Fréttatíminn - 13.02.2015, Blaðsíða 66
A ðeins einn afrískur leikstjóri hefur verið tilnefndur til Ósk-arsverðlauna fyrir bestu er-
lendu mynd oftar en einu sinni. Það er
Rachid Bouchareb, Frakki af alsírskum upp-
runa, sem þrisvar hefur verið tilnefndur
fyrir hönd Alsír. Bouchareb mætir á Stock-
fish ásamt Brendu Blethyn, margverð-
launaðri breskri leikkonu sem hefur unn-
ið með honum í tveimur þeirra mynda
sem sýndar verða á hátíðinni – London
River og Two Men in Town, nýjustu mynd
beggja. Auk þess sýnum við Heimamenn (
Indigènes) frá árinu 2006, en hún er ein af
þeim þremur myndum Boucharebs sem fékk
Óskarstilnefningu. Hinar tvær eru Ryk lífsins
(Poussières de vie) frá árinu 1996 og Handan
laganna (Hors-la-loi) frá árinu 2010.
Myndir Bouchareb fjalla oftast með einum
eða öðrum hætti um líf innflytjenda og það
sögulega samhengi sem þeir spretta upp úr.
Í Heimamenn er rakin saga norður-afrískra
hermanna í seinni heimsstyrjöldinni, en þeim
var ítrekað mismunað af hálfu sinna frönsku
nýlenduherra. Í London River leikur Brenda
Blethyn konu sem leitar í örvæntingu að
týndri dóttur sinni í kjölfar hryðjuverkaárás-
anna í Lundúnum sumarið 2005. En á meðan
á leitinni stendur vingast hún við afrískan
múslima sem er að leita að syni sínum. Bæði
eiga það sameiginlegt að hafa misst sjónar á
börnum sínum fyrir hryðjuverkin og grun-
aði ekki einu sinni að börnin þeirra byggju
saman. Í myndinni Two Men in Town leikur
Blethyn svo skilorðsfulltrúa sem vingast við
einn skjólstæðing sinn, leikinn af Íslands-
vininum og Óskarsverðlaunahafanum For-
est Whitaker.
Brenda Blethyn vakti fyrst verulega athygli
þegar hún fékk Óskarstilnefningu sem besta
leikkona fyrir myndina Secrets & Lies árið 1996.
Tveimur árum síðar var hún svo tilnefnd sem
besta aukaleikkona fyrir myndina Little Voice.
Undanfarin ár hefur hún leikið í myndum á borð
við Lovely & Amazing, Pride & Prejudice og Ato-
nement.
Óskarstilnefndar stjörnur
Brenda Blethyn og Rachid Bouchareb meðal gesta Stockfish
Velkomin á Stockfish
Kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem haldin var í fyrsta sinn 1978, vaknar
nú eftir að hafa sofið værum blundi um árabil. Fagfélögin í kvikmynda-
iðnaðnum blésu lífi í þessa elstu kvikmyndahátíð Norðurlanda, sem oft
á tíðum rótaði upp í fábreyttu menningarlífi borgarinnar. Nú sem fyrr
gefst fólki tækifæri til að horfa á gæðamyndir frá framandi löndum
með sérstakri áherslu á evrópskar myndir. Von er á góðum gestum, sem
munu miðla leikum og lærðum af reynslu sinni. Það er þörf fyrir slíkar hátíðir því kvik-
myndaúrvalið hversdags er einsleitt og miðar frekar að því að drepa tíma fólks frekar
en að auðga hugann. Það er von okkar sem stöndum að þessari hátíð að hún veiti innsýn
í framandi menningarheima og stuðli þannig að jöfnuði og friði. Þá er okkur ofarlega í
huga þakklæti til allra sem gerðu okkur kleyft að gera hátíðina að veruleika.
Friðrik Þór Friðriksson
Formaður stjórnar Stockfish European Film Festival in Reykjavík.
Kvikmyndaveisla á Hverfisgötu
Kvikmyndahátíðir eru ómissandi hluti af borgarlífinu. Kvikmyndahátíðin
Stockfish er nú haldin í fyrsta sinn en hún byggir á grunni Kvikmyndahá-
tíðar í Reykjavík sem stofnað var til árið 1978. Friðrik Þór Friðriksson
er einn þeirra sem sameinar þessa hátíð í fortíð og nútíð en hann var í
stjórn fyrstu kvikmyndahátíðar Reykjavíkur og er nú formaður stjórnar
Stockfish hátíðarinnar.
Stockfish er haldin í Bíó Paradís en á hátíðinni verða sýndar alls 30 kvikmyndir. Auk þess
verður efnt til samtals um kvikmyndalistina og kvikmyndagerð með fjölda vinnustofa og
fyrirlestrum. Til borgarinnar kemur því fjöldinn allur af kvikmyndagerðarfólki, handrits-
höfundum, framleiðendum og fræðingum til að komast í kynni við íslenska kollega sína. Af
þessu geta sprottið samvinnuverkefni sem eru ómetanleg fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað
sem hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum.
