Fréttatíminn - 13.03.2015, Síða 72
tíska Helgin 13.-15 mars 20154
Förðun: Kristjana Rúnarsdóttir. Módel: Eskimo Models – Rán.
A llur undirbúningur fyrir góða förð-un hefst á að undirbúa húðina vel. Í þessu tilfelli byrjaði Kristjana á að
setja Génifique serum sem örvar starfsemi
húðarinnar og eykur ljóma. Því næst La Base
Pro Hydra Glow sem gefur góðan raka og fal-
legan ljóma sem kemur í gegnum farðann.
Farði: Nýr farði, Miracle Cushion númer 02 (léttur
fljótandi farði í svampi) sem gefur fallega létta
áferð sem einfalt er að byggja upp í góða þekju.
Best er að dumpa farðanum létt á með svamp-
inum sem fylgir.
Augabrúnir: Le Sourcils Pro númer 030 auga-
brúnablýantur er notaður til að fylla upp í
augabrúnirnar til að móta þær. Að auki er bursti á
enda blýantsins til að greiða í gegnum brúnirnar.
Augu: Vorlitir Lancôme innihalda augnskuggapal-
lettu með 9 litum. Litir númer 1-3 eru ljósir mattir
tónar. Litir 4-6 eru sanseraðir litir og litir númer
7-9 eru túrkisbláir tónar. Litur númer 1 er notaður
yfir allt augnlokið alveg að augabrúnum sem
grunnur. Næsta lit númer 5 fór á allt neðra augn-
lokið. Litur númer 4 er settur í innri augnkrók og
undir augabrún. Í augnlínuna undir augunum er
settur litur númer 8 hálfa leið og á móti frá innri
augnkrók og út er litur númer 7. Hypnôse vatns-
heldur augnblýantur í túrkisbláum lit er settur í
efri augnlínuna alla leið inn í innri augnkrók.
Maskari: Hypnôse Doll Eyes svartur settur á
augnhárin. En hann lyftir augnhárum frá rót,
þéttir og lengir.
Kinnar: Mildur og fallegur litur í Blush Subtil
kinnalitunum númer 11 var settur á epli kinnanna
til að fá fallegan og mildan roða í kinnarnar.
Varir: Lip Lover gloss númer 401, bjartur bleikur
tónn.
Vorlúkkið frá Lancôme
Geir Sigurðsson, hárgreiðslumeistari á Rakarastofu Akureyrar, hefur góða reynslu
af Nioxin hárvörunum. Þær stuðla að styrkingu í hársverðinum og koma í veg fyrir
alls konar hárvandamál.
Þykkara hár
og heilbrigðari
hársvörður
H árlos og hárþynning er ótrúlega algengt vanda-mál hjá báðum kynjum og
í sumum tilfellum getur þetta verið
mjög viðkvæmt og jafnvel feimnis-
mál. Ástæður fyrir hárlosi geta
verið af ýmsum toga, til dæmis
vegna erfða, hormónabreytinga,
sjúkdóma, álags, mataræðis, vöðva-
bólgu og fleiri þátta. Nioxin hárvör-
urnar hjálpa til við að draga úr hár-
losi með því að auka blóðflæði til
hársekkja, auk þess sem vörurnar
skapa hárinu gott vaxtarumhverfi
ásamt því að huga að veikburða hári
sem vill auðveldlega brotna.
Nioxin stuðlar að þykkara hári
Nioxin hárvörurnar eru eingöngu
seldar á hársnyrtistofum og eru
mjög auðveldar í notkun. Geir
Sigurðsson, hárgreiðslumeistari
á Rakarastofu Akureyrar, hefur
sjálfur prófað vörurnar. „Munur-
inn varð strax sýnilegur, án þess
þó að ég væri að telja hárin,“ segir
Geir. „Nioxin stuðlar aðallega að
styrkingu í hársverðinum. Mörg
hárvandamál byrja í hársverðinum
og með þessum vörum er hægt að
koma í veg fyrir þau,“ bætir Geir
við. Til að ná sem bestum árangri
er ráðlagt að hefja notkun varanna á
hárgreiðslustofu. „Þannig getur við-
eigandi fagaðili greint hár viðskipta-
vinarins og valið vörur úr línunni
við hæfi hvers og eins, auk þess sem
hársvörðurinn er djúphreinsaður,“
segir Geir. Grunnpakki af Nioxin
samanstendur af sjampói, næringu
og sérstöku efni fyrir hársvörðinn.
Vörur fyrir konur jafnt sem
karla
Vörurnar henta konum jafnt sem
körlum og segir Geir að karlmenn
með veikan hárvöxt hafi til dæmis
fundið mikinn mun. Líklega eru þó
fleiri konur en karlar sem nota vör-
una, enn sem komið er. „Það þarf
einfaldlega að kynna þetta frekar
fyrir körlunum. Um leið og þeir eru
farnir að finna mun þá er ekki aftur
snúið. Þeir hafa bæði fundið mun á
hárinu og flasa og slíkt hefur einnig
horfið,“ segir Geir.
Unnið í samstarfi við
Halldór Jónsson ehf.
Augnháranæring gerir yfirborð
augnháranna mýkra þannig að
maskarinn dreifist jafnt yfir hár-
in svo það myndast síður klessur
á augnhárunum og auðveldara er
að bera maskara á mjúk augnhár.
Augnháranæring gerir þau jafn-
framt mýkri og fallegri í útliti og
próteinið í næringunni gefur hár-
unum þykkara yfirbragð. Ef augn-
hárin verða of þurr þá er líklegt að
þau brotni auðveldlega þegar augun
eru nudduð og það er jafnvel nóg að
blikka augunum til að þurr augn-
hár brotni sem gerir þau styttri og
ójöfn. En með reglulegri notkun
augnháranæringu er hægt að halda
augnhárunum löngum.
Það eru margar tegundir af augn-
háranæringu til í verslunum, en
flestar innihalda mýkjandi efni sem
kalla emmólíent sem smýgur inn í
augnhárin og gerir þau mýkri. Einn-
ig er að finna prótein sem styrkja
augnhárin eða öllu heldur trefjarnar
sem hárin samanstanda af.
Margar tegundir eru til af augn-
háranæringu en oftast eru þær í
svipuðum umbúðum og maskari og
bornar á með sama hætti og mask-
ari. Sumir framleiðendur setja nær-
ingu og maskara í sömu umbúðir
sem getur verið handhægt og þægi-
legt að stinga í töskuna. Leiðbein-
ingar eru á umbúðum um hversu
oft þarf að nota augnháranæringu,
en hafið í huga að það tekur nokkrar
vikur af notkun til að sjá raunveru-
legan árangur.
Löng og mjúk
Draumurinn um löng, þykk og mjúk augnhár getur ræst með því
að nota augnháranæringu.
Augnhárin verða mýkri og þykkari með notkun augnháranæringar.