Fréttatíminn - 13.02.2015, Blaðsíða 70
S verrir Guðnason eyddi bernskuárunum bæði í Svíþjóð og á Íslandi og
þegar hann var ellefu ára gam-
all lék hann bæði í Heimsljósi og
í áramótaskaupinu. Hann hef-
ur hins vegar eytt fullorðinsár-
unum sem leikari í Svíþjóð og
er nú orðinn einn virtasti leikari
Svía og hefur hlotið Gullbjölluna
(sænsku Edduna) tvö ár í röð. Í
fyrra var hann valinn besti leikari
í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í
Monica Z – en önnur íslensk-
sænsk stjarna, Edda Magnason,
lék Monicu og vann þar verðlaunin
sem besta aðalleikkona.
Nú í ár var Sverrir svo tilnefnd-
ur í báðum flokkum og vann verð-
launin sem besti aðalleikari fyrir
Flugnagarðinn (Flugparken) – en
myndin er opnunarmynd Stock-
fish í ár og bæði Sverrir og leik-
stjórinn Jens Östberg munu mæta
á sýninguna.
Í myndinni leikur Sverrir Kristi-
an Keskitalo, en hann og Alex vin-
ur hans voru aðal íshokkítöffarar
bæjarins á sínum yngri árum. En
núna eru þeir bara tveir gaurar á
fylleríi og Alex er búinn að drekka
aðeins of mikið. Kristian nær með
lempni að koma honum heim, en
daginn eftir sést hvorki tangur né
tetur af Alex. Kristian verður sí-
fellt örvæntingarfyllri og hægt og
rólega koma ófáir fortíðardraugar
upp úr kafinu.
Hann fer að venja komur sínar
í Flugnagarðinn, þar sem vand-
ræðaunglingar bæjarins halda til,
og fer að haga sér undarlega gagn-
vart bæði kærustu Alex og pabba
Alex. Sá síðarnefndi er raunar fyrr-
um hokkíþjálfarinn hans og á vissan
hátt pabbinn sem hann aldrei átti.
Pabbinn er vel að merkja leik-
inn af Peter Andersson, sem ein-
hverjir muna mögulega eftir úr
myndinni Karlar sem hata kon-
ur – en þar endaði hann með
ansi óheppilegt húðflúr á mag-
anum. Hann fékk líka tilnefningu
til Gullbjöllunnar, sem besti leik-
ari í aukahlutverki, og keppti þar
við Sverri sjálfan – sem var til-
nefndur í þeim flokki fyrir mynd-
ina Gentlemen, og Kristofer Hivju
úr Turist, sem hreppti að lokum
verðlaunin.
Leikstjóri myndarinnar, Jens
Östberg, fylgir Sverri til Íslands
en hann er fyrrum ballettdansari
og kvikmyndaferillinn hófst þeg-
ar hann fór að vinna sem dans-
höfundur fyrir bíómyndir. Síðan
leiddist hann út í leikstjórn þeg-
ar hann leikstýrði stuttmyndinni
Småvillt en Flugnagarðurinn er
fyrsta mynd hans í fullri lengd.
Listrænar vampírur
Þ að er erfitt að vera vamp-íra í bíó á dögum Twilight. Flestir reikna bara með
því að þú sért illa haldin af ung-
lingaveikinni – sem er öfugsnúið
hlutskipti fyrir verur sem eru oft
mörgum öldum eldri en ungling-
arnir sem flykkjast á ævintýri Ed-
wards og Bellu. En vampírur eru
ósjaldan listrænar og viðkvæmar
sálir og fyrir því eru ýmsar sann-
anir.
