Fréttatíminn - 13.03.2015, Qupperneq 24
Ég held
að það sé
svona lykill-
inn að góðu
sambandi að
fólk sé ekki
að reyna að
breyta hvort
öðru eða
rífa hvort
annað niður
í rifrildi.
Ég nýt
stundarinnar
að fullu
sama hvað
á bjátar
eftir þessa
reynslu.
A
uðvitað getur óvissan
verið erfið en ég hef
reynt að láta hana ekki
hafa áhrif á mig. Það
er svo margt verra
sem fólk getur lent í en að missa
vinnuna,“ segir fjölmiðlakonan Ellý
Ármannsdóttir sem var sagt upp hjá
365 í haust, eftir níu ára starf sem
ritstjóri Lífsins. „Ég var ákveðin í
að láta einhvern atvinnumissi ekki
drepa mig heldur var ég staðráðin í
að halda áfram að sinna því sem ég
var að gera og geri það nú á mínum
eigin miðli,“ segir Ellý sem í dag,
föstudag, opnar nýjan lífsstílsvef
sem ber heitið Fréttanetið. Þó þar
verði ekki fréttir um pólitík og við-
skipti, að minnsta kosti ekki til að
byrja með, segir hún vefinn algjör-
lega standa undir nafni. „Þetta er
léttur frétta- og afþreyingarvefur
sem byggist upp á áhugaverðum
fréttum af fólki og ýmsu skemmti-
efni. Fréttir af fólki eru mest lesnu
fréttirnar og það sem annað fólk
hefur mestan áhuga á. Fókusinn er
á kvenlegt efni en auðvitað lætur
Fréttanetið ekkert fram hjá sér fara.
Ég sé síðan bara til hvernig miðill-
inn þróast í framtíðinni en fyrst og
fremst verða þetta léttar fréttir af
fólki, bæði innlendar og erlendar.
Vonandi verður þetta svona persónu-
legur fréttamiðill.“
Happatalan 13
Ellý bókstaflega ljómar af eldmóði
þegar við hittumst á bílastæðinu
fyrir framan Lifandi markað í
Borgartúni. „Þetta er hérna uppi,“
segir hún og bendir á glugga fyrir
ofan veitingastaðinn. „Þarna er skrif-
stofan mín. Komdu!“ – og við drífum
okkur upp. Ellý hefur tekið á leigu
lítið skrifstofurými í Borgartúni 24
og viðskiptahverfi Reykjavíkur, Wall
Street höfuðborgarinnar, blasir við
út um gluggann. Fréttanetið er í
eigu Ellýjar sjálfrar og vefsmiðsins
Hjalta Freys Kristinssonar hjá Hug-
ljómun.is sem smíðaði vefinn. „Ég
velti því fyrir mér að leita til fjárfesta
en síðan ákvað ég að gera þetta bara
sjálf. Svona er enginn að anda ofan í
hálsmálið á manni.“
Það er engin tilviljun að Ellý opnar
vefinn í dag, föstudaginn þrettánda.
„Þrettán hefur alla tíð verið happa-
talan mín. Fæðingardagur minn er
13. maí, amma mín, Ragnhildur Eyj-
ólfsdóttir, fæddist 13. október og það
var 13. janúar sem hún gekk að eiga
Ármann, afa minn, en þau voru mér
mjög kær. Þessi tala hefur í gegnum
tíðina fært mér heppni.“
Var skorin upp
Ellý býr ásamt manni sínum, Frey
Einarssyni, fyrrverandi sjónvarps-
stjóra 365, börnum og Samoyed-tík-
inni Freyju í Hörgshlíð í Reykjavík.
Hún vaknar snemma alla morgna,
fær sér hafragraut og gott kaffi.
„Síðan útbý ég nestið og keyri ung-
lingana í skólann. Eftir það sest
ég við tölvuna og byrja að vinna að
Fréttanetinu. Í hádeginu fer ég í
World Class Laugar þar sem ég æfi
daglega með vinkonu minni, síðan
vinn ég áfram eftir hádegi. Börnin
koma heim og ég læri með þeirri
yngstu fyrir skólann,“ en það er Ellý
litla sem birtist landsmönnum á
RÚV aðeins tveggja og hálfs mánað-
ar gömul árið 2007 þegar Ellý, móðir
hennar, kynnti dagskrá sjónvarpsins
sem þula. „Freyr eldar nánast alltaf
og fjölskyldan borðar síðan saman.
