Fréttatíminn - 13.02.2015, Qupperneq 62
Sjónvarp Hreimur Stýrir þætti Sem fer beint á Sjónvarp SímanS
L andslagið í sjónvarpi er sí-fellt að breytast og sífellt minni eftirspurn er eftir
línulegri sjónvarpsdagskrá. Njáll
Þórðarson, vörustjóri hjá Síman-
um, segir fyrirtækið ætla að gera
tilraun til þess að bæta úrval áhorf-
enda og sjá hvað virki og hvað
ekki. Tilraunin er gerð í Sjónvarpi
Símans, þar sem áhorfandinn vel-
ur sér sjónvarpsefni þegar hann
vill. Til þessa hefur þar verið að
finna efni sem áður hefur verið á
dagskrá sjónvarpsstöðva en nú er
hugmyndin að prófa að framleiða
efni beint þar inn.
„Það sem við ætlum að gera er
að opna sjónvarpið fyrir dagskrár-
gerð af ýmsum toga. Ef einhver er
með hugmynd og kemur með þátt
til okkar, þá birtum við hann og
áhorfandinn metur það hvort hann
vilji sjá meira eða bara sleppa því,“
segir Njáll. „Við setjum þó þau
skilyrði að þættirnir séu sóma-
samlega gerðir og uppfylli siðferð-
isreglur og slíkt. Þetta er vel þekkt
erlendis og þess vegna viljum við
gera þessa tilraun,“ segir Njáll.
Þættirnir verða aðgengilegir á
sjónvarpi Símans og í lok hvers
þáttar fær áhorfandinn tækifæri
að gefa þættinum einkunn með
stjörnugjöf.
„Við ætlum að ríða á vaðið í lok
mánaðarins og setjum inn fjóra
þætti sem við erum að framleiða
sjálf,“ segir Njáll. „Það verða þætt-
ir sem nefnast Hreimsins besti,
og eins og nafnið gefur til kynna
er þáttastjórnandinn söngvarinn
Hreimur Örn Heimisson, sem
hefur undanfarin ár gert mikið af
því að vera með Popp-Quiz um allt
land. Við ákváðum að henda hon-
um í djúpu laugina og hann verð-
ur með léttan tónlistartengdan
spurningaþátt,“ segir Njáll.
Þátturinn er þannig uppbyggður
að Hreimur, ásamt liðsstjórunum
Jóhannesi Ásbjörnssyni og Pétri
Erni Guðmundssyni, fá til sín góða
gesti sem keppa í popp-fræðum.
„Þessi hugmynd var að skora hæst
hjá okkar fólki, en við erum einn-
ig með þrjár aðrar hugmyndir sem
okkur langar að framleiða, en við
byrjum á þessari,“ segir Njáll sem
hlakkar til að sjá viðbrögðin við
þessu. „Við vitum að það eru að-
ilar sem liggja á góðum hugmynd-
um fyrir sjónvarp og þess vegna
hvetjum við fólk til þess að fram-
leiða þær hugmyndir sem það er
með. Við sýnum þær og aldrei að
vita nema þessar hugmyndir endi
í sjónvarpi fyrir allra augum. Við
erum að opna partíið,“ segir Njáll
Þórðarson, vörustjóri hjá Símanum.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Hreimur Örn Heimisson stjórnar nýjum sjónvarpsþætti sem framleiddur er fyrir Sjónvarp Símans. Prufuþáttur var tekinn upp í Austurbæ í vikunni.
Síminn mun í lok mánaðarins bjóða upp á nýja þjónustu í sjónvarpi sínu. Þá verða aðgengilegir
nýir íslenskir þættir sem áhorfendur geta horft á, þegar þeim hentar. Ennfremur geta áhorf-
endur gefið þáttunum einkunn og haft áhrif á hvort þættirnir verði fleiri eða hvort þeir fari í
almenna sjónvarpsdagskrá og framleiðslu. Tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson stýrir
fyrsta þættinum sem framleiddur verður.
Síminn framleiðir
sjónvarpsþætti
tónLeikar Sónar reykjavík Stendur yfir í Hörpu
Skrillex kemur til landsins á einkaþotu
Tónlistarhátíðin Sónar Reykja-
vík hófst í Hörpu á fimmtudag og
nær hámarki í kvöld og á morgun.
Aðalnúmerið er bandaríski plötu-
snúðurinn Skrillex sem treður upp
á laugardagskvöld. Uppselt er á
Sónar Reykjavík.
