Fréttatíminn - 13.02.2015, Side 19
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4-
22
10
Mercedes-Benz CLA-Class 4MATIC
Óviðjafnanlegur
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú nnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Nú fæst Mercedes-Benz CLA-Class með 4MATIC aldrifsbúnaði. Þrátt fyrir að vera einstaklega öflugur
og skemmtilegur í akstri þá er hann bæði umhverfismildur og eyðslugrannur. Útlitshönnun og öryggis-
búnaður í sérflokki, eins og við er að búast frá Mercedes-Benz. Í einu orði sagt óviðjafnanlegur.
Þessum verður þú að kynnast nánar, komdu í Öskju og reynsluaktu.
CLA 200 CDI, 4MATIC aldrifsbúnaður,
7 þrepa sjálfskipting, 136 hö., eyðsla
frá 4,6 l/100 km í blönduðum akstri.
Verð frá 6.520.000 kr.
Dramatískar ballöður
gamaldags
Hvaða lag átti síst erindi í keppnina
í ár?
„Myrkrið hljótt var 20 árum of seint í
þessa keppni þó Erna Hrönn sé frábær
söngkona.“
„Daníels Olivers lagið, man ekki einn tón
úr því, bara ekki minn tónlistartebolli
en getur vel verið að massinn fíli þetta
í ræmur í Eurovision, svo kannski á það
fullt erindi í þessa keppni.“
„Mér finnst öll lögin fín, ekkert ömur-
legt. Hvet þá sem eru ósammála að: a)
slökkva á sjónvarpinu, b) senda inn lag/
lög á næsta ári.“
„Fjaðrir með Sunday, mjög lélegt lag
sem veit ekki hvað það er, popplag eða
technolag. Þú verður að ákveða þig,
þetta er Eurovision, við ráðum ekkert
við gátur.“
Niðurstaða: Ekkert lag sem var af-
gerandi. Þó voru flestir á því að ofur
dramatískar ballöður séu gamaldags.
Bert bak Hildar og
pils Einars Ágústs
Hver hefur skartað besta
klæðaburðinum í keppninni?
„Klárlega fær Einar Ágúst prik fyrir
að draga fram pilsið góða.“
„Rifnu buxurnar hans Frikka Dórs
eru buxur keppninnar.“
„Hildur Kristín Stefánsdóttir í hvíta
gallanum. Alltaf plús að sýna smá
bak.“
Niðurstaða: Einar Ágúst í pilsinu
og Hildur Kristín söngkona Sunday
skoruðu hæst hjá dómnefnd.
Vantar öryggari flytjendur og gott flipp-lag
Dómnefndin hafði misjafna skoðun á því hvort eitthvað vantaði tilfinnanlega í
keppnina í ár og lágu sumir ekki á skoðunum sínum.
„Það hefur vantað öruggari flytjendur.
Allt of mikið af fölskum söng. Ef menn
eru falskir í Söngvakeppninni þá verða
þeir ennþá falskari í stóru keppninni í
Vín. Ekki það að manni hefur sýnst lögin
komast áfram hér heima þrátt fyrir
pípandi falskan flutning. Hvað er fólk að
spá heima í stofu?“
„Það vantaði eitt gott flipp-lag. Fólk var
dálítið að taka þetta alvarlega í ár.“
„Ef júróvisjónkeppnir síðustu ára hafa
sýnt fram á að eitthvað vanti í íslensku
atriðin þá er það sirkusatriði, meira
gimmikk, stærri leikmynd fyrir hvert og
eitt atriði, eða eitthvað eftirminnilegt.
Silvía Nótt og Selma eru þær sem hafa
staðið sig best af íslensku keppend-
unum að þessu leyti. Það er kjaftæði að
júróvisjón sé tónlistarkeppni – þetta er
keppni í sjónvarpi og pródúsjón og það
á ekki að vanmeta það. Ekki senda fólk
út sem er að leika að spila á hljóðfæri,
heldur sem blæs eldi, hjólaskautar í
kringum söngvarann eða gerir atriðið
sjónrænna.“
Álitsgjafar fréttatímans
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir upp-
lýsingafulltrúi.
Margrét Gauja Magnúsdóttir bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði og sólarsömbu-
stúlka.
Henný María Frímansdóttir upplýs-
ingafulltrúi Iceland Airwaves
Björn Jörundur
kynþokkafyllstur
Eurovision er ekki bara lagakeppni,
þar leikur útlit og þokki líka stóra
rullu. Hver hefur mesta kynþokkann
í ár?
„Fyrir keppni hefði ég sagt Frikki Dór,
en ég ætla að segja Flexi.“
„Bjánaleg spurning. Björn Jörundur er
að keppa. Á einhver annar séns?“
„Það drýpur kynþokkinn af Einari Ágústi
í þessar keppni. Hann hefur gengið í
endurnýjun lífdaga og hlýtur að vera í
hvers manns dagdraumum.“
Niðurstaða: Björn Jörundur Friðbjörns-
son skoraði hæst í stigagjöfinni.
úttekt 19 Helgin 13.-15. febrúar 2015