Svo er það háttatími hjá yngsta
barninu en ég gef mér alltaf tíma til
að spjalla og lesa fyrir háttinn og það
sem eftir lifir kvöldsins reyni ég að
njóta þess að vera með manninum
mínum heima en þar líður mér best.“
Það var raunar þegar Ellý hafði
lesið fyrir dóttur sína eitt kvöldið
fyrir þremur árum sem hún fann
fyrir beri í vinstra brjóstinu. „Dóttir
mín lá þétt upp við mig eftir að ég
hafði lesið fyrir hana og hún spurði
af hverju þetta harða ber, sem var
á stærð við hnetu, væri þarna í
brjóstinu. Ég hafði daginn eftir sam-
band við Krabbameinsfélagið og þeir
buðu mér að koma í skoðun. Brjóstið
var skannað og stungið á meininu
og í kjölfarið var mér ráðlagt að láta
fjarlægja berið strax. Ég dofnaði upp
við fréttirnar og ímyndaði mér allt
það versta. Ég var skorin upp og það
kom síðar í ljós að um góðkynja æxli
var að ræða en mér var ráðlagt að
vera meðvitaðri og þreifa á brjóstun-
um framvegis sem allar konur ættu
að gera. Ég var heppin og er þakklát
fyrir það. Þetta var viðvörun sem
vakti mig til meðvitundar um hvað
heilsan er mikilvæg. Ég nýt stundar-
innar að fullu sama hvað á bjátar
eftir þessa reynslu.“
Fékk ekki greiddan uppsagnar-
frest
Miklar breytingar höfðu átt sér stað
hjá 365 áður en Ellý var sagt þar
Margt verra en að missa vinnuna
Ellý Ármannsdóttir segir að þó það hafi tekið á að vera sagt upp hjá 365 eftir níu ára starf þá hafi hún
verið staðráðin í að halda ótrauð áfram. Í dag opnar hún eigin lífsstílsvef sem tileinkaður er fréttum
af fólki. Ellý greindist með æxli í brjósti fyrir þremur árum, sem í ljós kom að var góðkynja, en hún
segir þá reynslu hafa kennt sér að njóta líðandi stundar. Hún leggur mikið upp úr samvistum við fjöl-
skylduna, les fyrir dótturina, Ellý, á hverju kvöldi og veit ekkert betra en nautasteik með bernaise sem
sambýlismaðurinn eldar.
upp. Sævar Freyr Þráinsson tók við af
Ara Edwald sem forstjóri 365 miðla
síðasta sumar og Kristín Þorsteins-
dóttir gerðist útgáfustjóri og yfirmaður
fréttastofu. Mikael Torfasyni var sagt
upp sem ritstjóra Fréttablaðsins, Ólafur
Stephensen sagði upp sem ritstjóri
Fréttablaðsins og Frey Einarssyni,
eiginmanni Ellýjar, var sagt upp sem
sjónvarpsstjóra Stöðvar 2. „Það var
búið að vera mikið rót á starfsmanna-
málunum, nánast stöðugar breytingar
sem sér ekki fyrir endann á, sýnist mér.
Það voru allir óöryggir með vinnuna
sína þannig að þetta kom ekkert á óvart
í sjálfu sér,“ segir Ellý um starfslok sín.
„Maðurinn minn var í mörg ár búinn að
stýra fréttastofunni og þar á meðal Vísi
þar sem ég starfaði. Ég gerði satt að
segja ekki ráð fyrir því að nýr yfirmað-
ur vildi hafa mig þarna áfram í þeim
breytingum sem hún boðaði,“ segir
hún og á þar við Kristínu. „Það kom
í ljós fyrr en síðar að hún vildi losna
við mig og ég fékk ekki greiddan upp-
sagnarfrest eftir níu ára starf hjá fyrir-
tækinu. Ég var auðvitað sár yfir því
hvernig staðið var að þessu og fannst
mér vera sýnd forneskjuleg framkoma.
Það er ólíklegt að Ari Edwald, sem var
forstjóri 365, hefði samþykkt að starfs-
manni sem búinn væri að vinna í tæpan
áratug hjá félaginu væri sagt upp með
þessum hætti. Hann reyndist mér alltaf
vel. Ég gat alltaf leitað til Ara.“
Ellý segist þó afar sátt við það starf
sem hún skilaði hjá 365. „Ég hefði ekki
viljað vera þarna deginum lengur á
þeim forsendum sem þarna voru komn-
ar upp en ég er sátt við þennan tíma
sem var lærdómsríkur og skemmti-
legur. Við náðum miklum árangri og
gerðum miklar breytingar á Vísi í þá
hönnun sem hann er í dag sem meðal
annars urðu til þess að hann var valinn
besti frétta- og afþreyingarvefur lands-
ins árið 2012.“
Óhjákvæmilega setti það svip á
heimilislífið að bæði Ellý og manninum
hennar var sagt upp með nokkurra
Ellý Ármannsdóttir er komin í sjálfstæðan atvinnurekstur og er að opna nýjan vef. Hún segist hafa íhugað að leita að fjárfestum en hafi frekar kosið að vera engum háð. Hér er hún með hundinum Freyju sem hún
hreyfir reglulega í Öskjuhlíð. Ljósmynd/Hari
24 viðtal Helgin 13.-15. mars 2015