Framundan er veisla fyrir alla þá sem njóta kvikmynda og er veisluborðið alþjóðlegt.
Myndir hátíðarinnar hafa margar hverjar hlotið alþjóðleg verðlaun og koma víða að – Kína,
Frakklandi, Argentinu, Póllandi og Ísrael.
Reykjavíkurborg treystir á gott samstarf við aðstandendur hátíðarinnar en auk borgar-
innar eru samstarfsaðilar hátíðarinnar Evrópustofa, Eddan, Íslandsstofa og Kvikmynda-
miðstöð Íslands.
Ég hvet þig til að líta við á heimili kvikmyndanna í Bíó Paradís á kvikmyndahátíðina
Stockfish.
Dagur B. Eggertsson
Borgarstjóri
Kæru lesendur
Sem sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi er það mér heiður að taka
þátt í metnaðarfullri og áhugaverðri kvikmyndahátíð eins og Stockfish
— evrópskri kvikmyndahátíð. Ísland er virkur þátttakandi í ýmsu starfi
Evrópusambandsins til að mynda í gegnum styrktarsjóðina MEDIA/
Creative Europe og Horizon 2020. Í þessari samvinnu hefur svo Evrópu-
sambandið stutt dyggilega við íslenska kvikmyndamenningu til dæmis
með styrkjum til framleiðslu kvikmynda og til kvikmyndahátíða.
Í gegnum kynningarstarf Evrópustofu höfum við ennfremur staðið beint að kvik-
myndahátíðum með innlendum aðilum. Í fyrra fór Evrópustofa til dæmis í ferðalag út
á landsbyggðina með úrvalskvikmyndir, til nokkurra bæja þar sem eru allajafna ekki
almennar kvikmyndasýningar. Einnig studdi hún við RIFF til að leggja áherslu á ítalska
kvikmyndagerð og til að minnast þess að 100 ár voru liðin frá því fyrri heimstyrjöldin
hófst. Í ár höfum við á Stockfish — evrópskri kvikmyndahátíð reynt að tryggja að gæða-
myndir frá öllum hornum Evrópu séu í boði, en einnig verk frá öðrum heimsálfum, sem
þykja hafa ákveðna evrópska vídd. Þá höfum við viljað bjóða upp á nokkrar sýningar án
endurgjalds og almennt að halda miðaverði niðri.
Ég óska ykkur til hamingju með Stockfish — evrópska kvikmyndahátíð og vona að þið
njótið vel.
Matthias Brinkmann
Sendiherra Evrópusambandsins
Menningarstraumar í kvikmyndalist
Það er gömul saga og ný að menning og listir auðga samfélagið og skapa
skilyrði fyrir samskiptum milli ólíkra menningarheima og þjóða, sam-
skiptum sem byggja á virðingu fyrir sameiginlegu gildismati. Með slíkum
samskiptum getur heimurinn öðlast framtíðarsýn sem byggir á sjálfbærri
þróun og virðingu fyrir mannréttindum og gagnkvæmum skilningi.
Það skiptir fámenna þjóð miklu máli að taka opnum örmum á móti
menningarstraumum frá öllum heimshornum og leggja um leið rækt við menningarleg sér-
kenni sín. Á tímum örrar hnattvæðingar og aukinnar einsleitni er því æ mikilvægara að bera
á borð allan þann fjölbreytileika sem kvikmyndalistin býr yfir og er það því sérstakt fagn-
aðarefni að nú er hleypt af stokkunum nýrri kvikmyndahátíð sem byggir á gömlum merg.
Það markmið Stockfish að gefa listamönnum á sviði kvikmyndalistar færi á að eiga
samtal og samvinnu sín á milli skiptir miklu máli og getur hátíðin byggt brýr milli ólíkra
menningarsvæða og um leið varpað ljósi á íslenskan kvikmyndaarf. Áhersla kvikmyndahá-
tíðarinnar á miðlun og menntun lofar einnig góðu og vonandi mæta sem flestir á málþing
og skipulagðar vinnustofur sem haldnar verða í tengslum við hátíðina.
Fjölbreytni í framsetningu listamanna á hugmyndum sínum endurspeglar það frelsi sem
listunum er nauðsynlegt og er það von mín að margir njóti þess sem kvikmyndahátíðin
Stockfish hefur uppá að bjóða.
Illugi Gunnarsson
Mennta- og menningarmálaráðherra19. febrúar 1. mars
Miðaverð
Hátíðarpassi 7.500 KR
1 miði 900 KR
5 miðar á verði 4 3.600 KR
www.stockfishfestival.is
Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík
2