Fréttatíminn - 13.02.2015, Síða 20
Þ róunin er þannig að við erum með sífellt meiri þjónustu í símunum okkar. Við förum á póstinn og
vöfrum á netinu og nú býður Pyngjan
upp á þann möguleika að geta greitt með
símanum,“ segir Dagný Halldórsdóttir,
verkfræðingur og frumkvöðull, en hún
er hönnuður nýs apps fyrir snjallsíma
sem er gert til að auðvelda okkur lífið
enn frekar.
Greiðslukort í símanum
Pyngjan er app fyrir snjallsíma og
virkar þannig að notendur geta skráð
greiðslukortin sín í Pyngjuna og að því
búnu notað forritið til að borga með
hjá söluaðilum sem taka við slíkum
greiðslumáta.
„Við viljum hafa sífellt minna far-
teski og við höfum séð það að fólk er
farið að geyma greiðslukortin sín í far-
símahulstrunum. Við ákváðum að taka
þessa þróun alla leið með því að setja
bara sjálf kortin inn í símann,“ segir
Dagný en appið heldur auk þess utan
um greiðslukvittanir og kassastrimla.
„Þetta er mjög þægilegt því þú getur
haldið utan um allar þínar greiðslur og
nótur á einum vísum stað. Svo eru líka
möguleikar í Pyngjunni sem styðja við
allskyns miðasölu og þannig er hægt
að halda utan um alla miða sem keyptir
eru líka,“ segir Dagný en Pyngjan gerði
nýlega samning við Miði.is.
Stefna á stærri markað
„Sjálfri fannst mér vera kominn tími til
að borga með símanum sjálfum og fór
að velta fyrir mér bestu lausn til þess.
Ég gaf mér ýmsar forsendur sem þyrftu
að ganga upp. Eins og til dæmis að þetta
væri hlutlaus lausn, óháð android og i-
phone, sem gengi á mismunandi útgáfur
af tækjum. Einnig þyrfti hún að ganga
þvert á þjónustuaðila s.s. færsluhirða,
söluaðila og dreifingaraðila appsins.
Notendur gætu þannig notað appið hvar
sem er og yfir landamæri líka,“ segir
Dagný en Pyngjan stefnir í útrás. „Við
stefnum á að selja þessa þjónustu til út-
landa þegar við erum búin að koma okk-
ur vel af stað hérna heima.“
Nýsköpun á Íslandi
„Að starta svona kallar auðvitað á
mikinn undirbúning og nauðsynlegt
er að kynna hugmyndina á sannfær-
andi hátt svo ljóst sé að hún gangi upp.
Styrkjakerfið er mjög mikilvægt fyrir
alla nýsköpun en við fengum styrk
úr Tækniþróunarsjóði og erum þar á
öðru ári af þremur og það gerir auð-
vitað gæfumuninn. Ég er mjög þakk-
lát fyrir það hversu vel fyrirtæki hafa
tekið Pyngjunni og það er nú annað sem
skiptir miklu máli fyrir alla nýsköpun,
að fyrirtækin séu tilbúin að nýta nýjar
lausnir.“
Aðspurð um jarðveginn fyrir nýsköp-
un á Íslandi segir Dagný hann hafa sína
kosti og galla. „Þetta er náttúrulega lítið
land og fjölbreytnin því ekki mikil en
það getur líka haft sína kosti. Það er auð-
veldara að hafa yfirsýn yfir markaðinn
en að sama skapi er ekki í mörg hús að
vernda ef lykilaðilar eru ekki áhuga-
samir.“
Mikil gerjun í bransanum
„Það hefur verið mikil framþróun í upp-
lýsingatækninni og ég held ég hafi bara
ósjálfrátt dregist inn í það,“ segir Dagný
sem var ekki ókunn frumkvöðlaum-
hverfinu þegar hún réðst í þetta verk-
efni þar sem hún hefur starfað í tækni-
geiranum í mörg ár og áður stofnað
fyrirtæki í upplýsingatækni. „Það hef-
ur verið stöðug þróun í þessum geira í
langan tíma og þá opnast ný tækifæri,
bæði í tölvu- og fjarskiptaheiminum.
Svo er líka svo áhugavert hvað allt er að
tengjast mikið núna, fyrirtæki í afþrey-
ingu, fjarskiptum og upplýsingatækni
eru svo mikið að skarast svo tækifærin
eru á hverju strái.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Dagnýju Halldórsdóttur fannst
vera kominn tími á að hægt
væri að nota snjallsímann sem
greiðslukort svo hún ákvað að
búa til app til þess. Pyngjan er
komin vel af stað og nú stefnir
Dagný á útrás. Hún segir
tækifæri til nýsköpunar vera á
hverju strái.
Hver er
Dagný
Halldórsdóttir
Starf: Fram-
kvæmdastjóri DH
Samskipta ehf.
Fyrri störf:
IBM á Íslandi,
framkvæmdastjóri
Tákns, stofnandi
Skímu, aðstoðarfor-
stjóri Íslandssíma
og framkvæmda-
stjóri Neyðar-
línunnar.
Menntun:
Rafmagnsverk-
fræðingur frá
Washington State
University, M.Sc. í
tölvunarfræði frá
Minnesota Uni-
versity.
Fjölskylduhagir:
Býr í Garðabænum
með manni sínum.
Á tvö börn og eitt
barnabarn.
Áhugamál:
Íþróttir og útivist.
Leyndur
hæfileiki:
Hann er ennþá
leyndur.
?
Dagnýju Halldórsdóttur fannst vera kominn tími til að hægt væri að greiða með snjallsímanum og ákvað að hanna lausn til þess.
Íslenskt
app í útrás
TILBOÐ
20 viðtal Helgin 13.-15. febrúar 2015