að verndun náttúru Íslands en
tekjur af passanum á að nota til að standa
undir nauðsynlegri uppbyggingu, viðhaldi
og verndun ferðamannastaða. Samkvæmt
frumvarpi ráðherrans á passinn að kosta
1500 krónur fyrir 18 ára og eldri með þriggja
ára gildistíma. Hann á að gilda á ferðamanna-
stöðum í eigu og umsjón opinberra aðila en
auk þess skal bjóða einkaaðilum aðkomu að
honum. Áætlað er að náttúrupassinn skili
4,5-5,2 milljörðum króna á þriggja ára tíma-
bili en reiknað er með að fjárfestingarþörf
á ferðamannastöðunum nemi um milljarði
króna á ári, að minnsta kosti meðan verið er
að ná tökum á ástandinu. Samkvæmt frum-
varpinu á Ferðamálastofa að hafa eftirlit með
því að fólk sé með náttúrupassa og verði það
að lögum fær stofnunin heimild til að sekta
ferðamenn sem eru ekki með passa á þeim
svæðum sem hann gildir. Einstakir land-
eigendur geta eftir sem áður í krafti eignar-
réttar síns rukkað aðgangseyri á sína staði
en geri þeir það eiga þeir staðir ekki rétt á
úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamanna.
Þótt ferðamálaráðherra telji náttúrupass-
ann heppilegustu leiðina er ljóst að frumvarp-
ið fer ekki óbreytt í gegnum þingið. Til þess
er andstaðan of mikil í þinginu, meðal hags-
munaaðila og í samfélaginu. Það er fremur
af prinsippástæðum en því að peningaupp-
hæð náttúrupassans þyki há, en samkvæmt
frumvarpinu er reiknað með því að um 10-
15% af heildarinnkomunni komi frá Íslend-
ingum. Fólki líkar einfaldlega ekki að þurfa
að sýna passa við náttúruskoðun í eigin landi
– eða eiga von á því að hitta fyrir „stöðumæla-
verði“ náttúrunnar, ætli menn sér, til dæmis,
að sækja Þingvelli heim. Breytir þar engu
þótt í frumvarpinu segi að ákvæði um nátt-
úrupassa skerði ekki almannarétt umfram
fyrri ákvæði náttúruverndarlaga.
Ragnheiður Elín þekkir þessa andstöðu og
hlýtur að taka tillit til hennar enda hefur hún
lýst því yfir að hún sé opin fyrir breytingum
á frumvarpinu, að horfa á það sem sameini í
málinu fremur en sundri. Á það hefur áður
verið bent í leiðara Fréttatímans að hækk-
un á því gistináttagjaldi sem fyrir er sé far-
sælust, leið sem þeir sem gerst þekkja inn-
an greinarinnar leggja til. Í skýringum með
náttúrupassafrumvarpi ráðherrans er gisti-
náttagjaldi fundið það til foráttu að hafa ekki
skilað nægum tekjum og ef sá skattur yrði
hækkaður gæti það haft áhrif á eftirspurn.
Hógvær gistiflokkatengd hækkun ætti þó
varla að hafa teljandi áhrif – og skili hækk-
aður gistináttaskattur heldur minna í kassa
ríkisins en náttúrupassinn er ekki óeðlilegt að
sá mismunur komi úr þeim sama kassa enda
hafa tekjur hins opinbera af ferðaþjónustunni
aukist samhliða auknum ferðamannastraumi.
Þess utan má nefna að greiðsluhlutfall með
hækkuðum gistináttaskatti milli erlendra
ferðamanna og Íslendinga yrði svipað og
með gjaldtöku með náttúrupassa. Heildar-
innkoma frá Íslendingum næmi um 20%.
Stóri kosturinn er hins vegar sá að með
gistináttagjaldinu þarf ekki að senda „stöðu-
mælaverði“ með sektablokk í eftirlitsferðir
með ferðalöngum.
Hækkað gistináttagjald í stað náttúrupassa
„Stöðumælaverðir“ náttúrunnar óþarfir
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Láu hjartað ráða
Svalandi engiferdrykkur
alveg eir mínu höfði
enda er engifer í miklu
uppáhaldi. Drykkurinn
er gerður úr fyrsta flokks
lífrænu hráefni, meira
að seg ja vatnið hefur
lífræna vottun.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Ryksuguúrval
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
6.990,-
Spandy heimilisryksugan
• 1600W
• afar hljóðlát
• mikill sogkraftur > 18KPA
• margnota pokiDrive ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
7.590,-
Model-LD801
Cyclon ryksuga
Kraftmikil
9.990,-
12 viðhorf Helgin 13.-15. febrúar 2015