Skrillex er einn vinsælasti plötu-
snúður heims. Til marks um vin-
sældir hans er hann með rúmlega
fjórar milljónir fylgjenda á Twit-
ter og um 20 milljónir like-a á Fa-
cebook. Skrillex kemur hingað
til lands eftir að hafa troðið upp
í Lettlandi og ferðast hingað á
einkaþotu. Hann er mikill Íslands-
vinur og hefur til að mynda ferðast
með Björk um Asíu. Samkvæmt
upplýsingum Fréttatímans leggur
hann mikið í tónleika sína hér og
mætir með auka-hljóðkerfi svo allt
verði sem best á kosið fyrir tón-
leikagesti.
Mikil spenna er fyrir tónleikum
Mugisons á föstudagskvöld en
hann er aftur kominn í raftónlist-
argír eftir nokkurt hlé. Þá verður
fjölskyldustemning þegar hljóm-
sveitirnar Ghostigital og Fufanu
eru hlið við hlið á dagskránni á
föstudagskvöld. Einar Örn Bene-
diktsson er sem kunnugt er í Gho-
stigital en sonur hans, Kaktus, í
Fufanu. -hdm
Bandaríski plötusnúðurinn Skrillex
treður upp á Sónar Reykjavík á laugar-
dagskvöld. Hann kemur hingað til lands
á einkaþotu. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Prinsinn
lofaður í
Skandinavíu
Sorrí með Prins Póló er tilnefnd
í ár til Norrænu tónlistarverð-
launanna, The Nordic Music
Price. Tólf plötur eru tilnefndar
og þar af tvær íslenskar; áður-
nefnd Sorrí og platan Trash
From The Boys með Pink Street
Boys. Verðlaunin voru fyrst veitt
árið 2010 og féllu þá í skaut
Jónsa. Aðrir verðlaunahafar
eru Goran Kajfes frá Svíþjóð
2011, First Aid Kit 2012, einnig
frá Svíþjóð, sem og The Knife
2013. Úrslitin verða kunngjörð
á tónlistarhátíðinni by:Larm í
Noregi 5. mars. Vinningshafi fær
30.000 norskar krónur.
Afmælisborgari frá
Roadhouse
Veitingastaðurinn Roadhouse fagnar á
næstu misserum þriggja ára afmæli. Lítill
fugl hvíslaði því að Fréttatímanum að Ásta
Sveinsdóttir, einn eiganda Roadhouse, sé
með nýjan hamborgara í smíðum, sem
verður kynntur á afmælinu og talið er að
sá borgari eigi engan sinn líkan í heim-
inum. Talið er að aðdáendur Roadhouse,
sem eru fjölmargir, bíði í ofvæni eftir því
hvaða galdur komi að þessu sinni úr eld-
húsinu.
Kynnarnir verða í bláu
Mikið hefur verið rætt um klæðaburð
kynnanna þriggja í Söngvakeppni sjón-
varpsins þetta árið. Þykja þær allar hinar
glæsilegustu í fatnaði sem hannaður er
af fatahönnuðinum Filippíu Elíasdóttur. Í
fyrsta þættinum voru þær allar í svörtu, og
um síðustu helgi skörtuðu þær eldrauðum
dressum. Þetta hefur skapað umræðu
undanfarna daga hjá tískuspekingum og
margir sem hafa reynt að veðja á í hvaða lit
kynnarnir verða í úrslitunum. Samkvæmt
heimildum Fréttatímans sáust þær Salka,
Gunna Dís og Ragnhildur Steinunn máta
bláa kjóla í húsakynnum RÚV í vikunni, svo
allt bendir til þess að blátt verði liturinn á
laugardag.
Hellvar á ferðalagi um
England
Heiða Eiríksdóttir og félagar hennar í
hljómsveitinni Hellvar hefja á morgun
tveggja vikna tónleikaferð um England,
með tónleikum í The Labour Club í Nort-
hampton. Hellvar heldur svo 9 tónleika
í ferðinni sem enda þann 28. febrúar
með tónleikum í bænum Oundle, sem er
skammt frá Peterborough í miðlöndunum.
Ferðalagið hefur fengið nafnið Highway to
Hellvar.
Ný sending af
sundfatnaði!
Útsölulok 14.feb.
62 dægurmál Helgin 24.-26. maí 2013