Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 44
Fæst í Lyfju, Apótekinu,
Lyfjaveri og Garðsapóteki
Sambucol:
– Náttúruleg vörn
gegn flensu
– Sannkölluð
andoxunarbomba
fyrir frumurnar
raritet.is
Besta flensu-
og kvefmixtúra
sem ég hef prófað
”
Sambucol
Immuni
Forte
Sykurlaust,
náttúrulegt
þykkni fyrir
fullorðna.
Sambucol
for Kids
Bragðgott
náttúrulegt
þykkni fyrir
börn.
Sambucol
Immune
Forte
forðahylki
Fyrir þá sem
ekki vilja
mixtúru.
Dregur úr einkennum og getur stytt
flensu- og kveftímann um allt að 50%
Þ að kallar á meiðsl ef fólk fer frá því að gera ekki neitt í að æfa fimm sinnum í viku af krafti,“
segir Daði Reynir Kristleifsson,
sjúkraþjálfari hjá Afli. Crossfit æf-
ingakerfið er hannað með það í huga
að það sé hægt að aðlaga að hverjum
sem er og telur Daði það mikilvægt
að fólk geri æfingar í takt við það sem
það hefur gert áður.
„Fólk er í misjöfnu formi þegar
það byrjar æfingar og nauðsynlegt
að taka mið af því.“ Grunnnámskeið
eru í boði fyrir þá sem ætla að byrja
að stunda Crossfit þar sem lögð er
áhersla á rétta líkamsbeitingu og
fræðslu og telur Daði það skipta
öllu máli að fara í gegnum grunn-
ámskeið. „Einn stærsti parturinn er
að fá kennslu í hvernig eigi að gera
hreyfingarnar rétt, og vera sífellt
að fínpússa hreyfingarnar. Crossfit
æfingarnar reyna mikið á axlir, mjó-
bak og hné og það er fyrst og fremst
mikilvægt að vera ekki með of þung
lóð. Vöðvaþreytan byrjar að tikka inn
þegar lóðin verða þyngri og ef fólk er
ekki nægilega sterkt fer það að beita
sér rangt til að svindla sér í gegnum
æfinguna. Þess vegna er alltaf gott að
byrja létt og vinna sig smám saman
upp og halda réttri líkamsbeitingu.“
Daði Reynir segir að þetta eigi við
um alla hreyfingu sem fólk stundar
því það skipti engu hvort fólk sé að
Ótrúlega margir hafa náð árangri
„Til að gera vöðvana
móttækilegri fyrir þjálfun og
koma í veg fyrir meiðsl þarf
að huga að réttri stignun
og réttri liðleikaþjálfun í
samræmi við æfingar,“ segir
Daði Reynir Kristleifsson,
sjúkraþjálfari hjá Afli. Sjálfur
hefur hann stundað Crossfit
í nokkur ár og veitir hann
jafnframt ráðgjöf hjá Crossfit
Reykjavík. Hann telur það
algengt að fólk fari sér of
geyst.
Daði Reynir Kristleifsson
segir fáfræði á Cross-
fit kalla á ósanngjarna
umfjöllun og ekki sé meira
um meiðsl í Crossfit en
öðrum íþróttagreinum.
æfa boltaíþrótt, lyfta lóðum, Cross-
fit eða sund, þá sé rétt stignun lyk-
ilatriði. Hann segir að því miður sé
of oft horft á Crossfit sem meiðsla-
gjarna íþrótt en það stafi fyrst og
fremst af vanþekkingu á sportinu.
„Margir þekkja boltaíþróttirnar vel
en þar er mikið um meiðsl sem ekki
er talað um af jafnmikilli neikvæðni.
Það þykir jákvætt og gott að stunda
handbolta eða fótbolta þar sem marg-
ir eru með slæmar axlir, ökkla og hné
eftir þjálfun, en um leið og fólk seg-
ist stunda Crossfit þá heyrast áhyggj-
uraddir. Það er ósanngjarnt og ég tel
að það stafi fyrst og fremst af van-
þekkingu á sportinu.“
Aðspurður tekur hann undir það að
áhyggjur um meiðsl í Crossfit stafi af
því að það æfa margir sem hafa lítið
hreyft sig áður og hafa ekki stundað
íþróttir. „Það má ekki gleyma því að
það eru margir sem finna sig í Cross-
fit sem hafa ekki áður fundið hreyf-
ingu við hæfi og það eru ótrúlega
margir sem hafa náð gríðarlegum
árangri sem hefur breytt lífi þeirra
til hins betra. Allskonar fólk stundar
Crossfit með góðum árangri, þar á
meðal fólk sem er háð hjólastól. Að-
almálið er að allir geri það sem þeir
geta og hugi að því að gera það rétt.
Fólk verður að þekkja sín mörk og
vera ófeimið við að leita eftir leiðsögn
og spyrja.“
44 crossfit Helgin 13.-15. mars 2015