Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 26
Kolvetnaskert
og próteinríkt
með suðrænu
bragði
– Nýtt KEA Skyr með
kókosbragði.
Náttúrulegur
sætugjafi
mánaða millibili. „Já, auðvitað setti það svip á heim-
ilislífið. Hann var búinn að vera hjá 365 í meira en 10
ár og eiginlega alla tíð sem stjórnandi og lengst af á
fréttastofunni. Hann var ekki mikið heima hjá sér og
kom nánast aldrei heim fyrr en eftir að útsendingu
frétta lauk. Þetta breyttist lítið eftir að hann varð sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2. Hann vann mjög mikið og hafði
ekki rými til að taka eðlileg sumarfrí vegna auk-
inna verkefna sem alltaf bættust við. En hann gerði
frábæra hluti fyrir félagið, eins og flestir eru vonandi
meðvitaðir um. Það var bara æðislegt að fá manninn
minn heim þegar honum var sagt upp og við höfum
eiginlega bara legið saman í faðmlögum og reynt að
slaka á og njóta þess að vera saman.“
Kossar næra ástina
Hún er mikil fjölskyldukona og er afar þakklát fyrir
fjölskylduna sína. „Við Freyr erum heppin með öll
börnin okkar og auðvitað hvort annað. Það er mikill
kærleikur á okkar heimili, held ég að ég geti sagt, og
við látum ekkert utanaðkomandi hafa áhrif á það. Það
er aldrei rifist og allir mjög afslappaðir gagnvart hver
öðrum. Það er því frekar mikill stöðugleiki á heimilis-
lífinu þótt báturinn sem slíkur hafi farið í ólgusjó.“
Ellý er andlega þenkjandi og lumar á ýmsum ráðum
til að rækta sambandið við makann. „Ég held að það
sé mikilvægt að gera það ekki í einhverjum skorpum
með máltíð, gjöfum eða ferðalögum. Sambandið á
alltaf að vera í góðu jafnvægi í stað þess að kaupa það
tímabundið með einhverjum skammtíma trikkum.
Mikilvægt er að fólk sé umburðarlynt og beri virð-
ingu hvort fyrir öðru og sjálfstæði einstaklingsins sé
virt. Ég held að það sé svona lykillinn að góðu sam-
bandi að fólk sé ekki að reyna að breyta hvort öðru
eða rífa hvort annað niður í rifrildi. Ekkert sem fólk
kann að vera ósátt við í sambandinu er virði afleiðing-
anna sem rifrildi skapar. Þess vegna er best að sleppa
því bara alveg og einbeita sér að því að elska hvort
annað og rækta sambandið á hverjum degi með koss-
um, snertingu og fallegum orðum sem næra ástina.“
Síðustu mánuði hefur Ellý haldið úti Facebook-
síðunni Stjörnuspá vikunnar þar sem hún hefur
birt stutta og hnitmiðaða stjörnuspá fyrir fólk eftir
stjörnumerkjum en á nokkrum vikum fékk hún
13 þúsund fylgjendur. Stjörnuspáin verður hluti af
Fréttanetinu og þar verður einnig hægt að draga
tarotspil eða sérstök ástarspil. „Allt er þetta auðvi-
tað í jákvæðum tilgangi og sem dægradvöl án allrar
ábyrgðar á þeirri niðurstöðu sem spilin
kunna að svara fólki. Þetta er til þess gert
að hafa gaman af því. Það sem skiptir mestu
máli í lífinu er að hafa gaman.“
Ellý tekur ekki annað í mál en að gefa
mér forskot á sæluna og sýnir mér hvernig
vefurinn kemur til með að líta út. Ég spyr
varfærnislega hvort ég megi draga ástar-
spil. „Auðvitað! Ég er búin að vera að kynna
vefinn fyrir auglýsendum og það biðja
nánast allir um að fá að draga,“ segir hún.
Ég horfi vandlega á spilin á vefnum, vel
eitt sem er nánast í miðjunni og upp kemur
Bikargosi. Textinn við spilið hefst á orðun-
um: „Rólyndismanneskja birtist. Gæti verið
námsmaður sem býr yfir listrænum hæfi-
leikum og ekki síður andlegum þroska.“ Ég
þarf víst að bíða eftir að vefurinn fari í loftið
til að draga aftur. Til gamans...
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ellý Ármannsdóttir
Fædd: 13. maí 1970.
Maki: Freyr Einarsson.
Börn: Kassandra Líf 24, Ármann Elías 19,
Einar Alex 16, Kría 15, Ellý 7 og Freyja
6 ára Samoyed-tík.
Barnabörn: Alba Mist, 2 ára og Dalía Von,
6 mánaða.
Áhugamál: Útivist, hestamennska, jóga,
líkamsrækt og fjölskyldutíminn, sem
er bestur.
Leyndir hæfileikar: Það hefur komið
mörgum á óvart að ég get teiknað.
Uppáhaldsmatur: Nautasteik með
bernaise, eins og Freyr eldar hana.
Ellý með Frey Einarssyni, sambýlismanni sínum. Þau eru bæði mikið áhugafólk um hestamennsku. Ljós-
mynd úr einkasafni.
26 viðtal Helgin 13.-15. mars 2015