Fréttatíminn - 13.02.2015, Side 16
Óskar Jónasson leikstýrir nýrri íslenskri gamanmynd sem ber heitið Fyrir framan annað fólk.
Snorri Engilbertsson fer með aðalhlutverkið í myndinni, sem fjallar um ást, fíkn og stjórnleysi.
Tökur hefjast í vor og stefnt er á frumsýningu næsta vetur.
KviKmynd myndin byggir á leiKriti sem Kom á óvart
F yrir framan annað fólk er byggð á samnefndu leikriti eftir Kristján Þórð Hrafnsson
sem sýnt var í Hafnarfjarðarleikhús-
inu árið 2009. „Leikritið var mjög
sérstakt, og kannski ekki allra,
en fékk samt sem áður mjög góða
dóma og viðtökur. Ég féll fyrir hug-
myndinni sem er í kjarna verksins,
þetta er fersk og húmorísk nálgun
á mörgu af því sem við erum að eiga
við alla daga,“ segir Óskar.
Félagsfælinn og ástfanginn
hönnuður
Sagan fjallar um Húbert, félagsfæl-
inn grafískan hönnuð, sem á erfitt
með samskipti við fólk almennt og
sérstaklega við hitt kynið. Í einu
af fjölmörgum vinnustaðapartíum
kynnist hann draumadísinni Hönnu
og það er ást við fyrstu sýn, af hans
hálfu. Húbert kann hins vegar eng-
ar aðferðir til að nálgast hana og í
hita augnabliksins bregður hann á
það ráð að herma eftir yfirmanni
sínum, sem er vel sjóaður kvenna-
bósi, sem kann öll trixin í bókinni.
Þetta brýtur ísinn, þó að Hanna
viti alveg að Húbert sé að grínast.
Húbert hefur himin höndum tek-
ið, ekki síst við að uppgötva þessa
duldu eftirhermuhæfileika.
„Leikritið í Hafnarfjarðarleik-
húsinu kom mér verulega á óvart.
Ég hefði ekki viljað vita fyrirfram
hvernig sagan þróast og því fer ég
eins og köttur í kringum heitan
graut þegar kemur að því að segja
frá söguþræðinum,“ segir Óskar, en
hann segir jafnframt að áhorfendur
eigi eftir að geta séð sjálfa sig í sög-
unni. „Þetta er heilsteyptur heimur
með raunsærri mynd af fólki sem
við þekkjum. Við könnumst öll við
þetta leikrit sem við leikum í til-
hugalífinu. En svo rennur upp stund
sannleikans, fyrr eða síðar, þegar
við þurfum að ganga fram fyrir
skjöldu og vera við sjálf.“
Sannleikur eða blekking?
Snorri Engilbertsson fer með hlut-
verk Húberts, en þróun sambands
hans og Hönnu, sem leikin er af
Hafdísi Helgu Helgadóttur, er rauði
þráðurinn í gegnum söguna. „Það
kannast allir við þessa fyrstu mán-
uði, þegar maður er blindur og geð-
veikur. En svo eru það mómentin
sem koma þar á eftir. Er þetta ást
eða ekki? Sannleikur eða blekk-
ing? Draumar eða raunveruleiki?
Því þarf Húbert að komast að,“ seg-
ir Snorri. Með önnur aðalhlutverk
fara Svandís Dóra Einarsdóttir og
Hilmir Snær Guðnason, en hann
leikur yfirmann Húberts, sem er
nettur flagari sem elskar allt sem
viðkemur Ítalíu.
Áhugi erlendis frá
Óskar er nýkominn heim frá Berlín,
þar sem hann var staddur á Berl-
inale kvikmyndahátíðinni. Sam-
hliða hátíðinni fer fram svokallað-
ur samframleiðendamarkaður, þar
sem aðstandendum nýrra mynda
gefst kostur á að ræða við stærri
framleiðendur. „Þetta er mjög gagn-
virkt fyrirkomulag, í rauninni eins
og hraðstefnumót. Maður hittir
hvern framleiðenda í hálftíma, þar
sem farið er yfir framleiðslutengd
mál eins og dreifingu og mögulegt
samstarf,“ segir Óskar, en það kom
honum skemmtilega á óvart hversu
mikinn áhuga myndinni var sýndur.
„Það hefur verið mikill spenningur
fyrir norrænum glæpamyndum og
sakamálaseríum undanfarið, en nú
er fólk tilbúið fyrir rómantíska gam-
anmynd frá Skandinavíu.“ Tökur
hefjast í vor, en tökuferlið gæti tekið
töluverðan tíma, þar sem handritið
spannar heilt ár. „Sagan byrjar að
vori og árstíðirnar þróast með sög-
unni,“ segir Óskar.
Fagnar því að þurfa ekki að
vera fyndinn
Óskar segir að myndin sé eins kon-
ar gamandrama. Snorri bætir við:
„Þetta er vel skrifað handrit og þess
vegna líður mér vel með að þurfa
ekki að vera fyndinn, ég treysti á
að aðstæðurnar og kringumstæð-
urnar í myndinni veki upp hlátur hjá
áhorfendum.“ Það verður spennandi
að fylgjast með framvindu mála, en
stefnt er á að frumsýna næsta vetur.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Gamandrama um
raunverulegt fólk
Óskar Jónasson og Snorri Engilbertsson. Ljósmynd/Hari
16 kvikmyndir Helgin 13.-15. febrúar 2015
www.sagamedica.is
Sama góða varan í nýjum umbúðum
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
49
16
Ég nota
SagaPro
Helga Arnardóttir, húsmóðir
„Stóla á SagaPro á daginn“