Fréttatíminn - 13.02.2015, Blaðsíða 64
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Bakhliðin
Töffari með
hjarta úr gulli
Aldur: 32.
Maki: Enginn.
Börn: Gabríel Máni, 10 ára, og Jara Líf,
4 ára.
Menntun: Burtfararpróf frá jazz-og
rokksöngdeild við Tónlistarskóla FÍH
og BA í fatahönnun frá Listaháskóla
Íslands.
Starf: Starfandi söng- og bassaleikari,
m.a. með eigin hljómsveit, Erla Stefáns
& The Sinister Trio, og tónlistarkennari
við Tónlistarskóla Árbæjar.
Fyrri störf: Hitt og þetta, kaffihús,
leikskóli, Þjóðleikhúsið og gagnavinna
við tonmennt.com.
Áhugamál: Tónlist, myndlist, húðflúr,
stríðsmyndir, diskó friskó og gott spjall
yfir góðum kaffibolla.
Stjörnumerki: Fiskur.
Stjörnuspá: Slakaðu á, þú kemur
hugsanlega meiru í verk fyrir vikið.
Minna ákveðin manneskja hefði flúið
verkefnið en þú gefst alls ekki upp.
Erla er endalaust skemmti-leg, hæfileikabúnt og haf-sjór af fróðleik um tónlist
og kvikmyndir,“ segir Ásta
Sveinsdóttir, vinkona Erlu. „Hún
er fyndin og úrræðagóð, alger
töffari, hörkutól með hjarta úr
gulli,“ segir Ásta.
Erla Stefánsdóttir er ein fárra kvenna
sem hefur lagt fyrir sig bassaleik
hér á landi. Hún er því áberandi með
bassann og spilar með hinum og þessum
listamönnum og hljómsveitum. Hún
tók þátt í tveimur lögum í undankeppni
söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Annars
vegar með Bjarna Lárusi Hall í laginu
Brotið gler, og með Hauki Heiðari í
laginu Milljón augnablik sem keppir í
úrslitaþættinum um helgina.
Hrósið ...
... fær Anna Úrsúla Guðmundsdóttir,
leikmaður Vals í handknattleik, sem í vik
unni hlaut nafnbótina skyndihjálparmaður
ársins. Anna Úrsúla, ásamt liðsfé lög um sín
um í Val, bjargaði lífi manns sem hné niður
í Vals heim il inu síðasta vor.
Erla StEfánSdóttir
20% afsláttur
af loðkrögum
Í tilefni af Valentínusardeginum er 20%
afsláttur föstudag—sunnudag af
loðkrögum
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is