Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 70
tíska Helgin 13.-15 mars 20152 V ið teljum að heilbrigður lík-ami stuðli að heilbrigðum huga. Heildræn nálgun að heilsu og vellíðan hefst með því að tryggja að snyrtivörur sem þú notar á líkamann séu jafn náttúrulegar og lífrænar eins og það sem þú borð- ar,“ segir Svala Rún Sigurðardóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá Automax. Vörurnar frá Dr. Organic innihalda aðeins náttúruleg og lífræn hrá- efni. Uppruni hráefnanna er frá öll- um heimsálfum og er hvert einasta efni prófað til að tryggja að það sé í samræmi við strangar viðmiðunar- reglur um gæði samkvæmt stefnu Dr. Organic. „Sérstaða varanna felst í því að í öllum kremunum er aloe vera en ekki vatn. Vatn þurrkar húðina en Aloe Vera er rakagefandi og græðandi,“ segir Svala. Einstakar vörur úr kókos og kókosolíu Kókoslínan frá Dr. Organic inni- heldur ríkulegt magn af trefjum, vítamínum og steinefnum. Kókos- olía hefur verið flokkuð sem hagnýt fæða vegna þess að kókos stuðlar að bættri heilsu og inniheldur góð nær- ingarefni. Kókosolían frá Dr. Org- anic er einstök þar sem í henni er blanda af mangó og papaya. „Þessir ávextir gefa olíunni suðrænan blæ sem veitir svo sannarlega ekki af hér á landi,“ segir Svala. Moisture Melt Coconut Body olían er svo algjör dekur olía fyrir húð og hár. „Olían fer vel inn í húðina og hún verður silkimjúk á eftir.“ Vörur án allra aukaefna Ein af vinsælustu vörunum í kókos- línunni er svitalyktareyðirinn Coco- nut Deo. „Hann er laus við ál og öll önnur óæskileg aukaefni sem marg- ir svitalyktareyðar innihalda,“ segir Svala. Í línunni er einnig að finna fjöldamargar aðrar vörur, til dæmis dag- og næturkrem fyrir mjög þurra húð eða eldri húð, kókos andlits serum, sjampó og hárnæringu sem gefur hárinu mýkt og fallegan gljáa. Vörurnar frá Dr. Organic eru fá- anlegar í öllum verslunum Heilsu- hússins, Lyfju og Apótekinu. Unnið í samstarfi við Dr. Organic/Automax Náttúrulegar vörur frá öllum heimshornum Snyrtivörurnar frá Dr. Organic eru lausar við öll aukaefni Léttleiki og náttúrulegir tónar einkenna hártískuna í vor Valdís Dröfn Pálsdóttir, hár- snyrtir á Salon Ritz, fer yfir það nýjasta í hártískunni. H ártískan í vor er eitthvað sem við megum láta okkur hlakka til. „Við sjáum marg- breytileika í síddum en þó verður axlarsídd með léttleika og liðum vinsælust. Síða hárið verður áfram í tísku, eins og undanfarin ár. Topp- arnir verða frekar síðir en hárið að aftan og í hliðum klippt í styttur til að gefa meiri léttleika og hreyfingu í hárið. Lyfting og fylling verður og er mjög vinsæl hjá öllum aldurshóp- um. Til að ná því fram er best að nota Extra Body Boost frá Paul Mitchell sem er spreyjað í rótina og því næst er hárið þurrkað með blásara. Hárið poppast upp við það og verður við- ráðanlegt og helst glæsilegt allan daginn,“ segir Valdís Dröfn Páls- dóttir, hársnyrtir á Salon Ritz. Gylltir, gráir og náttúrulegir tón- ar verða einnig í tísku í vor. „Best er að biðja um álit hjá hársnyrtinum hvaða tónn hentar best þínum húðlit en hann er sérfræðingur í litavali. Módelinu með síða hárið hentar til dæmis frekar að hafa kalda tóna en þeirri með axlarsíða hárið fer mik- ið betur hlýir hunangstónar. Réttir tónar draga fram augn- og húðlit hvers og eins,“ segir Valdís Dröfn. Unnið í samstarfi við Arctic Trading Company Náttúrulegur tónn með gráu ívafi. Blásið var upp úr Extra Body Boost frá Paul Mitc- hell í rótina til að ná fram lyftingu en Super Skinny Serum sett í endana til að mýkja. Dry shampoo var úðað í rótina eftir blásturinn til að gefa hámarks lyftingu og fyllingu í hárið. Stay Strong hárlakki frá Paul Mitchell er úðað yfir í lokin til að fá létt og gott hald. Hunangsbrúnn litur með „ombre“ sem er ljósari tónn í endum. Extra Body Boost frá Paul Mitchell var notað við blásturinn til að fá fyll- ingu og Stay Strong hárlakki frá Paul Mitchell er úðað yfir í lokinn til að fá létt og gott hald. Super Skinny Serum Frá Paul Mitchell Mýkjandi og nær- andi serum sem gerir hárið silki- mjúkt og glansandi. Extra Body Boost Frá Paul Mitchell Rótarlyfting sem lyftir hárinu vel frá rótinni. Dry Wash Frá Paul Mitchell Þurrsjampó sem gefur frískan ilm, þurrkar upp og gefur lyftingu og fyllingu í hárið. Stay Strong Frá Paul Mitchell Frábært þurrt hárlakk með góðu haldi. Hentar í allar hárgerðir. Eftirsóknarverð mýkt Regluleg notkun á djúpnæringu gerir hárið mjúkt og meðfærilegt. H ár sem er meðhöndlað með djúpnæringu reglulega er auðveldara í meðförum, auk þess sem endarnir klofna síður og þar af leiðandi er auðveldara að halda því í góðri lengd. Það er hins- vegar einstaklingsbundið hversu oft þarf að nota djúpnæringu og sumir nota hana á þriggja til fjögurra daga fresti en aðrir á tveggja vikna fresti. Ágætt er að byrja á því að nota hana einu sinni í viku og sjá svo hver ár- angurinn er. Það er líka gott að leita til fagaðila og fá ráðleggingar um tíðni notkunar og hvaða djúpnæring hentar best. Annað sem þarf að hafa í huga varðandi djúpnæringu er hita- stig og tímalengd. Oftast er að finna leiðbeiningar á flöskunni en það get- ur verið gott að hita næringuna með því að stinga flöskunni í heitt bað- vatn í nokkrar mínútur og þá á hún að virka betur og lengur. Hvað tíma- setningu varðar er mikilvægt að láta næringuna ekki vera of lengi í hár- inu og aldrei að leyfa djúpnæringu að vera í hárinu yfir nótt. Hún á að ná fullri virkni á 20 til 30 mínútum. Ef hún skilar ekki árangri á þeim tíma er ráð að prófa aðra tegund. Það er best að byrja á því að næra endana fyrst og vinna sig svo í átt að rótinni, en flestir gera þetta öf- ugt. En með því að byrja á endunum þá fá þeir lengri tíma til að draga í sig næringuna, og oftast þurfa þeir mest á henni að halda þar sem þeir geta verið þurrir og klofnir. Það er einfalt að nota djúpnær- ingu en það er líka alltaf hægt að fara á hárgreiðslustofu og fá fag- mann til að setja djúpnæringu í hárið. Hann sér þá um að velja réttu næringuna og hafa hana í hárinu í þann tíma sem hún krefst til að virka vel, auk þess sem oftast fylgir blástur með þannig að hárið verður glansandi og flott eftir meðferð á hárgreiðslustofu. Auðveldara er að halda hárinu síðu með því að nota djúpnæringu því það kemur í veg fyrir klofna enda og þurrk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.