Fréttatíminn - 13.02.2015, Síða 44
44 matur & vín Helgin 13.-15. febrúar 2015
O stur er ein merkilegasta fæðutegundin í heiminum og það má hreinlega rekja
sögu mannkyns í gegnum hann.
Ostar hafa verið notaðir sem gjald-
miðill, verið hluti af trúarlegum at-
höfnum, átt þátt í að koma af stað
átökum og friði milli þjóða og jafn-
vel verið hluti af trúlofunarhefð-
um. Það er heldur ekki svo galið
að para saman rómantík og osta,
en þeir innihalda phenylethylam-
ine, sem er sama vellíðunarefni
og finnst í dökku súkkulaði og
veitir okkur ekkert nema eintóma
hamingju. Við ættum meira segja
frekar að borða osta en súkkulaði
til að finna fyrir vellíðan þar sem
ostar, sérstaklega þroskaðir, inni-
halda tífalt meira magn af efninu
en súkkulaði!
Nú er að renna upp sannkölluð
ástarvika, Valentínusardagurinn er
á morgun og viku seinna og einum
degi betur er sjálfur konudagurinn.
Flestir Íslendingar frá grænar bólur
við tilhugsunina um Valentínusar-
daginn, en það þýðir ekki að það
megi samt ekki gera sér dagamun.
Tökum vinapar mitt sem dæmi. Ég
bjó um árabil í Bretlandi og þar er
allt orðið undirlagt af hjörtum og
öðrum væmnum varningi um leið
og jólunum hefur verið pakkað
niður. Það eru því allir komnir með
nóg þegar dagurinn rennur loksins
upp. Vinapar mitt brá þá á það ráð
að halda upp á „Romantic Cheese
Day“ í staðinn. Þá fara þau og kaupa
sér osta og vín sem passar saman
við (mjög mikilvægt!) og njóta sam-
an. Þannig búa þau sér til sína eigin
hefð og fá nóg af hamingju frá hvort
öðru, svo ég minnist nú ekki á öll
vellíðunarefnin úr ostunum.
Í Búrinu út á Granda verður sann-
kölluð ástarostavika frá Valentínus-
ardegi til konudags og gefin verða
góð ráð um hvernig á að para saman
rómantíska osta og vín. Ostar og
freyðivín eru til að mynda
mjög skemmtileg sam-
setning, hvort sem um er
að ræða kampavín, Cava,
Prosecco, Cremant eða
Moscato d’Asti. Það eru þó
nokkrar þumalputtareglur
sem ber að hafa í huga. Þeg-
ar þú velur osta til að hafa
með freyðivínum eru fersk-
ir, ungir og rakaháir ostar, til
dæmis geitaostar, mozzarella,
rjómaostar gott val. En til að
fullkomna valið má fara eftir
þessum leiðarvísi:
Ostar með kampavíni
Kampavín hefur meiri fyllingu
og bragð en önnur vín og inni-
heldur meiri gertóna og því
þarf að vanda valið.
Rjómabættir hvítmyglu-
ostar geta passað vel
ef vínið er ávaxtaríkt en
forðist þó mjög bragðmikla eða vel
þroskaða hvítmygluosta, til dæmis
Brie de Meaux eða Camembert. Að
mínu mati er best að para kampavín
við osta eins og Comte, Gruyere og
Manchego, en þeir hafa ljúfa ávaxta-
tóna og búa yfir bragði sem minna
á brennt smjör, ristaðar heslihnetur
og ristað brauð.
Ostar með Prosecco og Cava
Rjómabættir hvítmygluostar eins
og Brie Maxim eða Dala Auður
eru fullkomnir meðan þeir hafa
ekki náð of miklum
þroska. Mjög feitir og
smjörkenndir ostar
eins og Brillat Sav-
arin eða kremaðir og
munnþekkjandi ostar
eins og rjómaostar
og ferskir geitaostar
henta einnig vel með
Prosecco og Cava. Til-
valið meðlæti eru fersk
ber, nektarínur, plómur
og suðrænir ávextir eins
og ananas og mangó.
Ostar með Moscato
d’Asti, Asti Spumante og
öðrum sætum freyðivínum
Hér er gaman að koma
fólki á óvart og para
þessi sætu freyði-
vín með gráðost-
um, sérstaklega Gor-
gonzola og öðrum kremuðum
gráðostum í mildari kantinum, til
dæmis bláum kastala. Því sætara
sem freyðivínið er því sterkari getur
gráðosturinn verið. Ef fólk hræðist
gráðostinn er gaman að leita í sýru-
hærri ferska osta eins og geitaost.
Gráfíkjur, döðlur, perur, þurrkuð
trönuber og hunang er tilvalið með-
læti með sætum freyðivínum.
ÁstarOstavika frÁ valentínusardegi til kOnudags
Hamingjan býr í ostum
Eirný í búrinu
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fræðslu- og
myndakvöld
Heilsuvernda
rmörk brenn
isteinsvetnis
Í tröllahöndu
m á Tröllaska
ga
Ferðafélag Íslands stendur fyrir fræðslu og myndakvöldi
nk. miðvikudagskvöld, 18. febrúar, kl. 20:00 í sal FÍ.
Heilsuverndarmörk brennisteinsvetnis á
höfuðborgarsvæðinu
Þröstur Þorsteinsson dósent við jarðvísindastofnun HÍ og Ingólfur
Hrólfsson verkfræðingur fræða okkur um heilsuverndarmörk
brennisteinsvetnis á höfuðborgarsvæðinu.
Í tröllahöndum á Tröllaskaga
Að loknu kaffihléi mun Kristján Eldjárn Hjartarson frá Tjörn í
Svarfaðardal sýna myndir úr ferðum á Tröllaskaga.
Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur
Allir velkomnir!
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 8.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
• Dalbraut 1
með Nizza hnetusúkkulaði, karmelluglassúr og lakkrískurli
LAKKRÍSBOLLUR
P
R
EN
TU
N
.IS
NÝTT
DRAGÐU FRAM
ÞAÐ BESTA Í MATNUM
Gerðu engar málamiðlanir – notaðu Santa Maria
næst þegar þú eldar.
GÖNGUFERÐ UM TENERIFE
FARARSTJÓRAR: INGA GEIRSDÓTTIR
OG SNORRI GUÐMUNDSSON
NÁNAR Á UU.IS
11.-18. MARS