Jim Jarmusch leikstýrði í hitti-
fyrra vampírsku ástarsögunni Only
Lovers Left Alive og á Stockfish er
einmitt ein mynd sem einn gagn-
rýnandi sagði að væri “myndin
sem Jim Jarmusch myndi gera
núna ef hann væri ung írönsk
stúlka sem byggi í Ameríku.“ A
Girl Walks Home Alone at Night
gerist í Vonduborg, svart-hvítum
rökkurheimi sem heimildir herma
að sé í Kaliforníu. Þar tala þó allir
persnesku og eru klæddir eins og
Hollywood-stjörnur drauma okk-
ar. En til Vonduborgar hefur ratað
dularfull og blóðþyrst stúlka – en
þegar þessi vampírustúlka hittir
sjálfan Drakúla úti á götu verður
hún ástfangin. Það flækir málin
hins vegar að þetta er ekki Dra-
kúla sjálfur, bara mennskur strák-
ur að nafni Arash sem er nýkom-
inn af grímuballi. Þegar viðbætist
gullfaleg kvikmyndataka og stór-
fengleg blanda af persneskri og
amerískri indítónlist verður út-
koman ein eftirminnilegasta mynd
ársins.
Vampírurnar á Stockfish geta
líka verið fyndnar. Annað er raun-
ar varla hægt þegar ein þeirra er
leikin af Jemaine Clement, öðrum
forsprakka Flight of the Chonc-
hords dúettsins, en hann er
sömuleiðis meðleikstjóri What We
Do in the Shadows. Myndin fjallar
um fjóra meðleigjendur sem hafa
leigt saman lengur en elstu menn
muna – enda eru þeir allir mun
eldri en umræ ddir elstu menn,
vampírur sem hafa lifað í nokkrar
aldir. En þegar nokkrar kornung-
ar vampírur koma inní líf þeirra
reynir á sambúðina.
lavabarinn
lavabarinn
Stockfish þakkar:
Gamlir íshokkítöffarar og ballettstjörnur
Sverrir Guðnason er orðinn einn virtasti leikari Svía
Jörð 101
V erkefnið Earth101 er helgað spurningunni hvernig hægt sé að miðla til almennings á
áhrifaríkastan hátt upplýsingum um
þær alvarlegu afleiðingar sem lofts-
lagsbreytingar geta í náinni framtíð
haft á veðurfar og vistkerfi jarðar.
Verkefninu er ætlað að einfalda
miðlun loftslagsvandans með því að
leiða saman fremstu vísindamenn á
sviði loftslagsrannsókna, sérfræð-
inga í frásagnarfræðum og hugrænni
sálfræði, lykilumhverfisblaðamenn á
stærstu dagblöðum vestanhafs og í
Evrópu, vísindabloggara sem hafa
sérhæft sig í loftslagsmálum og hóp
kvikmyndagerðarfólks.
Í tilefni af Earth101 verður kvik-
myndin Merchants of Doubt (2014)
sýnd á Stockfish. Hún fjallar um
afneitunariðnaðinn í Bandaríkj-
unum, hvernig hópur einstaklinga
kostaður af bandarískum stórfyrir-
tækjum hefur á síðustu áratugum
markvisst unnið að því að villa um-
ræðuna um ýmis mikilvæg málefni,
allt frá tóbaksreykingum til ógnar-
innar af loftslagsbreytingum. Erik
Conway, sem skrifaði bókina sem
myndin er byggð á, mun sitja fyrir
svörum eftir sýningu hennar ásamt
öðrum sérfræðingum. Loftslag-
steymi Alþjóðabankans tekur þátt í
ráðstefnunni, en þau fara fyrir Con-
nect4Climate (C4C) verkefni bank-
ans. Sigurmyndirnar í alþjóðlegri
stuttmyndakeppni Alþjóðabankans
verða jafnframt sýndar á Stockfish
og munu sérfræðingar sitja fyrir
svörum á eftir.
Að lokum má nefna að nokkrir
gestir Earth101 munu halda opin-
beran fyrirlestur 1. mars næst-
komandi í stofu 105 á Háskólatorgi
klukkan 12–16. Meðal fyrirlesara
verða: Gavin Anthony Schmidt, for-
stöðumaður GISS, loftslagsstofn-
unar NASA, og Kevin Anderson, for-
stöðumaður Tyndal-stofnunarinnar
í Manchester, ásamt Erik Conway,
vísindasagnfræðingi frá Caltech.
Heimasíða: earth101.is
6